Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 30
Vikublað 1.–3. september 201526 Menning Dalshrauni 13 220 Hafnarfirði Sími 565 2292 Settu fókusinn á Þýsk gæði í gegn Sumarútsalan hafin í Hjólaspretti 20 - 50% afsláttur af völdum hjólum Þyrnum stráð lífshlaup Hin hálu þrep, eftir Bjarna Bern- harð, er kom- in út. Bókin greinir frá einstöku og þyrnum stráðu lífs- hlaupi höfundarins sem hef- ur verið áberandi í reykvísku borgarlandslagi undanfarna áratugi. Hann hefur selt ljóða- bækur sínar á horni Pósthús- strætis og Austurstrætis allt frá árinu 2003. Í bókinni eru auk textans 22 persónuleg ljóð og 27 litljósmyndir af málverkum eftir höfundinn. Önnur misheppnuð atlaga að fjórum fræknu Þ að voru margar viðvörunar- bjöllur sem fóru í gang þegar tíðindi bárust af þessari mynd. Bjartsýnismenn bentu á að fáir hafi haft trú á Heath Ledger sem Jó- kernum, en aldeilis haft rangt fyrir sér. Og FF byrjar svo sem ágætlega. Miles Teller er betri Reed en sá sem var síð- ast og Kate Mara mun betri Sue Storm en Jessica Alba. Bæði fá nóg að gera og eru kraftar þeirra notaðir á hug- vitsamlegan hátt. Einnig er reynt að útskýra hvers vegna allir í hópnum fá mismunandi ofurkrafta, en það er lógískur galli á teiknimyndasögunum. Ef maður samþykkir að bestu vísinda- menn í heimi séu allir 19 ára gaml- ir er uppbyggingin spennandi, mað- ur er forvitinn um þennan nýja heim sem þeir finna og það er léttir að sjá Ameríkumynd þar sem klára fólkið er ekki illmennin. En í seinni hlutanum fer allt úr- skeiðis. Myndin hættir að vera vís- indaskáldsaga og verður týpísk ofur- hetjumynd, keyrt er hratt í gegnum allar klisjurnar og illmennið ákveður að útrýma jörðinni með geimgeisla eins og lög gera ráð fyrir. Ant-Man tókst betur upp með að láta sér detta eitthvað nýtt í hug, en svo er ekki hér. Megingalli myndarinnar er þó að hún er of mikil endurgerð á hinni mis- heppnuðu mynd frá 2005 frekar en að sækja í blöðin. Fantastic Four-blöðin búa yfir einhverjum besta skúrki teiknimyndasögunnar í Dr. Doom, en af einhverjum ástæðum hafa kvik- myndaútgáfur hingað til kosið að breyta honum svo mikið að hann missir marks. Þetta hefur verið hið ágætasta bíósumar, en endar því mið- ur á lágpunkti. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Fantastic Four IMDb 4,0 RottenTomatoes 8% Metacritic 27 Handrit og leikstjórn: Josh Trank Aðalhlutverk: Miles Teller, Kate Mara og Michael B. Jordan 100 mínútur Fantastic Four Lágpunktur kvikmynda- sumarsins Kúgunartæki og/eða byltingartól n Íronían er viðfangsefni nýjasta heftis Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar HÍ Í mjög stuttu máli er hægt að segja að íronía lýsi misræmi á ytri og innri merkingu, á því sem sagt er og raunverulega meint. En að því sögðu snert- ir íronía eiginlega alla mannlega reynslu og flesta fleti lífs okkar og samskipta,“ segir Kristinn Schram, lektor í þjóðfræði, sem ásamt Jóni Ólafssyni ritstýrir nýjasta hefti Ritsins, tímarits Hugvísindastofn- unar Háskóla Íslands, en að þessu sinni er það tileinkað íroníunni. Tvenns konar sýn á hlutina Í heftinu er íronía bæði skoðuð fræðilega og beitt sem tæki í fræði- legri umfjöllun. Í ritinu birtast meðal annars þýðingar á erlend- um fræðigreinum tengdum íroníu og íslenskir fræðimenn skoða íroníu í íslenskum fornsögum, ljóðlist og menningarsögu. „Þrátt fyrir einlægan ásetning um að finna heppilega þýðingu fannst okkur við ekki getað neglt niður neina eina. Við leyfðum því hugtakinu íronía að lifa en notuð- um líka ýmis íslensk hugtök sem koma upp í hugann í tengslum við íroníu. Til dæmis kaldhæðni og launhæðni – sem hefur verið not- að yfir það að fela afstöðu sína en leggja áherslu á hana á sama tíma, oft í formi einhvers konar kímni eða gríns. Íronía hefur líka verið þýdd sem ólíkindi og tvísæi – en það hugtak sleppir kímninni al- gjörlega. Það kemur hins vegar að kjarna íroníunnar, því þar er tvenns konar sýn á hlutina miðl- að á sama tíma. Það eru tvær eða fleiri merkingar sem standa til boða. Þetta er því oft notað hlið- stætt hugtakinu margræðni eða jafnvel óræðni,“ segir Kristinn. Kúgunartæki og byltingartól „Rauður þráður í umfjölluninni um íroníu er hvort hún standi í vegi fyrir baráttunni fyrir betri heim eða geti verið tæki til að búa hann til,“ segir Kristinn. „Íronían hefur ólíka virkni eftir því hvort hún er í höndum hinna valda- meiri eða valdaminni. Það má nota hana til að grafa undan ríkj- andi valdi en líka til að viðhalda valdastöðu. Ef við tökum dæmi þá má deila um hvort sjónvarpsþætt- ir eins og The Simpsons, Spaug- stofan eða áramótaskaupið geti komið á breytingum með gagn- rýni sinni eða hvort þeir virki þvert á móti eins og ventill á gremju og óánægju en svo haldi hlutirnir bara áfram eins og þeir hafa alltaf gert. Í heftinu erum við að reyna að skoða hvernig skoða megi ólíka þætti í merkingarheimi íroníunnar sem fræðilegt viðfangsefni, tján- ingarform og virkt afl og þá líka í íslensku samfélagi,“ segir Kristinn. Í heftinu eru gerðar ýmsar til- raunir til að skapa vettvang fyrir samtal um fyrirbærið og virkni Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Að segja eitt og meina annað Jón Gnarr og Besti flokkurinn beittu íroníu til að vekja upp spurningar um hefðbundin stjórnmál, en í Ritinu spjalla fræðimenn við Óttar Proppé um gildi íroníunnar fyrir stjórnmál. MynD HöRðuR SVeInSSon Kristinn Schram Ritstýrir Ritinu sem að þessu sinni er tileinkað íroníunni. „Rauður þráður í umfjölluninni um íroníu er hvort hún standi í vegi fyrir baráttunni fyrir betri heim eða geti verið tæki til að búa hann til. Tröllin hans Brians Tröll - Grufl og góð ráð er bók með texta og myndum eftir hinn snjalla Brian Pilkington. Guð- mundur Andri Thorsson ís- lenskaði. Þarna birtast tröllin hans Brians á glæsilegum mynd- um ásamt snjöllum ráðum sem þau langar að miðla til okkar mannanna. Góðgæti án sykurs Sætmeti án sykurs og sætuefna er bók eftir Nönnu Rögnvaldardóttur. Þar er að finna uppskriftir að fjölbreyttu góðgæti án sykurs og sætuefna. Meðal annars eru upp- skriftir að grautum, tertum, sós- um, búðingum og konfekti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.