Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 31
Vikublað 1.–3. september 2015 Menning 27
„ Íronía snertir eig-
inlega alla mann-
lega reynslu og flesta fleti
lífs okkar og samskipta.
Hágæða hunda- og kattafóður
hátt kjötinnihald – ekkert kornmeti
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
O
ona og Salinger er skáldsaga
eftir franska rithöfundinn
Frédéric Beigbeder, sem er
nýkomin út í góðri þýðingu
Friðriks Rafnssonar.
Hinn ungi Jerry Salinger,
sem gengur með rithöf-
undadrauma, kynnist
hinni kornungu Oonu,
dóttur Nóbelsskálds-
ins Eugene O‘Neill.
Salinger er kallaður í
herinn en Oona flyt-
ur til Hollywood, gift-
ist Charlie Chaplin
og eignast með hon-
um átta börn. Salinger
gerist rithöfundur og
skrifar hina stórkost-
legu skáldsögu Bjarg-
vættinn í grasinu og
verður einnig einn frægasti
einfari heimsins.
Beigbeder spinnur söguþráð úr
fremur takmörkuðum heimildum
og skáldar mjög í eyðurnar. Útkom-
an er sannfærandi. Honum tekst
yfir leitt vel að gæða persónur bók-
arinnar lífi, og þá sérstaklega Oonu.
Höfundurinn er beinlínis heillaður
af hinni ungu, fögru og dulúðugu
Oonu og innileg hrifning hans smit-
ast til lesandans.
Einfarinn Salinger verður aldrei
eins athyglisverð persóna og Oona.
Reyndar verður samband Oonu við
Chaplin að mörgu leyti mun áhuga-
verðara en samskipti hennar við
Salinger. Þarna veldur nokkru að
samtölin milli Oonu og Salingers
eru á köflum fremur tilgerðarleg
og bréf hans til hennar eru ekki
með því besta í bókinni. Mögnuð-
ustu kaflar bókarinnar hverfast þó
í kringum Salinger. Hann kynntist
hryllingi seinni heimsstyrjaldar
og kom í útrýmingarbúðir nasista.
Hann sá skelfilegar hörmungar
sem hann jafnaði sig
aldrei á. Þarna eru lýs-
ingar Beigbeder bein-
línis sláandi. Beigbeder
er að skrifa skáldsögu
en hætt er við að margir
lesendur gleymi því við
lesturinn og taki hana
sem sannleika svo til-
finningarík er frásögn
höfundar. Það má vel velta því fyrir
sér hvort kynnin af Oonu hafi raun-
verulega haft jafn djúpstæð áhrif
á Salinger og Beigbeder telur. Því
verður hins vegar ekki neitað að
hann hefur skrifað áhugaverða bók
sem er full af athyglisverðum auka-
persónum, eins og Ernest Hem-
ingway, Truman Capote, frægum
vinkonum Oonu úr samkvæmislíf-
inu og ekki síst Eugene O'Neill sem
afneitaði dóttur sinni.
Beigbeder, sem er ákaflega vel
skrifandi, blandar sér inni í frásögn-
ina á skemmtilegan og lifandi hátt,
talar til lesandans, segir frá sjálfum
sér og deilir ýmsum vangaveltum
sínum, eins og til dæmis um ást og
aldursmun, en 36 ára aldursmun-
ur var á Oonu og Chaplin, sem elsk-
uðu hvort annað heitt og innilega
alla tíð.
Greinilegt er að höfundur hefur
unað sér vel við að skrifa bókina og
lesendur ættu að hafa gaman af að
lesa hana. n
Hin heillandi Oona
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Oona og Salinger
Höfundur: Frédéric Beigbeder
Þýðandi: Friðrik Rafnsson
Útgefandi: Mál og menning
288 blaðsíður
Frédéric
Beigbeder
Er ákaflega vel
skrifandi.
Örlögin eru í þínum höndum
Dómur um tölvuleikinn Until Dawn á Playstation 4
H
ryllingsleikurinn Until Dawn
skartar stjörnum á borð við
Hayden Panettiere og Rami
Malek, sem líklega er best
þekktur fyrir túlkun sína á Elliott Ald-
erson í sjónvarpsþáttunum Mr. Ro-
bot. Þessi athyglisverði leikur kom út
á dögunum og er óhætt að segja að
framleiðendur leiksins, Supermassi-
ve Games, fari óhefðbundnar slóðir í
nálgun sinni.
Til að gera langa sögu stutta fjallar
Until Dawn um hóp vina sem ákveða
að halda út í óbyggðir til að heiðra
minningu félaga sinna sem hurfu við
dularfullar kringumstæður á sama
stað, einu ári fyrr. Fljótlega læðist sá
grunur að vinunum að ef til vill séu
þeir ekki einir og hefst barátta upp á
líf og dauða í kjölfarið.
Það sem gerir Until Dawn að
mörgu leyti einstakan er það að hver
ákvörðun sem þú tekur hefur áhrif á
það sem gerist á seinni stigum leiks-
ins. Þetta þýðir að hægt er að spila
leikinn nokkrum sinnum og upplifa
eitthvað nýtt í hvert einasta skipti –
jafnvel annan endi. Þetta er sérstak-
lega mikilvægt upp á endurspilun-
argildi þar sem Until Dawn skartar
engri netspilun.
Flott grafík og góð umgjörð er
til lítils ef söguþráðurinn og aðal-
persónurnar eru ekki trúverðugar.
Því er ekki fyrir að fara í Until Dawn
sem er afbragðsvel skrifaður en um-
fram allt skemmtilegur tölvuleikur
sem fær hárin til að rísa. Til að byrja
með virkaði spilunin, hvernig þú
stýrir persónunum, hálf stirðbusaleg
en hún vandist furðu fljótt.
Þeir sem hafa gaman af hryll-
ingsleikjum ættu að fá eitthvað fyrir
sinn snúð í Until Dawn. Mundu bara
að hafa ljósin slökkt. Örlögin eru í
þínum höndum. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Tölvuleikur
Until Dawn
Metacritic 79
Tegund: Hrollvekja
Spilast á: Playstation 4
Kúgunartæki og/eða byltingartól
n Kristinn Schram ritstjóri segir íroníu snerta alla mannlega reynslu
þess í samtímanum, fólk inn-
an úr háskólasamfélaginu bregst
við árásunum á ritstjórnarskrif-
stofur skoptímaritsins Charlie
Hebdo í byrjun ársins, lista-
maður og heimspekingur ræða
tengsl margræðni, áróðurs og
ritskoðunar í listaverkum þess
fyrrnefnda og fjórir fræðimenn
bregðast við vangaveltum Óttars
Proppé um notkun Besta flokks-
ins á íroníu. „Það eru fjórir fræði-
menn sem svara honum, meðal
annars út frá málefnum fatlaðra
og spyrja spurninga á borð við:
hvenær skaðar íronía frekar en
að vekja upp spurningar, hvenær
eflir hún róttæk viðhorf frekar en
að drepa þeim á dreif eða eyða
þeim.“
Húmorslaus þjóðernishyggja
„Íronísk samfélagsleg valdasam-
ræða í dag finnur sér í síaukn-
um mæli farveg innan listarinn-
ar,“ segir Kristinn. En ritstjórarnir
birta einmitt nokkrar myndir af
listaverkum íslenskra listamanna
sem þeir álíta íronísk eða óræð.
Þá boðar Kristinn til samtals um
meinta margræðni eða íroníu í
verkum Snorra Ásmundssonar.
„Hér birtist samtal sem ég átti
við Snorra og Hauk Má Helga-
son sem hefur tekið til um-
fjöllunar verk Snorra í Reykja-
vík Grape vine. Haukur taldi sig
greina andgyðingleg stef í verk-
inu Hatikva eftir Snorra, en Snorri
lítur á verk sitt sem svar við sam-
tímanum. Hann lítur á þetta sem
yfirlýsingu um að valdníðsla,
skoðanakúgun og ritskoðun verði
ekki liðin. Hann álítur sig vera að
beita háðinu sem viðbragði við
þessu,“ segir Kristinn og bendir á
að þetta sýni hversu hált fyrirbæri
íronían sé enda sé oft umdeilan-
legt hvort að hún sé til staðar eða
ekki.
„Það má eiginlega segja að
þeir séu í grundvallaratriðum
ósammála um hvort nokkur
íronía, í skilningnum margræðni,
sé yfirhöfuð til staðar í verkinu –
hvort margar merkingar séu til
staðar á sama tíma. Snorri sér
loðna og opna óræðni, en Hauki
finnst skorta þessa nauðsynlegu
margræðni. Haukur bendir að
sama skapi á hversu fjarverandi
slík margræðni hefur oftast verið í
pólitískum áróðri. Það er til dæm-
is áhugavert hversu íslensk þjóð-
ernishyggja – sem Snorri fjallar
til dæmis um í verki sínu Fram-
sóknarmaðurinn – hefur verið
húmorslaus fram eftir öldinni.
Þar vantar líka alla sjálfsgagn-
rýni og óræða merkingu,“ útskýrir
Kristinn. n
„ Íronían hefur
ólíka virkni eftir
því hvort hún er í hönd-
um hinna valdameiri eða
valdaminni. Það má nota
hana til að grafa undan
ríkjandi valdi en líka til að
viðhalda valdastöðu.
Margrætt eða einfalt? Snorri Ásmundsson beitir oft nöpru háði í verkum sínum - en er
háð Snorra íronískt eða fordómafullt?
Alvarleiki sögunnar Í verkinu Ahh
ekki vera með þennan kjánaskap fer Eva
Ísleifsdóttir kómískum höndum um sjálfið
og alvarleika sögunnar. Verkið er unnið upp
úr vefnaðarverki frá miðöldum, sem er svo
aftur endurgerð af málverki Edmunds Blair
Leighton. Mynd EvA ÍSlEiFSdóTTir