Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Page 25
10 sóknarmenn sem gætu bjargað arsenal Gonzalo Higuain Aldur: 27 ára Félag: Napoli Líkur: 5/10 Orðrómur var á kreiki í sumar að Napoli hefði hafnað 43,3 milljóna punda tilboði Arsenal í argentínska landsliðsmanninn. Arsene Wenger hefur að vísu tekið fyrir að tilboð hafi verið lagt fram. Í þeirri framherjakrísu sem Arsenal virðist vera í gæti Wenger snúið sér að Higuain sem er mikill markaskorari. Það er þó ljóst að engin skiptimynt dugar til að landa þessum stórlaxi. Edinson Cavani Aldur: 28 ára Félag: PSG Líkur: 7/10 Cavani hefur reglulega verið orðaður við Arsenal og það ekki að ástæðulausu. Cavani er frábær framherji en hefur þurft að standa í skugganum af Zlatan Ibrahimovic. Cavani skoraði 31 mark á síðustu leiktíð og 25 mörk á leiktíðinni þar á undan með Parísarliðinu. Þá hefur hann skorað 27 mörk fyrir landslið Úrúgvæ. Tilboð upp á 30–40 milljónir punda gæti nægt til að landa þessum öfluga leikmanni. Saido Berahino Aldur: 22 ára Félag: WBA Líkur: 3/10 Saido Berahino er í hópi efnilegustu framherja Englendinga og hann ku vilja reyna fyrir sér hjá stærra félagi. Beiðni hans um að vera seld- ur frá WBA var hafnað á dögunum en þessi 22 ára leikmaður fór fram á það eftir að Tottenham fór að sýna honum áhuga. Líkurnar á að Arsenal reyni að klófesta leikmanninn eru ekki ýkja miklar enda er Wenger sagður vilja fá reynslumeiri mann í framlínuna. Ólíklegri hlutir hafa þó gerst hjá Arsenal. Mario Götze Aldur: 23 ára Félag: FC Bayern Líkur: 4/10 Götze er kannski ekki hrein- ræktaður framherji en hefur þó oft spilað í hinni svokölluðu „false-9“ stöðu hjá Bayern með ágætum árangri. Samkeppnin um stöður í Bayern-liðinu er mikil og Götze hefur verið orðaður við önnur félög, þar á meðal Arsenal. Götze kæmi með aukinn sköpunar- kraft í Arsenal-liðið sem ætti að skila sér í fleiri mörkum ef allt er eðlilegt. Thomas Muller Aldur: 25 ára Félag: FC Bayern Líkur: 3/10 Thomas Muller var á dögunum orðaður við Manchester United en forsvarsmenn Bayern hafa þver- tekið fyrir það að leikmaðurinn verði seldur til Manchester United. Eins og dæmin hafa sannað er stað- reyndin samt sú að allt er falt fyrir rétt verð. Líklega myndu 50 milljónir punda duga fyrir þennan ótrúlega lunkna framherja. Zlatan Ibrahimovic Aldur: 33 ára Félag: PSG Líkur: 3/10 Zlatan hefur spilað á Ítalíu, Spáni og Frakklandi en aldrei á Englandi. Forsvarsmenn Parísarliðsins eru sagðir opnir fyrir því að samþykkja tilboð í kappann, Zlatan þiggur há laun og hann á líklega ekki mörg ár eftir á toppnum. Líklega myndi Arsenal ekki vilja bjóða hon- um meira en eins árs samning sem Zlatan myndi að öllum líkindum hafna. Loic Remy Aldur: 28 ára Félag: Chelsea Líkur: 5/10 Arsenal þarf ekki endilega að leita langt í framherja- leit sinni. Loic Remy, leikmaður Chelsea, virðist ekki vera framarlega í goggunarröðinni á Stamford Bridge og er hann sem stendur þriðji kostur í framlínuna á eftir Diego Costa og Radamel Falcao. Remy er öflugur markaskorari sem gæti verið góð- ur – og tiltölulega ódýr – kostur fyrir Arsenal. Papiss Cisse Aldur: 30 ára Félag: Newcastle Líkur: 3/10 Papiss Cisse er nokkuð vanmetinn leikmaður sem gæti reynst góð skamm- tímalausn fyrir Arsenal. Hann er ekki lengur fyrsti kostur í framlínu Newcastle-liðsins þrátt fyrir að skora alltaf sinn skerf af mörkum. Hann sló í gegn á sinni fyrstu leiktíð með Newcastle og skoraði 11 mörk í 22 leikjum á þeirri síðustu þó að meiðsli hafi sett strik í reikninginn. P.E. Aubameyang Aldur: 26 ára Félag: B. Dortmund Líkur: 1/10 Talið er að Arsenal hafi lengi haft augastað á Aubameyang, eða allt síðan hann sló í gegn hjá Saint-Etienne í Frakklandi tímabilið 2012/13. Sumarið 2013 fór þessi skotfljóti leikmaður til Dortmund þar sem hann hefur skorað 48 mörk í 100 leikjum, þar af 6 mörk í 6 leikjum á þessu tímabili. Því miður fyrir Arsenal skrifaði Aubameyang nýlega undir nýjan samning við Dortmund-liðið og virðist ekkert fararsnið vera á þessum öfluga leikmanni frá Gabon. Olivier Giroud Aldur: 28 Félag: Arsenal Líkur: 8/10 Síðasti kosturinn og sá líklegasti fyrir Arsenal í þessari upptalningu er að halda sig við þá leikmenn sem liðið hefur. Olivier Giroud er í dag fyrsti kostur í fremstu víglínu hjá Arsenal. Frakkinn hefur staðið sig ágætlega en stundum mátt þola sinn skerf af gagnrýni fyrir að fara illa með fær- in. Liðið þarf að fá framherja sem getur breytt leikjum og unnið þá upp á eigin spýtur. Olivier Giroud er því miður ekki þannig leikmaður. Arsenal hefur farið rólega af stað í ensku úrvalsdeildinni og aðeins skorað þrjú mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum. Það má því jafnvel búast við fjöri á Emirates í dag, þriðjudag, en sem kunnugt er verður lokað fyrir félagaskipti í ensku úrvalsdeildinni í dag. Breska blaðið Telegraph tók saman lista yfir tíu framherja sem Arsenal gæti keypt fyrir lok gluggans eða í janúar. Nýr 2015 Renault Trafic sendibíll Eigum á lager vel útbúna bíla Aukabúnaður: Hliðarhurðir á báðum hliðum - Bakkskynjari - Hraðastillir - Handfrjáls búnaður fyrir síma - Loftkæling - USB tengi - flottara Stereo - Plata í botni - skilrúm með glugga - Gluggar í afturhurðum Okkar verð 3.396 þús á stuttum bíl án vsk. Vikublað 1.–3. september 2015 Sport 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.