Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 36
Vikublað 1.–3. september 201532 Fólk Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af „Þetta fer að verða gott“ Leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir Koppel er komin átta mánuði á leið É g hef það fínt en þetta fer að verða gott,“ segir leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir Koppel sem er gengin átta mánuði með sitt fyrsta barn. Halla, sem býr í London ásamt nýbökuð- um eiginmanni sínum, var stödd hér á landi nýlega en er nú farin aft- ur út. Hún segist hafa fengið leyfi hjá lækni til að fljúga. „Ég fór í són- ar daginn áður en ég kom og þá var ekkert því til fyrirstöðu. En þegar ég kem heim set ég í bakkgír. Maður má ekki keyra sig alveg út.“ Kvíðir fæðingunni Halla, sem ætlar að eiga barnið í London, viðurkennir að kvíða örlítið komandi átökum. „Ég ætla að reyna að gera þetta á sem öruggastan hátt. Ég fór um daginn í svona túr um spítalann, sem er mjög stór og með alls konar neyðardeildum. Mér leið aðeins betur eftir að hafa séð það. Þarna eru líka vatnsböð, ljós, jógamúsík og hitt og þetta en maður er ekkert að planleggja eitthvað sem maður veit svo ekkert hvernig fer. Ég ætla bara að sjá hvernig mér líður og hvernig stemmingin verður í stað þess að vera búin að gera skriflegt plan sem gengur svo kannski ekk- ert eftir.“ Lúlla litla Halla og eiginmaður hennar, Harry, eiga von á stelpu. „Það er heljar brussa á leiðinni, Louisa litla. Við köllum hana Lúllu litlu. Það kom ekkert annað en mömmunafn til greina. Einhvern veginn verður maður að fá konuna til að koma og passa.“ Vantar vöggu Hún viðurkennir að þau hjónin bíði erfingjans með mikilli eftir- væntingu. „Núna er spennan í há- marki. Það snýst allt um þetta. Það er samt enn ýmislegt sem við eigum eftir að kaupa, til dæmis vagga, bað og einhverjar slíkar nauðsynjar sem ég geri mér ekki grein fyrir að ég þurfi. Ég þyrfti eiginlega að fá lista yfir þetta allt saman. Annars er karl- inn minn mjög duglegur, stúderar kerrur eins og sportbíla og hjólar í málin. Nú fer þetta að skella á og við erum svo tilbúin. Burtséð frá að við erum ekki komin með vöggu,“ segir hún brosandi að lokum. n Verðandi foreldrar Halla og Harry gengu í það heilaga í desember. „Annars er karlinn minn mjög duglegur, stúderar kerrur eins og sportbíla og hjólar í málin. Hæfileikarík Halla starfar sem leikkona, söngkona, dansari og fyrirsæta. Mynd ÞorMar Vignir gunnarsson indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Sonur Snorra og Heiðu fæddist fyrir tímann V ið höfum það bara nokkuð gott. Þetta er allt á uppleið,“ segir tónlistarmaðurinn Snorri Snorrason en hann og Aðalheiður Ólafsdóttir, betur þekkt sem söngkonan Heiða, eignuðust son á dögunum eftir aðeins 33. vikna meðgöngu. Sá stutti var tíu merkur og bragg- ast vel að sögn Snorra. „Hann var bara nokkuð stór. Hann er ótrúlega dugleg- ur. Þetta hefur gengið vonum framan,“ segir Snorri sem er nú orðinn fjögurra barna faðir en sá litli er fyrsta barn Heiðu. „Tvíburarnir mínir fæddust líka fyrir tímann og voru í raun mun verr staddir en þessi. Maður hefur því kynnst þessu áður. Þeir urðu að vera á vökudeild í þrjá mánuði og voru ekki nema fimm og hálf og sex merk- ur. Þessi er helmingi stærri og er strax laus úr hitakassa.“ Snorri segir með- gönguna hafa gengið vel. „Þetta gerð- ist allt hratt. Hún fór bara af stað og hann var fæddur tveimur tímum síð- ar. Sem betur fer náðum við á sjúkra- húsið og vorum alltaf í góðum hönd- um. Hann hefur bara greinilega verið að flýta sér í heiminn, drengurinn,“ segir Snorri sem er á fullu að undir- búa heimkomu mæðginanna. „Ég veit ekki hvenær hann fær að fara heim en við vorum ekki búin að græja allt. Við vorum aðeins byrjuð en það bjóst enginn við þessu. Nú fer maður bara á fullt í það,“ segir Snorri og er rokinn af stað í ungbarnadótsleiðangur. n indiana@dv.is Flottur strákur Snorri á nú fjóra flotta stráka. Mynd Úr einKasaFni „Nú fer maður bara á fullt“ Hamingja Litli sonur Heiðu og Snorra kom í heiminn á 33. viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.