Skagfirðingabók - 01.01.2004, Page 136
SKAGFIRÐINGABÓK
þessum slóðum við foma almannaleið er stórt bjarg við veginn
og upp á það skal ferðamaðurinn leggja þrjá steina af hestbaki.
Steininn heitir Greiði, annar af tveim nyrðra. Hinn er á
Hrafnadal hjá Spákonufelli, þar sem farið er út á Skagaheiði.
Greiðanafnið má vera til marks um fjölfarnar götur.36
III. Fornbýlið Þorljótsstaðir
Löngum hefur þótt gott undir bú í Goðdölum. Vesturdalur er
grasgefinn í byggð niðri, einkum austanverður, en þurrlendari
og gróðurminni að vestan. Hofsá rennur eftir meginhluta dals-
ins sunnan úr óbyggðum og fellur í Jökulsá vestari skammt
fyrir sunnan Goðdali, sem til skamms tíma var yzti (ytri)
bærinn í Vesturdal, vestan Jökulsár. Fornar heimildir greina
aðeins frá einu byggðu bóli vestan Hofsár, landnámsjörðinni
Hofi. Eftir heimsstyrjöldina síðari voru reist tvö býli úr hinu
forna heimalandi Hofs: Hofsvellir 1944 og Vesturhlíð níu
árum síðar.37 Oll lögbýli í dalnum, sem hafa verið byggð á
síðari öldum, eru það enn (1990) nema Þorljótsstaðir, sem fóru
í eyði 1943. Bakkakot austan Jökulsár er að vísu ekki lengur í
býlatölu, en í landi þeirrar jarðar reis nýbýli árið 1958, Byrgis-
skarð.38 f landi Goðdala reis 1952 býlið Hverhólar.39 Hin fornu
lögbýli í Vesturdal austanverðum, Bjarnastaðahlíð, Litlahlíð og
Giljir40, eru í byggð. - Hér er enginn afdalabragur á búnaðar-
háttum.
Hofsafrétt heitir fyrir framan heimalönd Þorljótsstaða og
Hofs allt suður að Hofsjökli og takmarkast að austan af Jökulsá
eystri og Jökulsá vestari á hinn bóginn. Hof og Þorljótsstaðir
hafa verið innstu byggð ból í dalnum, sem elztu heimildir
ritaðar nefna. Munnmæli frá síðari tímum herma frá fjölda
byggðra bóla, en enginn veit sögu þeirra. Örnefni og tættur
eru til vitnis um sum.
Þorljótsstaða er ekki getið í fslendinga sögum né heldur í
134