Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016FRÉTTIR VIÐSKIPTAFERÐALÖG Það getur verið í meira lagi snúið að pakka rétt fyrir viðskiptaferðalagið. Miklu skiptir að pakka sem minnstu og helst láta allt rúmast í handfar- angrinum. Þannig má skjótast í gegn- um flugvellina og rjúka með lestum og strætisvögnum beinustu leið á fundi eða upp á hótel. En um leið verður að passa að fatn- aðurinn, og þá jakkafötin alveg sér- staklega, haldist fallegur. Ekki dugar að taka upp úr töskunum krumpaðar skyrtur og jakka sem þarf svo að bisa við að reyna að pressa uppi á hótel- herbergi áður en haldið er á fyrsta fundinn. Margir grípa til þess ráðs að fjár- festa í jakkafatapoka þar sem má láta vinnufötin liggja slétt og lágmarka fellingarnar. Gallinn við þannig poka er að þeir eru fyrirferðarmiklir og þarf helst að halda á þeim alla leið á áfangastað; í besta falli koma þeir með ól sem má slengja yfir aðra öxlina. Taskan frá Vocier leysir vandann með einstaklega sniðugri hönn- un. Má lýsa töskunni þann- ig að í miðjunni er kjarni þar sem skóm og skyrtum er komið fyrir. Eins konar jakkafatapoka er síðan vafið ut- an um þennan kjarna, og útkoman er taska sem er nokkurn veginn svipuð í laginu og aðrar handfarangurstöskur, með hjólum og handfangi. Kaupa má sérhannaða tösku undir snyrtivörurnar (með glæru plasti á annarri hliðinni, fyrir öryggisleitina), og hægt er að taka snyrtivörurnar úr töskunni án þess að vefja jakkafata- pokanum utan af kjarnanum. Þýðir þetta að ekki þarf að standa í heilmik- illi pökkunaraðgerð til að komast í gegnum röntgenvélar flugvallanna. Í útdraganlegu handfanginu er líka lítill vasi sem rúmar vegabréf og far- síma. Best af öllu er svo kannski að task- an er einstaklega snotur og fæst í slit- sterku svörtu gerviefni, svörtu leðri og brúnu. Vocier-taska með snyrtivörupoka kostar tæpa 800 dali hjá www.vocier- .com ai@mbl.is Úthugsuð taska fyrir þá sem ferðast með jakkaföt Það verður aldeilis nóg að gera í versluninni hjá Gísla Sigurbergs- syni í desember. Jólaösin er þó bara byrjunin segir hann og að það verði áhugavert að sjá áhrifin af komu Costco. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Að takast á við risana á mat- vörumarkaðnum alla daga. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Námskeið í verkefnastjórnun og leiðtogafærni sem dr. Haukur Ingi Jónasson og dr. Helgi Þór Ingason kenndu veturinn 2012- 3013. Var mjög skemmtilegt og gagnlegt. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif hvernig þú starfar? Mamma og pabbi. Mamma mín féll frá 7. desember 2009 og var einstök kona sem vann alla tíð í búðinni með okkur. Mamma og pabbi kenndu mér þolinmæði- ,vinnusemi, heiðarleika, og að sníða sér stakk eftir vexti, trúa á konseptið og hafa kjark og úthald til að fylgja því eftir, og að forðast skuldsetningu. Hvernig heldurðu við þekkingu þinni? Hlusta á viðskiptavini og fylgist með hvað aðrar búðir eru að gera . Gott og náið samstarf við starfs- fólk og birgja skiptir líka miklu máli. Hugsarðu vel um líkamann? Ég spila golf, skíða, hjóla og mæti 3-5 sinnum í viku í Hress lík- amsrækt. Fer einu sinni í viku í yoga sem er ótrúlega gott fyrir lík- ama og sál. Ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa, hvert væri drauma- starfið? Færi í eitthvað allt annað, eins og útivinnu á sumrin; kannski garðyrkju. Ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu, hvað myndirðu læra? Íslensku. Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg. Hverjir eru helstu kostirnir og gallarnir við rekstrarumhverfið? Gallar: Það að eitt fyrirtæki er með yfir 60% markaðshlutdeild, og hefur vald yfir markaðnum sem er ekki gott fyrir okkur. Kostir: skemmtilegt og krefjandi um- hverfi sem heldur okkur á tánum. Ef þú værir einráður í einn dag, hvaða lögum myndirðu breyta? Ég myndi fikta aðeins í skatta- lögunum. SVIPMYND Gísli Þór Sigurbergsson verslunarmaður og verðlagsstjóri í Fjarðarkaupum Lærðu vinnusemi og heiðar- leika af pabba og mömmu Morgunblaðið/Ófeigur Gísli hefur tamið sér að fara vikulega í jóga til að næra líkama og sál. NÁM: Kláraði grunnskóla 1991; lauk stúdentsprófi frá Flensborg- arskólanum 1986 og prófi í við- skiptafræði frá HÍ 1995. SÖRF: Hef verið viðloðandi starf- semi Fjarðarkaupa allt frá stofnun. Mitt fyrsta verk var að ganga með dreifimiða í hús í Hafnarfirði og Garðabæ þar sem tilkynnt var um opnun nýrrar verslunar að Trönu- hrauni 8 þar sem búðin var fyrst til húsa. Ég vann líka í búðinni með námi og stundum á sumrin. For- eldrar mínir hvöttu mig reyndar til að prófa eitthvað annað. Vann í ál- verinu eitt sumar, blikksmiðju og eitthvað fleira. Verið fastráðinn frá 1995. ÁHUGAMÁL: Helsta áhugamál mitt er fjölskyldan, við ferðumst mikið saman innanlands enda bú- um við í fallegu landi. Við eigum sumarhús í Úthlíð og reynum að vera þar saman eins mikið og við getum. Ég spila golf með góðum vinum og konan og Kamilla eru al- veg að fá bakterínu. Svo förum við saman á skíði, fjölskyldan. FJÖLSKYLDUHAGIR: Makinn er Hafdís Sigursteinsdottir hjúkr- unarfræðingur og börnin þrjú: Ingibjörg fædd 1993, Magdalena fædd 1998 og Kamilla fædd 2004. HIN HLIÐIN Spennandi en um leið ógnvekjandi lesning Mögnuð bók

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.