Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 7ATVINNULÍF
Plastviðgerðir
Rafgeymar
Dælur
Varahlutir
Vörur, vélbúnaður
og þjónusta fyrir minni fiskibáta
Hlíðarenda | 602 Akureyri | 462 3700 | baldurhalldorsson.is
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
Skipstjórastólar Olíuhreinsikerfi
Rafalar Rúðuþurrkur
Pawel flutti til Bolungarvíkur
fyrir átta árum þegar hann var
sextán ára, þar sem faðir hans
starfaði sem sjómaður og for-
eldrar hans og systir búa enn.
Eftir að hafa klárað grunnnámið í
Menntaskólanum á Ísafirði fór
hann í Iðnskólann í Hafnarfirði,
þar sem hann lærði til renni-
smiðs. Lífið á Íslandi segist hann
kunna vel við. „Ég er mjög glaður
hérna, fólkið er gott og það er
bara frábært að vera hérna.“
Í starfi sínu hjá Össuri hefur
Pawel umsjón með smíði á ýmis-
konar íhlutum fyrir gervilima-
framleiðslu fyrirtækisins. Tækja-
kosturinn er háþróaður og Pawel
segir að það sé stór hluti af starf-
inu að tileinka sér nýja hluti. „Ég
hef gaman af því að læra á tölvu-
kerfi og tölvustýringar,“ segir
Pawel og hann sér ekki eftir því
að hafa lagt rennismíðina fyrir
sig, þótt hann viðurkenni að það
hafi verið hálfgerð tilviljun.
Össur framleiðir gervilimi fyrir
fólk sem til að mynda hefur lent í
alvarlegum slysum. Pawel segir
það sérstaklega ánægjulegt að
starfa hjá slíku fyrirtæki. „Það
sem við gerum hérna er mikil-
vægt.“
Bardagamaður eftir vinnu
Pawel æfði box þegar hann bjó
á Vestfjörðum og þegar hann
flutti til borgarinnar fór hann að
æfa hjá Mjölni og er kominn í
keppnislið félagsins í blönduðum
bardagaíþróttum. „Ég er núna að
sækja um íslenskan ríkisborgara-
rétt til að eiga möguleika á að
keppa fyrir Ísland,“ segir Pawel,
sem hefur keppt í hnefaleikum
með góðum árangri sem fæst
ekki án áreynslu. „Ég reyni að
æfa tvisvar á dag, fyrir vinnu og
eftir vinnu, sex daga í viku.“
Hann segir íþróttina ólíka öllu
öðru. „Þegar ég er kominn í búrið
er ég bara rólegur. Ég hætti að
hugsa um allt annað.“ Strategí-
una segir hann leika stórt hlut-
verk. Hver hreyfing þurfi að vera
úthugsuð.
En hvað segir fjölskyldan?
„Mamma skilur þetta ekki,
pabbi getur kannski fylgst með.“
Hann segir það þó ekki koma að
sök og er staðráðinn í að keppa
fyrir hönd Íslands á Evrópu-
mótinu í MMA. Hann fær mikinn
stuðning frá félögum sínum í
Mjölni, sem hann segir eins og
eina stóra fjölskyldu.
Bardagamaður eftir vinnu
Pawel Uscilowski starfar
sem rennismiður hjá
Össuri. Hann flutti til
landsins frá Póllandi og
dreymir um að fá ríkis-
borgararétt til að geta
keppt fyrir hönd Íslands í
blönduðum bardaga-
íþróttum.
Ljósmynd/skjáskot af mbl.is.
Pawel segir það sérstaklega ánægjulegt að starfa hjá Össuri. „Það sem við gerum hérna er mikilvægt.“
Össur hefur unnið sér sess sem eitt af flaggskipum íslensks at-
vinnulífs. Frá stofnun árið 1971 hefur velgengni fyrirtækisins ver-
ið lyginni líkust og hefur það tekið yfir fjölmörg erlend fyrirtæki í
gegnum tíðina. Nú starfa um 2.800 manns hjá fyrirtækinu, sem
er með starfsstöðvar í 20 löndum og er í fararbroddi á heimsvísu
í framleiðslu á stoðtækjum, spelkum og stuðningsvörum. Á síð-
asta ári skilaði félagið 6,6 milljörðum í hagnað og seldi vörur fyrir
483 milljónir dollara, eða 62,9 milljarða.
Sigurganga í 45 ár
FYLGSTU MEÐ
FAGFÓLKINU Á MBL.IS
NÝSKÖPUN
Íslenska sprotafyrirtækið Data-
smoothie hlaut á þriðjudag verðlaun
Market Research Society í Bret-
landi. Árlega verðlaunar MRS fram-
úrskarandi fyrirtæki og þykja verð-
launin þau virtustu í breska
markaðsrannsóknaiðnaðinum. Hlaut
Datasmoothie ASC/MRS Techno-
logy Effectiveness Award.
Í maí á síðasta ári birti Við-
skiptaMogginn viðtal við Geir
Freysson, framkvæmdastjóra Data-
smoothie, en fyrirtækið hafði þá ný-
lega flutt höfuðstöðvar sínar til
Bretlands og meðal annars gert
samstarfssamning við alþjóðlega
viðhorfsmælingafélagið YouGov.
Datasmoothie þróar forrit sem
auðveldar greiningu gagna og birt-
ingu niðurstaðna. „Okkar markmið
er að gera hverjum sem er, óháð
tæknikunnáttu, kleift að segja sögu
með gögnum á vefnum,“ segir Geir
og bætir við að verðlaunin séu mikill
heiður fyrir fyrirtækið. „Þetta eru
hálfgerð Óskarsverðlaun í markaðs-
rannsóknum,“ segir hann.
ai@mbl.is
Geir Freysson er framkvæmdastjóri
hugbúnaðarsprotans Datasmoothie.
Sproti hlýtur
markaðs-
verðlaun
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?