Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Sogavegi 3
Höfðabakka 1
Sími 555 2800
FISKIBOLLUR
ÝSA Í RASPI
2 fyrir 1
Kaupir 1 kg - færð 2 kg
Gamaldags hakkbollur - farsbollur
JÓLASÍLDIN
er komin
1.790 kr./kg
Vegna öryggisbrests sem kom upp í Tetra-fjar-
skiptakerfi embættis ríkislögreglustjóra og
slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var ákveðið
að ráðast í endurnýjun á og fjárfesta í nýjum tal-
stöðvum sem eru dulkóðaðar, þannig að útilokað
er að brjóta sér leið inn í kerfið.
Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið
um Skógarhlíð í Reykjavík í gær, þar sem flestar
stofnanir sem koma að leit og björgun eru til
húsa, var Guðmundur Freyr Jónsson, aðstoðar-
tæknistjóri Tetra, önnum kafinn við að taka á
móti sendingu með nýju talstöðvunum.
Útilokað verður að brjóta sér leið inn í fjarskiptakerfið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýjar og dulkóðaðar talstöðvar teknar upp
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Það er ekki endilega aðstaðan sjálf
heldur staðsetningin og aðbúnaður-
inn sem við höfum fyrst og fremst
verið að benda á,“ segir Atli Viðar
Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og
mannúðarsviðs Rauða kross Íslands,
um aðstöðu fyrir hælisleitendur í
Víðinesi og Arnarholti.
„Bæði vantar innviði á þessum
stöðum og bæta þyrfti samgöngur
því í dag er þetta ekki spurning um
það hvað fólk hefur þarna fyrir stafni
heldur frekar hvað það hefur ekki
fyrir stafni. Það mætti huga betur að
sameiginlegu rými á stöðunum og
hafa eitthvað fyrir fólk að gera, ein-
hverja iðju. Þá þyrfti að auka að-
gengi að almennri heilsugæslu og
huga betur að andlegri líðan hælis-
leitenda og hafa aðgengilegri úrræði
fyrir þá sem þau þurfa,“ segir Atli.
Hafa áratugalanga reynslu
Hann segist telja heppilegra að
sveitarfélögin sinni því verkefni að
annast þá sem hingað sækja hæli
fremur en Útlendingastofnun og vís-
ar þar til reynslu sveitarfélaganna.
„Félagsþjónusta sveitarfélaganna
hefur áratuga reynslu af því að ann-
ast fólk sem er í viðkvæmri stöðu, en
þjónusta Útlendingastofnunar hefur
verið byggð upp á allra síðustu árum
og stofnunin er ekki með sömu þekk-
ingu og dýpt þó að starfsfólk hennar
sé að gera allt sitt besta.“
Segir staðsetninguna og að-
búnaðinn vera vandamálið
Telur sveitarfélög
vera heppilegri en
Útlendingastofnun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víðines Þar eru litlir innviðir og
takmarkaðar samgöngur.
„Allir eru að stinga saman nefjum og
taka stöðuna,“ segir Logi Már Ein-
arsson, formaður Samfylkingarinnar,
spurður um mögulegar stjórnar-
myndunarviðræður í kjölfar þess að
Píratar skiluðu stjórnarmyndunar-
umboðinu til forseta Íslands á mánu-
daginn. „Þingstörfin einfalda ekki
viðræður á milli flokka en það gæti
verið áhugavert að sjá hvernig þing-
menn einstakra flokka vinna saman í
þingnefndum og hvort það leiði til
einhvers.“
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
segir Bjarna Benediktsson, formann
flokksins, hafa fullt umboð frá þing-
flokknum til að ræða við formenn ann-
arra stjórnmálaflokka um myndun
nýrrar ríkisstjórnar. „Þingmenn
flokksins einbeita sér að þingstörfum
enda nauðsynlegt að ljúka stóru þing-
málunum fyrir jól og til þess þurfa
menn að halda vel á spöðunum en ljóst
er eftir þessar yfirferðir að menn
þurfa að vanda sig enn frekar til að ná
málamiðlunum í þeim málum sem
standa út af í viðræðum flokkanna.“
Sigurður Ingi Jóhannsson, for-
sætisráðherra og formaður Fram-
sóknar, sagði í fréttum RÚV í gær-
kvöldi að niðurstöður kosninganna
væru ákall um samstarf Sjálfstæð-
isflokks og VG. Hann væri tilbúinn til
að koma að slíku samstarfi.
Allir flokk-
ar að tala
saman
Þingmenn einbeiti
sér að þingstörfum
Útlit er fyrir
áframhaldandi
lægðagang fyrir
og um helgina
með tilheyrandi
veðra- og hita-
brigðum. Kemur
það fram í hug-
leiðingu veður-
fræðings á vef
Veðurstofu Ís-
lands. Á sama
stað er varað við stormi á austan-
verðu landinu síðdegis á morgun og
annað kvöld, fyrst suðaustanlands.
Stormurinn fylgir nýrri lægð
sem kemur upp að suðaustur-
ströndinni og gengur yfir landið.
Henni fylgir rigning. Vestantil
verður hægari vestlæg átt og kald-
ara loft, jafnvel slydda. Suðlæg átt
verður um helgina með rigningu og
heldur mildara veðri í bili.
Lægðirnar hringsóla
áfram suður í hafi
Blástur Útlit er fyr-
ir rok og rigningu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hluti landeigenda Reykjahlíðar í Mý-
vatnssveit vill að máli Landverndar
og Fjöreggs þar sem gerð er krafa
um friðlýsingu lands þeirra í þeim til-
gangi að koma í veg fyrir línulagnir
Landsnets verði vísað frá dómi.
Fimm eigendur rúmlega 67% lands
Reykjahlíð krefjast þess að fá að
gæta hagsmuna sinna í héraðsdóms-
máli sem umhverfissamtökin höfðuðu
gegn ríkinu í síðasta mánuði. Í þeim
tilgangi hafa þeir lagt fram svokallaða
meðalgöngustefnu.
Í málinu sem landeigendur vilja
komast inn í gera Landvernd og Fjör-
egg þær kröfur á hendur ríkinu að
það ljúki endanlega friðlýsingu
ákveðinna landsvæða. Landeigendur
vekja athygli á því að í stefnunni sé
ekki að finna lýsingu á því hvort frið-
lýsingin hefði í för með sér takmark-
anir á framkvæmda- eða nýtingar-
heimildum landeigenda á landi sínu
eða hvernig friðlýsingunni skuli hátt-
að að öðru leyti.
Gegn hagsmunum landeigenda
Í meðalgöngustefnunni segir að
Landvernd og Fjöregg hafi ekki sýnt
fram á að þau eigi lögvarinna hags-
muna að gæta en gangi á hinn bóginn
gegn bæði stjórnarskrárvörðum,
beinum eignarrétti landeigenda og
stjórnsýslureglum með kröfum sínum
og málarekstri.
Sömu umhverfissamtök hafa kært
framkvæmdaleyfi sveitarfélaganna til
handa Landsneti til að leggja há-
spennulínur um þeirra land, á leiðinni
milli Þeistareykjavirkjunar og
Kröflu. Taka þeir fram í stefnunni að
langflestir landeigendur hafi sam-
þykkt umrædda línulögn. Fulltrúar
þeirra hafi staðið að ákvörðunum með
Landsneti um val á besta línustæðinu
út frá náttúruverndarsjónarmiði.
Hafi allur sá undirbúningur, vinna og
framkvæmd verið til fyrirmyndar.
Landeigendur segja að það hafi
komið á óvart þegar Landsvernd
kærði línustæðið og krafðist annars
stæðis. „Ef sú kröfugerð nær fram að
ganga myndi það hafa í för með sér
nýtt línustæði og þar með tvöfalt jarð-
rask með afleiddu aukatjóni á jarð-
myndunum á svæðinu.“
Landsnet hefur ekki getað hafið
framkvæmdir í Leirhnjúkshrauni
vegna þess að minnihluti landeigenda
hefur neitað að afhenda landið sem
Landsnet hefur fengið heimild til að
taka eignarnámi. Þeir landeigendur
sem vilja komast inn í mál Land-
verndar eiga ekki aðild að því deilu-
máli.
Mótmæla friðlýsingarkröfu
Eigendur 67% lands Reykjahlíðar vilja fá að gæta hagsmuna sinna í máli Land-
verndar gegn ríkinu Segjast hafa staðið að ákvörðun Landsnets um línuleið
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Kröflulína Landsnet og landeig-
endur völdu línuleiðina saman.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.