Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 til íhugunar fyrir hvern dag ársins 366 íhuganir, ýmist saltar eða sætar, sem skilja eftir mismunandi eftirkeim hjá lesandanum. Hér er íhugað um viðfangsefni daglegs lífs eins og kvíða, reiði, samskipti, tilgang, gleði, þakklæti, trú og efa, kærleika og ást. SKÁLHOLTSÚTGÁFAN kirkjuhusid.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íbúðalánasjóði (ÍLS) hefur gengið vel að selja fasteignir sínar það sem af er árinu. Salan er í fullu samræmi við áætlanir, að sögn Ágústs Kr. Björnssonar, forstöðu- manns fullnustueigna hjá ÍLS. Í byrjun ársins var gert ráð fyrir að selja 900 eignir á árinu. Hinn 8. desember síðastliðinn var búið að selja 859 eignir. Íbúðalánasjóður átti 1.348 eignir hinn 1. janúar síðastliðinn. Það sem af er árinu hafa 207 nýjar fullnustueignir bæst í eignasafnið, samkvæmt skriflegu svari frá Ágústi. Hinn 8. desember sl. átti ÍLS því samtals 696 eignir. Góð sala á Suðurnesjum „Góð sala hefur verið á flestum markaðssvæðum og í einstökum landshlutum. Áberandi að fast- eignamarkaður á Suðurnesjum hefur verið góður og mikil sala eigna hefur verið þar. Þá hefur sala eigna ÍLS gengið vel á flestum svæðum landsins. Salan hefur verið jöfnum hönd- um úr öllu eignasafninu, jafnt eign- ir í góðu ástandi sem eldri eignir sem þarfnast viðhalds,“ segir í svari Ágústs. Mikill meirihluti fasteignasala vinnur fyrir ÍLS að sölu eigna á grundvelli samstarfssamnings ÍLS við Félag fasteignasala. Samning- urinn kveður m.a. á um að fé- lagsmenn Félags fasteignasala hafi umsjón með sölu eigna ÍLS. Reynslan af þessu samstarfi er góð, að sögn ÍLS. Þannig hafa fast- eignasölurnar selt 2.532 eignir ÍLS frá upphafi ársins 2008 til 8. des- ember sl. Eignir þessar dreifast um allt landið. Kaupendur þeirra hafa aðallega verið einstaklingar og fjölskyldur sem kaupa eignirnar til búsetu. Það er um 78% seldra eigna ÍLS á þessu tímabili. Á meðfylgjandi töflu má sjá skiptingu eignanna eftir tegundum byggt á upplýsingum úr fasteigna- skrá. Búinn að selja 859 fasteignir á árinu  Sala eigna Íbúðalánasjóðs gengur vel  Átti 1.348 eignir í byrjun ársins  207 bættust við á árinu  Á nú 696 eignir Morgunblaðið/Ómar Fasteignir Eignasafn Íbúðalánasjóðs hefur minnkað mikið á árinu 2016. Sala fasteigna í eigu sjóðsins hefur gengið samkvæmt áætlun. Íbúðir Íbúðalánasjóðs eftir landshluta og tegund eigna 8. desember 2016 Einbýli Fjölbýli Ómerkt Parhús Raðhús Tvíbýli Samtals Höfuðborgarsvæðið 6 37 2 12 57 Norðurland eystra 27 9 1 2 10 49 Norðurland vestra 8 2 1 3 14 Reykjavík 1 49 2 3 9 64 Suðurland 40 20 8 16 20 24 128 Suðurnes 61 31 8 22 19 12 153 Vestfirðir 26 2 5 11 44 Vesturland 32 28 2 21 4 16 103 Samtals 230 200 21 65 71 109 696 Heimild: Íbúðalánasjóður Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ef sú túlkun veiðiréttarhafa stenst, að lax sem er sleppt eftir veiði skuli teljast í hvert sinn sem hann veiðist með í veiðitölum, mun innsti hluti Ísafjarðardjúps lokast fyrir sjókvía- eldi á laxi af norskum uppruna. Mun það hafa áhrif á áform Hraðfrysti- hússins - Gunnvarar (HG) sem er með sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi og hefur fengið starfsleyfi til mikillar aukningar, meðal annars á hinu um- deilda svæði. Landssamband veiðifélaga hef- ur kært til úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála útgáfu starfsleyfis sem Umhverfisstofnun veitti Háafelli ehf., dótturfélagi HG, í lok október sl. Í leyfinu felst að HG getur aukið mjög sjókvíaeldi sitt í Ísafjarðardjúpi, framleitt 6.800 tonn af regnbogasilungi og 200 tonn af þorski. Ósk fyrirtækisins um að ala lax í stað silungs er jafnframt til meðferðar hjá leyfisveitendum. Þegar Umhverfisstofnun kynnti áform sín um að veita starfsleyfi fyrir starfseminni gerðu einstaklingar og félög sem tengjast veiðiréttareig- endum og laxveiðimönnum athuga- semdir við að sjókvíarnar væru vel innan 15 km frá ósum laxveiðiáa með yfir 500 laxa meðalveiði og samrýmd- ist því ekki reglugerð. Langadalsá og Hvannadalsá renna út um sama ós, utarlega í Ísafirði sem er innsti fjörð- ur Djúpsins. Samanlögð meðalveiði í þessum ám er 503 laxar síðustu 10 ár. Umhverfisstofnun svaraði athuga- semdinni þannig í greinargerð með starfsleyfinu að hluti af veiðinni væri lax sem sleppt hefur verið og nefnd talan 160 laxar í hvorri á. Því væri meðalveiði í ánum undir 500 fiska markinu. Út fyrir sitt starfssvið Landssamband veiðifélaga (LV) telur það ekki hlutverk Umhverfis- stofnunar að endurskoða veiðitölur Veiðimálastofnunar. „Furðu er lýst á að Umhverfisstofnun hafi tekið upp á því að lækka veiðitölur úr ánum ein- hliða með þeim rökum að þar sem veiðimenn sleppi 0 - 160 fiskum verði að draga 0 - 160 fiska frá veiðitölum og þannig sé meðalveiði undir 500 fiskum. Stofnunin sé farin langt út fyrir sitt starfssvið með þessari ótrú- legu túlkun að fiskar sem séu veiddir og sleppt, teljist nú ekki veiddir leng- ur,“ segir í fréttatilkynningu LV um kæruna. Sambandið gerir einnig ýmsar athugasemdir við rökstuðning stofnunarinnar og skort á rann- sóknum um áhrif ákvarðana hennar. Deilt um taln- ingu á laxi sem er sleppt aftur  Kæra veiðifélaga getur lokað innsta hluta Ísafjarðardjúps fyrir eldi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Græðgi HG elur þorsk og regnbogasilung í kvíum í Ísafjarðardjúpi. Þorsk- urinn sækir grimmt í sílið sem gefið er á jötuna í kvíum í Álftafirði. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er einfaldlega ekki búið að ljúka fjármögnuninni. Hún átti að klárast í haust en seinkar fram á vorið,“ segir Davíð Stefánsson, ráðgjafi Silicor Materials á Íslandi, en eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær hefur gildistöku samnings við Faxaflóahafnir um lóð undir sólarkísilverksmiðjuna á Grundartanga verið frestað til 20. janúar nk. Átti samningurinn að taka gildi á morgun, 15. desember, en Silicor fór fram á frestun. „Þetta er ekki búið fyrr en það er búið, það þarf að ljúka allri fjármögnun á sama tíma, bæði lánsfé og eigin fé,“ segir Davíð en eftir er að ljúka eiginfjárhlut- anum, sem er um 40% fjármögn- unarinnar. Svonefndur skilmála- samningur var gerður við Þróun- arbanka Þýskalands um öflun lánsfjár og verður gengið frá hon- um þegar Silicor hefur safnað nægu eigin fé. Spurður hvaða ástæða sé fyrir töfum á fjármögnun segir Davíð ekkert eitt atriði skýra það. Um viðamikla fjárfestingu sé að ræða og verkið hafi tafist af ýmsum ástæðum. Heildarfjárfesting Sili- cor er upp á um 900 milljónir doll- ara, eða um 100 milljarða króna. Davíð segir að viðræður verði teknar upp við Faxaflóahafnir á nýju ári og þá skýrist fljótlega hvort ástæða sé til að fara fram á frekari frestun samnings um lóð- ina. Þá er eftir að ljúka samn- ingum við Landsvirkjun um kaup á raforku. Silicor hefur gert samn- ing við Orku náttúrunnar um kaup á 40 MW. Fjármögnun tefst til vors Grundartangi Svona gæti sólarkísilverksmiðja Silicor Materials litið út.  Silicor vinnur að öflun eigin fjár fyrir sólarkísilverksmiðju Teikning/Silicor Materials

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.