Morgunblaðið - 14.12.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Vefþjóðviljinn fjallar um þauorð Birgittu Jónsdóttur á
Eyjunni, eftir að stjórnarmynd-
unarviðræður hennar runnu út í
sandinn, að nú fari þingið með
völdin og „fyrir
þingræðisfólk eins
og okkur Pírata
eru það frábærar
fréttir“.
Vefþjóðviljinnsegir: „Til-
raunir hennar til
stjórnarmyndunar snerust um að
mynda ríkisstjórn svo þingið
skiptist í stjórn og stjórnarand-
stöðu. Þegar tilraunirnar mistak-
ast finnst henni það sýna að þá
fari „þingið með völdin“ og það sé
frábært. Ef tilraunir hennar
hefðu tekist hefði þingið misst
völdin, samkvæmt orðum
Birgittu.
Í frétt Eyjunnar segir einnig aðBirgitta hafi ekki viljað benda
á neinn flokk sem hefði orðið til
þess að viðræðurnar hefðu farið
út um þúfur. Hún gaf þá skýringu
„að flokkarnir hefðu gert með sér
heiðursmannasamkomulag um að
slíkt yrði ekki gert.“
Leiðtogar stjórnmálaflokkahittast í marga daga til að
ræða frekar mikilvægt mál,
stjórnarmyndun, samkvæmt um-
boði frá forseta Íslands. Þeir
koma sér svo saman á lokuðum
fundi um að landsmenn megi ekki
fá að vita ástæður þess að ekki
hafi verið mynduð ríkisstjórn.
Þetta eru þeir sem tala mest umgagnsæi og ný vinnubrögð.
Það er alveg frábært að okkurhafi mistekist ætlunarverkið.
En við náðum þó samkomulagi um
að segja landsmönnum ekki frá
því hvers vegna okkur mistókst.“
Birgitta
Jónsdóttir
Gagnsæi og þing-
ræði í boði Pírata
STAKSTEINAR
Heildarvísitala þorsks í nýafstöðnu haustralli Haf-
rannsóknastofnunar lækkaði talsvert frá árunum
2014 og 2015 og er nú svipuð og árið 2013. Hluta
lækkunarinnar má rekja til lítils árgangs frá 2013
og að meðalþyngd sumra árganga hefur minnkað
frá fyrra ári. Líklegt er að lækkunin sé að mestu
vegna mæliskekkju líkt og var í vorralli milli ár-
anna 2013 og 2014, segir í frétt frá Hafrannsókna-
stofnun. Haustrall fór nú fram í 20. sinn og er
helsta markmið þess að styrkja mat á stofnstærð
helstu botnlægra nytjastofna á Íslandsmiðum.
Vísitala ársgamals þorsks, árgangur 2015, í vor-
ralli 2016 benti til þess að árgangurinn væri stór
og var það staðfest í haustrallinu nú. Vísitala
tveggja ára þorsks, þ.e. árgangsins frá 2014, er
einnig há. Vísitölur þriggja til sex ára þorsks, ár-
ganganna frá 2010-2013 eru hins vegar lágar.
Fyrstu vísbendingar um árganginn frá 2016 gefa
til kynna að hann sé undir meðalstærð.
Minna af loðnu í fæðunni
Heildarmagn fæðu í mögum allra lengdarflokka
þorsks var það minnsta síðan mælingar hófust
1996. Síðan 2012 hefur magn loðnu í þorskmögum
verið mun minna en á tímabilinu 1996-2010. Líkt
og undanfarin ár var mest af loðnu í þorskmögum
út af vestanverðu Norðurlandi. Af annarri fæðu
má nefna ísrækju, rækju, ljósátu, síld og kol-
munna.
Meðalþyngd jókst hjá 3, 4 og 6 ára þorski en
minnkaði í öðrum aldursflokkum frá fyrra ári. Hjá
flestum aldursflokkum er hún yfir meðaltali rann-
sóknartímans. Mest fékkst af þorski djúpt norð-
vestur, norður og austur af landinu, líkt og undan-
farin ár.
Ýsan á erfitt uppdráttar
Stofnvísitala ýsu lækkaði frá 2015 og er nú svip-
uð og árin 1996-2000. Á árunum 2001-2006 hækk-
aði hún í kjölfar góðrar nýliðunar, en fór ört lækk-
andi næstu fjögur árin þar á eftir. Lækkunina í ár
má rekja til lítilla árganga frá 2008-2013, þ.e.
stærri en 40 cm. Lengdardreifing sýnir að ýsa
minni en 40 cm er undir meðaltali í fjölda.
Vísitala árgangsins frá 2014 er nú undir með-
altali sem er töluverð breyting á fyrra mati en
hann hefur verið talinn frekar stór bæði sam-
kvæmt vorralli og fyrri haustmælingum. Vísitöl-
urnar benda til að árgangar 2015 og 2016 séu und-
ir meðalstærð. Meðalþyngd eftir aldri hefur aukist
umtalsvert síðan 2010.
Heildarvísitala gullkarfa í haustmælingunni
hefur hækkað jafnt og þétt síðan 2001, sem er
svipuð þróun og stofnmælingu botnfiska í mars.
Vísitölur síðustu þriggja ára eru þær hæstu frá
1996. Heildarvísitala djúpkarfa hækkaði árin 2014
og 2015 en lækkaði aftur 2016. aij@mbl.is
Talsverð lækkun vísitölu þorsks
Vísbendingar um að árgangurinn frá 2016 sé undir meðalstærð Stórir þorsk-
árgangar 2014 og 2015 Ýsan hefur enn ekki náð sér á strik Gullkarfi sterkur
Heildarvísitala þorsks
St
of
nv
ís
ita
la
Heimild: Hafró
800
600
400
200
0
1985
Mars
Október
1990 1995 2000 2005 2010 2015
Mælingar vor og haust Heildarvísitala þorsks í
vorralli 1985-2016 og haustralli 1996-2016.
Fögnummeð Þórði og Sváfni
Bókaútgáfan Sæmundur býður þér í útgáfuhóf
í Safnaðarheimili Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66 í Reykjavík
miðvikudaginn 14. desember klukkan 20–22
Þar fögnum við útgáfu nýrra bóka:
Þórður Tómasson:Mjólk í mat
Sváfnir Sveinbjarnarson: Ámeðan straumarnir sungu
Höfundar lesa upp og árita bækur
Bækur á tilboðsverði
Guðmundur S. Brynjólfsson
rithöfundur og djákni stýrir samkomunni
Kaffiveitingar í boði Sæmundar
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Veður víða um heim 13.12., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 8 léttskýjað
Nuuk -8 léttskýjað
Þórshöfn 6 heiðskírt
Ósló -6 léttskýjað
Kaupmannahöfn 5 þoka
Stokkhólmur 1 rigning
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 3 þoka
Brussel 7 þoka
Dublin 10 skúrir
Glasgow 7 skýjað
London 12 þoka
París 8 heiðskírt
Amsterdam 6 þoka
Hamborg 6 þoka
Berlín 2 heiðskírt
Vín -1 léttskýjað
Moskva -13 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 7 þoka
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 13 heiðskírt
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -20 léttskýjað
Montreal -4 alskýjað
New York 2 skýjað
Chicago -8 þoka
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:16 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 12:01 14:55
SIGLUFJÖRÐUR 11:46 14:36
DJÚPIVOGUR 10:54 14:51
Að tillögu for-
sætisráðherra
ákvað ríkisstjórn
Íslands að veita
tíu góðgerðar-
samtökum alls 50
milljónir króna í
styrk í tilefni jóla.
Styrkurinn deilist
jafnt niður á fé-
lögin og fær því
hvert félag 5
milljóna króna styrk.
Góðgerðarfélögin sem veittur
verður styrkur eru Mæðrastyrks-
nefnd Akureyrar, Mæðrastyrks-
nefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrks-
nefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd
Vesturlands, Hjálpræðisherinn á Ís-
landi, Hjálparstarf kirkjunnar, Sam-
hjálp-félagasamtök, Rauði kross Ís-
lands, Fjölskylduhjálp Íslands og
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.
Tíu góðgerðarsam-
tök fá 5 milljónir
hver frá ríkinu
Sigurður Ingi
Jóhannsson