Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á fundum umhverfis- og skipulags-
ráðs og borgarráðs Reykjavíkur ný-
lega var samþykkt að auglýsa tillögu
að deiliskipulagi opins svæðis milli
Seljahverfis og Efra-Breiðholts.
Þar er lagt til að gerð verði göngu-
brú yfir Breiðholtsbraut ásamt við-
eigandi göngu- og hjólatengingum
um skipulagssvæðið. Göngubrúnni er
ætlað að bæta til muna tengingu og
umferðaröryggi gangandi og hjól-
andi vegfarenda á leið milli hverf-
anna.
Deiliskipulagstillagan, sem unnin
er af Landmótun sf., tekur til svæðis
milli Efra-Breiðholts og Seljahverfis,
vestan við bensínstöð við Suðurfell 4.
Tekur deiliskipulagið til göngubrúar
yfir Breiðholtsbraut og göngu- og
hjólatengingar í nágrenninu. Áætlað
er að brúin verði 78 metra löng og
hæð undir brúna frá götu verði a.m.k.
5,2 metrar.
Tæpur kílómetri er milli undir-
ganga undir Breiðholtsbraut og er
göngubrúnni ætlað að bæta til muna
tengingu og umferðaröryggi gang-
andi og hjólandi vegfarenda á milli
hverfanna.
Eftir er að hanna stíga í nágrenni
við væntanlega göngubrú og verður
lögð áhersla á að varðveita sem best
gróðurbelti sem stígarnir munu
liggja um. Gönguleiðin að brúnni skal
vera þriggja metra breið og vera fær
göngu- og hjólreiðafólki á öllum aldri.
Gönguleiðin skal liggja allt frá
Engjaseli/Seljabraut og um skógar-
belti meðfram Breiðholtsbraut, yfir
Breiðholtsbraut og norður fyrir
bensínstöð Skeljungs við Suðurfell.
Stígurinn tengist síðan núverandi
stíg við Norðurfell og Æsufell.
Gert er ráð fyrir áningarstað þar
sem stígar mætast frá Æsufelli og
Norðurfelli. Þar verði heimilað að
koma fyrir bekkjum, upplýsinga-
skiltum og drykkjarpósti.
Ekki er talið að uppbygging sam-
kvæmt deiliskipulagi hafi neikvæð
umhverfisáhrif. Fyrirhuguð göngu-
brú muni aftur á móti hafa jákvæð
áhrif á íbúa hverfisins og öryggi veg-
farenda.
Sjá má tillöguna á vef Reykjavík-
urborgar. Hún liggur einnig frammi í
þjónustuveri Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 12-14. Athugasemda-
frestur er til og með 23. janúar 2017.
Brú yfir Breiðholtsbraut
Ætlað að bæta
öryggi gangandi
og hjólandi fólks
Mynd/Landmótun sf
Breiðholtsbraut Myndin sýnir hvar göngubrúin nýja verður staðsett. Horft er í norðurátt, niður Breiðholtsbraut. Göngubrúin verður 78 metra löng.
Nýja göngubrúin Hér er horft til suðurs, upp Breiðholtsbrautina.
Um 30% af þeim
vörum sem verða
seldar fyrir þessi
áramót á flug-
eldamarkaði
Slysavarna-
félagsins Lands-
bjargar verða
ekki fáanleg á
sama tíma að ári.
Það er vegna
þess að þá þurfa
Íslendingar að fara eftir kröfum
ESB um að allir flugeldar sem hér
verða seldir uppfylli svokallaða CE-
stöðlun.
Í þessu felst að ekki má lengur
selja þær tertur og bombur sem til-
heyra fjórða og kraftmesta flokkn-
um sem Landsbjörg hefur á boð-
stólum. Í þeim flokki er 21
mismunandi tegund af tertum og
bombum sem seldar eru undir yfir-
heitinu Bardagar og risatertur og
kosta 30-73 þúsund krónur.
Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbjargar, sagði í
samtali við mbl.is í gær að Lands-
björg hefði undirbúið sig fyrir þess-
ar breytingar um hríð og að aðrar
kraftminni vörur myndu koma í
staðinn. Hann sagðist ekki geta
sagt til um hvort þessum breyt-
ingum myndi fylgja tekjutap, það
myndi liggja fyrir þegar reynsla
væri komin á nýju vörurnar.
Hætta að
selja þá
öflugustu
Breytingar munu
verða á flugeldasölu
Áramót Breytt
fyrirkomulag.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þeir sem ætla að senda pakka með
Póstinum þurfa nú að skrá pakkann,
það er að fylla út fylgibréf, á netinu
áður en komið er með hann á póst-
hús. Þeir sem ekki gera það heldur
láta skrá pakkann á pósthúsinu
þurfa að greiða aukalega 250 krónur
fyrir það.
„Við sendum fjölpóst á öll heimili
þar sem þetta var kynnt,“ sagði
Anna Katrín Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs
Póstsins. Hún sagði að þessi breyt-
ing hefði einnig verið auglýst í út-
varpi og kynnt á netinu. Auk þess er
þetta vel auglýst á pósthúsunum.
„Áður en þetta fyrirkomulag var
tekið upp þá handskrifaði fólk fylgi-
bréfin, nú slær það upplýsingarnar
inn í tölvu. Þetta tekur sama tíma og
hættan á villum er minni. Áður
þurftu starfsmenn okkar að lesa úr
alls konar rithöndum og stundum
voru gerðar villur þegar upplýsing-
arnar voru slegnar inn,“ sagði Anna.
En hvers vegna þarf að borga 250
krónur ef starfsmaður Póstsins
skráir pakkann?
„Það er til að hvetja fólk til að skrá
þetta sjálft. Þetta er eins og önnur
þjónustugjöld. Þeir sem nýta sér
þjónustuna greiða fyrir hana,“ sagði
Anna. Spurð um hvort sendingar-
kostnaður hafi lækkað við þessa
breytingu sagði Anna að hann hefði
að minnsta kosti ekki hækkað eftir
að þessi gjöld voru sett á, eins og
hann hefði ella þurft að gera.
Pósthúsin á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri verða opin um helgar
alla daga til jóla. Opið er frá 9-19 á
virkum dögum. Auk þess hafa verið
opnuð jólapósthús í Kringlunni og
Smáralind og verða þau opin fram á
Þorláksmessu. Anna sagði að
lengdur afgreiðslutími hafi verið
auglýstur á netinu og einnig í út-
varpi.
Fylla þarf út fylgibréfin
Pósturinn rukkar aukalega 250 kr. hafi fólk ekki fyllt út
fylgibréf með pökkunum áður en það lætur senda þá
Ljósmynd/Hörður Ásbjörnsson
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
L Á G M Ú L A 8
S Í M I 5 3 0 2 8 0 0
Jóla
dagar
32“ kr. 64.900.-
40“ kr. 89.900.-
49“ kr. 119.900,-
55“ kr. 149.900.-
K5505
Verð frá 44.900,-
X-CM35-K
Litlar græjur með stórum hljómi.
kr. 19.900,-
Ótrúlegur hljómur
í þessum
Blue Tooth
hátalara frá Veho
!"!
# $ %&'!(
%& ) *
"!+) ,& -
)(
Leikir frá kr. 4.490,-kr. 59.900,-