Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 12

Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 ar ég var krakki og í framhaldi af því fékk ég mikinn áhuga á náttúrufræði og fuglarnir urðu ofan á með tím- anum. Þeir sem fara að stúdera fugla fá líka áhuga á öðru úti í nátt- úrunni, gróðrinum, jarðfræðinni og öllu mögulegu öðru, enda eru fugl- arnir hluti af náttúruheildinni. Það er full ástæða til að hvetja foreldra til að kynna fugla fyrir börnum sín- um og veita þeim innsýn í náttúruna og leyfa þeim að upplifa öll undur náttúrunnar með fuglaskoðun.“ Jóhann Óli tekur fram að fugla- skoðun fylgi mikið félagslíf. „Fólk fer saman í ferðir, styttri og lengri, og þeir sem eru að taka myndir af fuglum, sem er einn angi á fuglaskoðun, fara líka saman í hóp- um til að ljósmynda. Fólki hefur fjölgað gríðarlega sem leggur sig eftir því að taka fuglamyndir, eftir að stafræna byltingin kom til sög- unnar,“ segir Jóhann Óli og bætir við að Fuglavernd bjóði bæði upp á sérstakar ferðir til fuglaljósmynd- unar og einnig ljósmyndanámskeið fyrir þá sem vilja læra að taka myndir af fuglum, því fugla- Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Sífellt fleiri hafa áhuga á fugl-um og fuglaskoðun, viðmerkjum það á fjölgun í fé-laginu og fleiri sækja líka viðburði hjá okkur, hvort sem það eru fuglaskoðunarferðir eða annað,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson, fugla- fræðingur hjá Fuglavernd, en hann er líka höfundur nýútkominnar bók- ar, Væri ég fuglinn frjáls, sem er fræðslurit um fuglaskoðun. Bókina skrifaði hann fyrir krakka en hún nýtist fólki á öllum aldri sem er að stíga fyrstu skref sín í áhugamálum sem tengjast fuglum. „Fuglavernd leggur upp úr því að kynna fugla fyrir börnum og við gáfum út kennslubók fyrir leikskóla fyrir fáeinum árum, sem tveir leik- skólakennarar skrifuðu. Það er um að gera að hamra járnið meðan heitt er því krakkar hafa mjög gaman af fuglum. Þessi áhugi þeirra lifir hjá mörgum þeirra fram á fullorðinsár. Fuglaskoðun á fullt erindi við yngra fólk og í Bretlandi er fuglaskoðun til dæmis mjög gömul og sterk hefð, þar stundar fólk þetta á öllum aldri, frá smábörnum upp í farlama gamal- menni. Fuglaskoðun er mjög vinsæl hjá eftirlaunafólki í Bretlandi.“ Margir safna fuglabeinum Þegar Jóhann Óli er spurður hvað sé svona heillandi við fugla- skoðun segir hann það vera úti- veruna, ferðalögin og að kynnast náttúrunni. „Fólk sökkvir sér oft í náttúru- vernd og umhverfismál í framhaldi af áhuga á fuglum. Fuglaskoðun er líka mjög áhugaverð fyrir safnara, fólk er þá að safna fuglategundum, að sjá ákveðna fugla, því sumir eru mjög sjaldgæfir og mikið þarf að hafa fyrir því að finna þá. Sumir eru með fuglalista með sér, sem ýmist eru Íslandslistar eða heimslistar eða annars konar listar, og haka svo við þegar þeir finna og sjá nýja fugla. Þá eru menn ýmist í keppni við sjálfa sig eða félaga sína,“ segir Jóhann Óli og bætir við að í nýju bókinni komi hann inn á hversu gaman geti líka verið að safna einhverju sem tengist fuglum, eins og fjöðrum, beinagrind- um, hauskúpum eða ælum. „Ég safnaði slíku þegar ég var strákur og safnaði reyndar líka eggj- um, eins og ýmsir aðrir sem voru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun, en þessi siður hefur sem betur fer lagst af, því að sjálfsögðu má ekki taka egg úr hreiðrum.“ Gaman að fara saman í ferðir Jóhann Óli segist hafa verið mikill fuglaáhugamaður alveg frá því hann var um fermingaraldur. „Fósturfaðir minn og amma mín þekktu vel fugla og þau sýndu mér oft hreiður og fugla, en við vor- um með annan fótinn í sveitinni þeg- Fuglaskoðun fylgir mikið félagslíf og skemmtun „Þeir sem fara að stúdera fugla fá líka áhuga á öðru úti í náttúrunni, gróðrinum, jarðfræðinni og öllu mögu- legu öðru, enda eru fuglarnir hluti af náttúruheildinni. Það er full ástæða til að hvetja foreldra til að kynna fugla fyrir börnum sínum og veita þeim innsýn í náttúruna og leyfa þeim að upplifa öll undur náttúrunnar með fuglaskoðun,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson, höfundur nýrrar bókar um fuglaskoðun. Ljósmynd/Halla Hreggviðsdóttir Jóhann Óli Við fuglaljósmyndun. Branduglur Ein af fallegu myndunum hans Jóhanns Óla í bókinni. Pysjusleppingar Þær eru ævintýr. Þeir hafa safnað í sarpinn á langri ævi og kynnst mörgu fólki, þeir Þórð- ur Tómasson í Skógum og séra Sváfnir Sveinbjarnarson, fyrrverandi prófastur á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Bókaútgáfan Sæmundur býður til útgáfuhófs í Safnaðarheimili Grensáskirkju við Háaleitisbraut í Reykjavík í kvöld, miðvikudag, kl. 20- 22. Þar verður fagnað útgáfu tveggja nýrra bóka þessara miklu meistara. Þórður sendir frá sér bókina Mjólk í mat, en þar gerir hann grein fyrir verkmenningu og þjóðháttum sem tengjast mjólkuriðnaði gamla bænda- samfélagsins. Sváfnir sendir frá sér bókina Á meðan straumarnir sungu, sem geymir endurminningar frá fyrri hluta ævi hans. Sváfnir segir þar frá bernskuárum í Fljótshlíðinni og námsárum við MA og syðra. En mest fjallar hann um Öræfi, Suðursveit og Mýrar, þar sem hann þjónaði sem prestur um miðja tuttugustu öld. Höfundar lesa upp úr bókunum og árita. Guðmundur S. Brynjólfsson, djákni og rithöfundur, stýrir sam- komunni. Allir velkomnir og kaffiveit- ingar verða í boði Sæmundar. Upplestur úr nýjum bókum Fagnað með Þórði og Sváfni Morgunblaðið/Rax Lyklavöld Þórður var frumkvöðull að stofnun Byggðasafnsins í Skógum. Að þekkja uppruna sinn skiptir flest fólk miklu máli, enda bregður aðeins fjórðungi til fósturs. Sjálfsmynd okkar er jú að hluta komin frá fólkinu okkar, ekki aðeins þeim sem við ölumst upp hjá heldur ekki síður þeim sem við er- um blóðskyld. Ýmsu verður velt upp sem tengist þessu málefni á síðasta fræðslufundi ársins hjá Íslenskri erfðagreiningu á morgun fimmtudag 15. desember, kl. 17.00-18.30. Yfirskrift fundarins er: Skiptir upp- runinn máli, eða er það leitin að hon- um? Nokkur erindi verða flutt, Kári Stefánsson: Örsögur um leit, Brynja Dan Gunnarsdóttir: Leitin að upprun- anum, Agnar Helgason: Saga Hans Jónatans rakin úr erfðaefni afkom- enda hans, og Ásdís Halla Bragadóttir segir frá átakanlegri fjölskyldusögu sinni í bókinni Tvísaga, móðir, dóttir, feður, en sagan er uppgjör við fortíð- ina og hjálpaði Ásdísi að skilja upp- runa sinn, en í leit að faðerninu kynnt- ist hún móður sinni upp á nýtt. Allir eru velkomnir að Sturlugötu 8 í Vatns- mýrinni, og kaffiveitingar verða frá klukkan 16.30. Fræðslufundur hjá Íslenskri erfðagreiningu Skiptir uppruninn máli – eða er það leitin að honum? Morgunblaðið/Ásdís Leit að faðerni Ásdís Halla ætlar að fjalla um flókin fjölskyldumál sín.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.