Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á næstunni verður ráðist í endur-
bætur á dráttarbrautum á Slipp-
svæðinu í Reykjavík. Stjórn Faxa-
flóahafna tók ákvörðun um þetta á
síðasta fundi sínum, enda er hafnar-
stjórn „fylgjandi því að starfsemi
slippsins haldi áfram á komandi ár-
um,“ eins og segir í samþykkt
stjórnarinnar.
Fram kemur í minnisblaði Jóns
Þorvaldssonar aðstoðarhafnarstjóra
að við umfjöllun og samþykkt deili-
skipulags fyrir Vesturbugt á árunum
2003-2006 hafi
forsendur verið
þær að miða
skyldi við að
slippastarfsemi og
upptökur skipa á
svæðinu yrðu af-
lagðar. Rekstur
dráttarbrauta og
slippa á svæðinu
samrýmdist ekki
blandaðri byggð
og uppbyggingu íbúðarbyggðar. Við
breytingar á deiliskipulagi Vestur-
bugtar er nú aftur á móti miðað við
að þar geti allt eins verið áfram ein-
hver takmörkuð upptökustarfsemi.
„Við byggingu Marina hótelsins eru
skipaupptökur og dráttarbrautir gott
markaðsmál fyrir hótelreksturinn og
ekki annað séð en að starfsemin falli
öllum í geð. Samstarf á milli aðila er
gott og sambúðin farsæl,“ segir Jón.
Margir hafa aldrei áður
séð skip á þurru landi
Erlendir ferðamenn hafa sýnt
þessari starfsemi mikinn áhuga og
myndað enda hafa margir þeirra
aldrei áður séð skip á þurru landi.
Faxaflóahafnir sf. eiga tvær
dráttarbrautir á Slippsvæðinu.
Dráttarbrautirnar, ásamt lóðinni þar
sem brautirnar standa, eru í dag
leigðar Stálsmiðjunni til upptöku og
viðgerða á skipum. Þær eru einu
mannvirkin til upptökuþjónustu og
viðgerða við skip hér í Reykjavík. Á
þessu svæði hafa frá því að hafnar-
gerð hófst í Reykjavík fyrir einni öld
verið stundaðar upptökur og við-
gerðir á skipum og þar er til staðar
samfelld saga þessarar atvinnu-
greinar, segir í minnisblaði Jóns Þor-
valdssonar.
Fram kemur í minnisblaðinu að
fyrir tveimur árum hafi Stálsmiðjan
farið að kvarta um að á sporbrautir
væri farið að setjast efni þannig að
sleði N-brautar væri hættur að geta
runnið út á enda spora og undir skip í
upptökum. Fá þyrfti dráttarbáta
hafnarinnar til að draga sleða niður á
ytri hluta brautar og dæluskip eða
dýpkunargröfu þyrfti til að hreinsa
þetta efni burt. „Það var vitað að
þessi skýring á tregðu sleða væri
ekki alveg rétt. Sleði væri að festast á
teinum af öðrum orsökum og þetta
yrði að skoða með köfurum,“ segir
Jón.
Komið er að ákvörðun um aðgerðir
á brautum til úrbóta. Til skoðunar er
ákveðinn hluti af undirstöðum braut-
ar sem eru timburmannvirki á ysta
hluta hennar. Aðrir hlutar upptöku-
mannvirkja sýna sig að vera í góðu
ástandi. Steyptir miðjubitar sem
byggðir voru á árinu 1995 og eru
meginburðarvirki á undirstöðum
brautar, upptökusleði og spilbúnaður.
Allt eru þetta mannvirki sem munu
duga um lengri tíma. Timburmann-
virkin eru frá árunum 1920 til 1955
og eru hluti af fyrstu brautum á þess-
um stað.
Niðurstaða er sú að fara verður í
þessar aðgerðir til styrkingar á
undirstöðum brauta.
Heppilegasti tími til framkvæmda
er tímabilið desember-janúar, segir
Jón. Hörðnun steypu er þá í febrúar-
mánuði og full afnot af N-braut
möguleg síðari hluta febrúarmán-
aðar. Á þessum tíma eru engar
slipptökur bókaðar og viðgerðatími
því besta tímasetning fyrir rekstr-
araðilann, Stálsmiðjuna.
Við yfirferð á sporum með köf-
urum frá Köfunarþjónustu Sigurðar
ehf. hafa spor verið tjökkuð upp til
bráðabirgða og nú eru öll spor orðin
rétt í hæð og vagn rennur eftir spor-
um. Viðgerð verður framkvæmd
þannig að steypt verður undir spor-
bita á ákveðnum stöðum eða í heild
þar sem vart er við sig á bitum og
styrktir með því sporbitar, nýttur
burður timburstaura þar sem þeir
eru heillegir og timburmannvirki var-
in frekari skemmdum.
Spilin eru í góðu lagi
Að sögn Jóns Þorvaldssonar var
svokölluð norðurbraut byggð á árinu
1956 og er spilbúnaður Slippsins frá
sama tíma. Hann er talinn vera í
góðu lagi og hefur verið skipt um
dráttarvíra með reglulegu millibili.
Búnaðurinn sem dregur upp
brautirnar er í spilhúsum sem standa
við Spilhúsastíg fyrir framan Hótel
Marina.
Slippurinn starfar áfram
Stjórn Faxaflóahafna ákveður að ráðast í endurbætur á dráttarbrautum á Slippsvæðinu í Reykjavík
Vill að starfsemi Slippsins haldi áfram á komandi árum Aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slippurinn í Reykjavík Á árunum 2003-2006 voru uppi áform um að hætta slippstarfsemi og byggja á svæðinu. Nú hefur verið horfið frá þeim áformum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vinsæll Slippurinn býr yfir aðdráttarafli fyrir ferðamenn og lífgar upp á gömlu höfnina og hótelstarfsemina.
Jón Þorvaldsson
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
RENAULT MASTER DCI 125 L2H2
árg. 2013, ekinn 40-47 Þ.km, dísel, 6 gíra.
Verð 2.888.000+ vsk. Raðnr. 255425
VW GOLF GTE PLUG IN HYBRID
sýningarbíll ekinn 1500 km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 4.480.000 kr. Raðnr. 255561
M.BENZ C 220D AVANTGARDE
nýskr. 09/2015, ekinn 8 Þ.km, diesel, sjálfskiptur,
sem nýr!Verð 6.690.000 kr. Raðnr. 255217
BMW 535D XDRIVE F10 nýskr. 04/2015,
ekinn 36 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, hlaðinn búnaði!
Verð aðeins 9.990.000 kr. Raðnr. 255003
AUDI A6 2.0 TDI S-LINE
nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, diesel, sjálfskiptur
S-line alla leið! Verð 7.390.000 kr. Raðnr. 254356
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
NÝIR OGNÝLEGIR BÍLARTIL AFHENDINGAR STRAX!