Morgunblaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Spænskir púslmeistarar lögðu saman krafta sína
til að leggja stærsta púsluspil í heimi í vikunni. Í
púsluspilinu, sem nú er til sýnis í bænum Algec-
iras á suðurhluta Spánar, eru 40.320 púsl en
púsluspilið, sem er 2x7 metrar að stærð, skartar
þekktum teiknimyndahetjum úr smiðju Disney.
Alls tók það púslmeistarana 46 klukkustundir,
23 mínútur og 15 sekúndur að raða púsluspilinu
saman.
AFP
Stærsta púsluspil heims
Spánn
Enginn ísraelskur embættismaður
mun eiga fund með Margot
Wallström, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, þegar hún heimsækir Pal-
estínu síðar í
vikunni.
Talsmaður
Wallström sagði
AFP að ráð-
herrann hefði
viljað hitta emb-
ættismenn bæði
Palestínumanna
og Ísraela að
máli. Ekki hafi
hins vegar
reynst gerlegt
að heimsækja Ísrael. Wallström
sagði við sænsku fréttastofuna TT
að Ísraelsmenn hefðu ekki viljað
taka á móti henni. Hún mun m.a.
eiga fund með Mahmud Abbas,
forseta Palestínnumanna, og Riad
al-Malki utanríkisráðherra í ferð-
inni.
Í byrjun ársins hvatti Wallström
til rannsóknar á drápum ísr-
aelskra hermanna á palestínskum
vígamönnum og að Ísraelsmenn
yrðu að hætta aftökum án dóms
og laga. Í kjölfarið lýsti Tzipi
Hotovely, utanríkisráðherra Ísr-
aels, því yfir að Wallström væri
ekki lengur velkomin til landsins.
Ísraelar
hundsa
Wallström
Margot
Wallström
Samkomulag náðist í gær um að leyfa íbúum og
uppeisnarmönnum í austurhluta sýrlensku
borgarinnar Aleppo að yfirgefa borgina. Sýr-
lenski stjórnarherinn hefur náð borgarhlutan-
um að mestu á sitt vald.
Talsmaður samtaka uppreisnarmanna sagði
að Rússar og Tyrkir hefðu beitt sér fyrir sam-
komulagi við Sýrlandsstjórn um að leyfa fólki
að yfirgefa borgarhlutann. Vitalí Tsjurkin,
sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðun-
um, sagði í gærkvöldi að sýrlenski stjórnarher-
inn hefði hætt aðgerðum í Aleppo svo uppreisn-
armenn og fjölskyldur þeirra gætu yfirgefið
borgina. Fréttamenn AFP-fréttastofunnar og
óháð eftirlitssamtök staðfestu að sprengju-
gnýrinn hefði hljóðnað um miðjan dag.
„Mergurinn málsins er – ef allt gengur eftir
– að þetta þýðir að átökum í austurhluta
Aleppo er lokið,“ sagði Tsjurkin.
Bandaríkjastjórn hvatti til þess að alþjóð-
legir eftirlitsmenn yrðu sendir til Aleppo til að
fylgjast með því að þetta samkomulag yrði virt.
Fyrr í gær bárust fréttir af því að herflokkar
hliðhollir sýrlenskum stjórnvöldum hefðu farið
inn í íbúðarhús í austurhluta Aleppo og drepið
alla sem þar voru inni, þar á meðal konur og
börn. Samantha Power, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði á neyðar-
fundi öryggisráðs SÞ í gær að eftirlitsmenn
þyrftu að fylgjast með því að fólk fengi að fara
óáreitt. „Það óttast, með réttu, að eiga á hættu
að skotið verði á það eða það flutt í fangabúðir
Assads Sýrlandsforseta,“ sagði Power.
Rupert Colville, talsmaður mannréttinda-
fulltrúa SÞ, sagði í gær að mannréttindaskrif-
stofa samtakanna hefði fengið trúverðugar
upplýsingar um að að minnsta kosti 82 óbreytt-
ir borgarar hefðu verið skotnir til bana í aust-
urhluta Aleppo í gær, þar á meðal konur og
börn.
Talsmaður Sýrlandshers sagði hins vegar
við breska ríkisútvarpið BBC að fullyrðingar
um dráp á óbreyttum borgurum væru rangar
og tilhæfulausar. Í sama streng tók Tsjurkin í
gærkvöldi.
Bretar og Frakkar fóru í gær fram á neyðar-
fund í öryggisráði SÞ um ástandið í Aleppo og
var fundurinn haldinn síðdegis. Bresk stjórn-
völd ítrekuðu í gær þá kröfu að Assad viki úr
embætti forseta Sýrlands. Vísaði talsmaður
Theresu May, forsætisráðherra Breta, til
þeirrar „villimannslegu grimmdar“ sem Assad
hefði sýnt sýrlensku þjóðinni.
Fall Aleppo yrði mesti ósigur sem uppreisn-
armenn hafa beðið frá því borgarastríð hófst í
Sýrlandi 2011. Yfir 300 þúsund manns hafa lát-
ið lífið og milljónir manna hafa flúið heimili sín.
Rússar hófu loftárásir á síðasta ári til stuðn-
ings stjórnarhernum en Bandaríkjamenn hafa
stutt uppreisnarmenn.
Rússar segja að bardögum í Aleppo
sé lokið eftir fjögurra ára átök
Uppreisnarmönnum leyft að yfirgefa borgina Bretar krefjast afsagnar Assads Sýrlandsforseta
AFP
Á flótta Íbúar í Bustan al-Qasr hverfi í Aleppo á flótta í gær. Sýrlenski stjórnarherinn náði
hverfinu og sex öðrum hverfum úr höndum uppreisnarmanna, sem hafa ráðið þar í fjögur ár.