Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 ✝ Erla GuðlaugEyjólfsdóttir fæddist 16. ágúst 1937. Hún varð bráðkvödd á heim- ili sínu í Hafn- arfirði 4. desember 2016. Foreldrar henn- ar voru Eyjólfur Andrésson frá Vöðlum í Vöðlavík, f. 28.10. 1910, d. 25.4. 1987, og Guðrún Stef- ánsdóttir frá Núpshjáleigu í Berufirði, f. 18.9. 1902, d. 28.1. 1990. Erla var elst þriggja systk- ina: Ólöf Stefanía, f. 1939, maki Óskar Konráðsson, f. 1935, og Andrés Pétur, f. 1942, maki f. 28.4. 2007, Aníta Björk, f. 22.8. 2010, 3) Bergþóru Pálínu, f. 23.6. 1978, maki Reynir Smári Markússon, f. 2.12. 1976, börn: Atli Már, f. 8.4. 2003, Elv- ar Smári, f. 10.7. 2010, Bára Dís, f. 28.2. 2014. Fyrir átti Erla soninn Rúnar Sigurð Guð- laugsson, f. 15.5. 1966, maki Hulda Kristjánsdóttir, f. 1.9. 1969, börn: Kristján Ernir, f. 3.12. 1987, Eydís Erla, f. 6.3. 1990, maki Garðar Geir Hauks- son, f. 28.6. 1989, börn: Erik Úlfar, f. 7.6. 2013, Ernir Þór, f. 24.9. 2016, og Pétur Gunnar, f. 25.10. 1999. Erla ólst upp á Eskifirði en á tvítugsaldri fluttist hún suður. Erla vann við fiskvinnslu, versl- unar- og þjónustustörf sem ung kona. Eftir að Erla og Björn bjuggu sér heimili í Hafnarfirði hélt hún utan um heimili þeirra hjóna. Útför Erlu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. desember 2016, kl. 13. Rakel Benjamíns- dóttir, f. 1947, d. 2006, sambýliskona Rannveig Harð- ardóttir, f. 1962. Erla giftist Birni Kristmanni Guð- mundssyni, f. 26.8. 1942, frá Fáskrúðs- firði hinn 26.12. 1970, og eignuðust þau þrjú börn: 1) Guðmund Stefán, f. 3.2. 1971, maki Fríða Kristín Jóhannesdóttir, f. 19.7. 1973, börn: Kristín Ylfa, f. 19.10. 2002, Björn Yngvi, f. 5.2. 2007, Friðrika Ýr, f. 22.5. 2013, 2) Eyjólf Andrés, f. 30.5. 1972, maki Sunneva Kolbeinsdóttir, f. 23.1. 1974, börn: Eva Carmen, Síminn hringdi rétt fyrir klukkan átta sunnudaginn 4. desember. Mamma er mikið veik sagði systir mín. Innan við tíu mínútum síðar var ég kom- inn upp á Álfaskeið þar sem hún hafði búið síðastliðin 36 ár. Bráðaliðar voru mættir að fram- kvæma lífgunartilraunir en þær urðu árangurslausar. Hún var farin. Tveimur dögum áður höfðum við systkinin setið með henni í afmælisveislu þar sem hún sagði við bróður minn: „Ég fer bara snöggt.“ Hún hafði fengið ósk sína uppfyllta því að hún vildi alls ekki fara á öldrunarheimili eða liggja veik á spítala. Hún var ákveðin kona og stóð við það sem hún sagði, því var viss- ara að hlusta vel þegar hún tal- aði. Ég er fyrsta barn hennar og naut þess að vera einbirni í sex ár áður en bróðir minn fæddist. Tæplega eins árs fór hún með mig í strætó til Reykjavíkur, í ferðalag sem endaði ekki vel. Hvernig datt þér í hug að láta mig vera bleyjulausan þarna? spurði ég mörgum árum síðar. Ég vildi ekki að þú yrðir hjól- beinóttur svaraði hún snöggt og brosti. En auðvitað passaði það ekki að vera í fínum jakka með hatt og svo með bleyju. Hún sagði við mig hvað hún hefði verið heppin að fá að dansa í tíu ár áður en ég fædd- ist og auðvitað var ég sendur í danskennslu í nokkur ár. Þegar ég kom heim úr skólanum beið móðir mín eftir mér í eldhúsinu og nú var það heimavinnan. Þar tók við önnur kennsla og þá þurfti að klára allt áður en ég fékk að hlaupa út á fótboltavöll. Eftir prófin í skólanum beið mamma spennt yfir því að heyra hvernig mér hefði gengið. Hennar fyrstu viðbrögð voru að spyrja hvort einhver hefði verið hærri en ég. „Af hverju varst þú ekki hæstur?“ spurði hún. Ég man hvað mér fannst þetta ósanngjarnt þegar hún sagði þetta við mig í fyrsta skipti. En síðar var ég henni þakklátur og er þetta eflaust ástæðan fyrir því að við systkinin fórum öll í framhaldsnám eftir stúdents- próf. Þú ert alltaf örvhentur og hvaðan komu þessi gráu hár? sagði hún og ýtti við mér. Hvað- an ætli þau komi nú? svaraði ég. Hún hafði gaman af því að syngja og tók oft aríur í eldhús- inu og þegar ég bað hana um að hætta bætti hún um betur og söng þá lög með breyttum texta, sem hún hafði samið sjálf eflaust til að stríða foreldrum sínum. Mig grunar að hún hafi komist upp með ýmislegt sem systkini hennar gátu ekki. Nú var hún komin í ham og ekkert annað að gera en að flýja inn í herbergi. Mamma vissi nöfn flestra í ættinni og jafnvel fæðingarár. Ég skildi aldrei þennan áhuga hennar. Þessi hefði orðið svona gamall hefði hann lifað og það eru svona mörg ár síðan þessi dó. Það kom þó fyrir að maður nýtti sér þessa þekkingu henn- ar. Er þessi skyldur okkur eða hvar býr þessi núna? Ég kveð mömmu með ljóði sem ég samdi í barnaskóla. Þetta sýndi hún mér fyrir nokkrum árum og hafði geymt eins og allt annað. Síðasti hjartslátturinn deyr út, tár renna. Þú ert lögð af stað, gegnum dimma dali, myrk göng. Sterk dagsbirtan skín við enda ganganna, Þú hleypur af stað inn í nýjan heim. Þar er friður, þú ert komin á leiðarenda. Rúnar Sigurður Guðlaugsson. Elsku mamma. Ég sit hérna og hlusta á lagið „Íslenska konan“, búin að kveikja á kerti og horfi á þessa fallegu mynd af þér. Guð hvað mér finnst þetta fallegt lag, finnst það hafa verið samið um þig, mamma mín. Þegar pabbi hringdi snemma sunnudagsmorguninn 4. desem- ber og bað mig um að koma upp á Álfaskeið hvarflaði ekki að mér að það væri komið að kveðjustund, mamma mín. Kannski sendir þú mér einhver skilaboð því ég ákvað á síðustu stundu að sækja Gumma bróður og taka hann með mér upp á skeið. Ég er þakklát fyrir að hafa haft hann með mér því þetta var erfið stund. Við vitum að öll þurfum við að kveðja einn daginn en þegar kallið kemur þá er það alltaf jafn sárt og þá sérstaklega þeg- ar það gerist svona óvænt og fyrirvaralaust. Þú varst eigin- lega bara nýstaðin upp úr sóf- anum heima hjá mér þar sem þú horfðir á fólkið þitt taka sporin í fjörugu afmæli og furð- aði ég mig á því hvað þú hefðir mikið úthald þetta kvöld. Í dag er ég ótrúlega þakklát fyrir þessa kvöldstund með þér, þú varst umkring þínum nánustu. „Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. “ Þessi orð segja margt um þig, mamma, þú nákvæmlega gafst þig alla í uppeldið á okkur systkinunum fjórum og hafðir mikinn metnað fyrir því að okk- ur gengi vel í lífinu. Góðvild og gestrisni skein sterkt í gegn hjá þér, mamma. Allir vildu heimsækja þig, öllum leið vel í eldhúsinu á Álfaskeið- inu þar sem ósjaldan var borin fram jólakaka eða pönnukökur. Tala þá ekki um hafrakökurnar sem þú varst svo ánægð með því þú gast nýtt afganginn af hafragrautnum í kökurnar. Þú barst virðingu fyrir öllum og varst alltaf tilbúin að gleðjast með öðrum sem var yndislegur eiginleiki. Þú varst áhugasöm um alla í kringum þig, áhuga- söm um velferð og velgengi allra hvort sem það voru nánir ættingjar, vinir eða jafnvel bara bekkjarfélagar okkar systkin- anna. Þú hugsaðir til allra. Mamma, þú varst einstök manneskja, hlý, góð og vildir allt fyrir alla gera. Þú varst ættarhöfðinginn sem leiddi fólkið saman, þú varst límið eins og einhver sagði. Guð hvað við eigum eftir að sakna þín mikið, mamma mín, og einnig barnabörnin og lang- ömmubörnin sem eru orðin 13 talsins. Lífið verður aldrei eins án þín, mamma, og þurfum við systkinin, pabbi og fjölskyldan að stilla okkur af og finna nýtt jafnvægi án þín. Við munum ylja okkur með öllum þeim minningum sem við eigum um líf okkar saman, minningar sem við munum halda fast í. Við huggum okkur við þær fréttir sem við fengum af þér að þú værir nú komin með fulla heyrn á ný, umlukin þínu fólki að takast á við ný verkefni. Við vitum að þú munt fylgja okkur áfram og leiða okk- ur á réttar brautir eins og þú hefur ávallt gert. Þú varst alltaf vörn okkar, skjöldur og hlíf. Takk fyrir allt, elsku mamma mín, takk fyrir allt það sem þú varst mér og mínum. Ég elska þig, hvíldu í friði. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Þín dóttir, Bergþóra. Elsku mamma varð bráð- kvödd að morgni sunnudagsins 4. desember síðastliðinn. Mamma hafði ekki sýnt merki lasleika og var rúmum sólahring áður í afmæli með fjölskyldunni, sjálfri sér lík að spjalla og slá á létta strengi. Á svipstundu var veruleikinn annar, undirbúning- urinn var enginn. Áfall, sorg og tómleiki tók við. Ekki vorum við tilbúin að missa mömmu en fyr- ir árin hennar 79 ber að þakka. Hún átti góðan eiginmann, fjög- ur börn, tengdabörn, ellefu barnabörn, tvö langömmubörn og var afar stolt af sínu fólki. Mamma var frá Eskifirði og var elst þriggja systkina. Hún rifjaði stundum upp hve hart var í ári á hennar æskuárum. Afi var löngum stundum fjarri heimilinu í vinnu og amma sá ein um heimilið á meðan. Mamma rifjaði ósjaldan upp skemmtilegar sögur af sjálfri sér, fjölskyldu og samtímafólki. Ekki var um að villast að Eski- fjörður var bærinn hennar með sinn fagra Hólmatind. Á yngri árum starfaði mamma við fisk- vinnslu og í kaupfélaginu. Um 18 ára aldur fór hún suður og starfaði lengstum í mjólkurbúð. Hún var á sínu 29. ári þegar Rúnar bróðir fæddist og bjuggu þau mæðgin fyrstu árin hjá ömmu og afa sem þá voru flutt í Hafnarfjörð. Árið 1969 kynntist mamma pabba og hófu þau bú- skap við Melabraut í Hafnar- firði og þrjú börn bættust þar í hópinn. Árið 1980 fluttum við svo á Álfaskeið þar sem mamma bjó ævina alla. Mamma var dugleg og skipu- lögð húsmóðir. Morgnarnir voru hennar tími, vaknaði snemma alla daga vikunnar, kom fjöl- skyldunni á fætur og kláraði síðan húsverkin. „Ekki geyma til morguns það sem hægt er að gera í dag,“ sagði hún gjarnan. Daglega fór hún í göngutúr og gerði til síðasta dags. Uppeldi okkar var hennar meginverkefni. Hún var ávallt til staðar og þegar heim var komið úr skólanum var heitur matur á borðum og nýbakað bakkelsi. Læs vorum við þegar við hófum skólagöngu og var hún okkar helsti kennari. Metn- aðurinn fyrir okkar hönd var mikill og hún gladdist mjög þeg- ar við systkinin lukum öll lang- skólanámi. Mamma var límið í ættinni, óskaði eftir og miðlaði fréttum af ættingjunum. Heimsóknir þeirra voru tíðar og ávallt voru veigar á borðum enda mamma rómuð fyrir pönnukökur og vöfflur. Mamma var forvitin um líðan ættingjanna og tók það nærri sér ef eitthvað bjátaði á. Hún var ættglögg og hafði á orði að nöfnin kjöftuðu frá en með nafninu einu gat hún getið sér til um ættartengsl. Mamma hafði ótrúlegt minni, mundi vel afmælis- og dánardaga og kveikti þá gjarnan á kerti til að minnast látinna ættingja eða vina. Mamma var einstök og um hana mætti lengi skrifa. Hlý og góð kona sem lét sig sína varða, grínaðist gjarnan og kom fólki til að hlæja með tilsvörum og fasi. Þín verður sárt saknað. Á nýjan stað ertu komin, passar upp á okkur úr fjarska. Nú ertu komin með heyrnina á ný, slærð á létta strengi og gleðst með ættingjum og vinum handan móðunnar. Þú varst okkar fyrirmynd, leiðarljósið sem við berum áfram til okkar barna. Guð blessi þig og minninguna um þig. Ég elska þig að eilífu, mamma mín. Þinn sonur, Guðmundur. Stundin er komin. Hún gerði ekki boð á undan sér. Ég hélt að árin yrðu fleiri því að þú barst ekki með þér að eitthvað væri í vændum. Við eigum okk- ar vitjunartíma og oft kemur kallið þegar síst skyldi. Úr tóm- inu kviknar lífið og í tómið hverfur lífið aftur. Við fæðumst og deyjum, köstum klæðum og förum í ný. Tíminn er hverfull eins og líf þitt sem hörfaði inn í ljósið á einu augabragði. Og nú rétt eins og áður fylgist þú með hverju fótmáli okkar systkin- anna og sérð til þess að okkur vegni vel í lífinu. Þú gafst þig alla í uppeldið, Erla Guðlaug Eyjólfsdóttir Með nokkrum orðum langar mig að minnast vinar míns og Kiwanisfélaga, Kristins S. Jónssonar, sem reyndist mér vel á erfiðum stundum sem ég gekk í gegnum. Ég kynntist þessum heiðursmanni þegar ég gekk í Kiwanisklúbbinn Geysi í Kristinn Sigmund- ur Jónsson ✝ Kristinn S.Jónsson fædd- ist 19. september árið 1947. Hann lést 25. nóvember 2016. Útför Kristins fór fram 5. desem- ber 2016. Mosfellsbæ. Það var sama hvort hann var forseti Kiwanisklúbbsins eða bara óbreyttur félagsmaður, þá var hann mjög bóngóður, útsjón- arsamur og með húmorinn í lagi, al- veg einstakur fé- lagi. Kristinn vildi öllum vel og kynntist ég því vel, því hann var frábær vinur og félagi. Samúðarknús til eiginkonu og barna. Gísli Kr. Jónsson. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR, Hvassaleiti 56, lést á Landspítalanum við Fossvog laugardaginn 3. desember. Útför verður gerð frá Áskirkju fimmtudaginn 15. desember klukkan 13. Blóm og kransar afþökkuð. . Ólafur Á. Sigurðsson, Björg Ólafsdóttir, Þröstur Guðmundsson, Sigurður Á. Ólafsson, Ólafur Kr. Ólafsson, Anna María Bjarnadóttir, barnabörn og langömmubarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA GUNNARSDÓTTIR, Ofanleiti 19, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans miðvikudaginn 7. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. desember klukkan 13. . Kristinn Sigurðsson, Agnar Logi Axelsson, Ágústa Hallsdóttir, Jóna K. Kristinsdóttir, Sigurgeir G. Þórðarson, Sigurður Kristinsson, Erla Ósk Guðjónsdóttir, Óskar Kristinsson, Sonja Freydís Ágústsdóttir, Ellý Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR ÓLAFSSON, Dvalarheimilinu Stykkishólmi, lést laugardaginn 10. desember. Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 16. desember klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög í Stykkishólmi. . Nína Erna Eiríksdóttir, Guðný Þorvaldsdóttir, Poul Erik Boel, Magni Rúnar Þorvaldsson, Valborg Jónsdóttir, Ólafur Þorvaldsson, Guðríður Þorvaldsdóttir, Gísli Bj. Konráðsson, Jónína Þ. Þorvaldsdóttir, Hörður Þráinsson, Aðalsteinn Þorvaldsson, Helga Hilmarsdóttir, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.