Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 31
kenndir okkur aga og metnað, reglusemi og virðingu. Og þótt við værum á tíðum ódæl kunnir þú við því ráð. Þú varst nægju- söm og hófstillt, ákveðinn í hverju verki. Það lærðir þú í æsku á Hóli við Hólmatind, á Eskifirði, þar sem að allsnægtir voru af skornum skammti, ekki einu sinni næg mjólk til drykkjar og því varð kaffið drykkurinn þinn. Að Hóli við barnaskólann ólstu upp. Þú tal- aðir oft um þennan skóla og hvernig þér vegnaði þar, í þess- um litla skrítna smábæ þar sem allt var svo rætið og fyndið, eins og þér oft á tíðum fannst. Nú er Hóllinn farinn, húsið sem afi keypti í æsku, og skólinn í eyði. Ég man, fyrir nokkrum árum þegar ættin kom saman, fórstu aftur heim á Hólinn og skoðaðir hann með mér í síðasta sinn. Á Eiðum varstu á unglings- árum og áttir þar minningar, sem þú talaðir gjarnan um. Þú fluttist suður á mölina, átján ára gömul, og bjóst um tíma á Kampinum í Reykjavík. Þá dugði aurinn skammt eins og þú sagðir svo oft. Á Kampinum, í Reykjavík, dvaldirðu heima hjá frænku þinni, Sigurborgu, uns þú fluttist til Hafnarfjarðar á Hringbrautina þar sem afi og amma bjuggu lengst af sinni tíð. Þú starfaðir í mjólkurbúðinni, áttir Rúnar bróður minn, og kynntist föður okkar, Birni Kristmanni Guðmundssyni, eftir að hann fluttist frá Fáskrúðs- firði. Á Hringbrautinni áttum við margar góðar fjölskyldustundir og minningar. Ég man eftir rab- arbaranum, sem óx í garðinum hans afa, þeim sem þú sauðst í sultu; sunnudögunum þegar við horfðum á þættina „Húsið á sléttunni“ og miðvikudagskvöld- unum þegar við horfðum öll saman á Dallas í sjónvarpinu. Heima á Álfaskeiðinu var mat- urinn ávallt til reiðu í hádeginu, þ.á m. soðinn fiskur, kartöflur og rúgbrauð. Á sunnudögum var svo gjarnan lambahryggur, sem þú breyttir í kássu á kvöld- in. Á aðfangadag jóla voru alltaf kökur, kakó og kaffi fastur liður rétt eftir hádegi, þegar fjöl- skyldan kom saman. Þú varst alveg einstök mamma, bæði ættingjar og vinir okkar höfðu orð á því. Þú tengdist fólki og sýndir því áhuga. Alls staðar hittir þú fólk og ættingja. Þú varst eins og opin ættfræðibók ásamt því að vera glettinn og gerðir gys að hlutum og fólki. Ég minnist þess þegar þú fórst í kirkjugarðinn að hitta ætt- ingjana; þú tafðist sökum þess að þú hafðir hitt svo marga í garðinum, sem þú þekktir. Þá var hlegið og brandarinn lifir í fjölskyldunni. Stundum sagðirðu óvart eitthvað fyndið, sem við vissum ekki hvort væri grín eða alvara. Eyjólfur A. Björnsson. Gestrisni Erlu var alkunn og enginn fór soltinn á braut, hvorki í orði né á borði. Um leið og gesti bar að voru kökur, vöfflur og pönnukökur á borð- um, heimabakað oft í hverri viku. Samtölin voru innihaldsrík og talið barst oft að ættingjum og samferðafólki. Allir vissu að Erla bjó að mikilli þekkingu um ætt sína og sögu, fyrr og nú. Ef hún vissi það ekki, vissi það enginn, og því var alltaf hægt að spyrja hana. Eldhúsið hennar var eins og umferðarmiðstöð gesta, stoppistöð ættingjanna, einskonar samkomustaður. Þetta gat hún allt, þrátt fyrir að hafa misst heyrn ung að aldri, sem óneitanlega setti henni skorður um svo margt í lífinu. En Erla gafst aldrei upp og stóð alltaf í fæturna. Það gekk henni í móðurarf, að það mátti ekki stjana við hana en Erla hugsaði vel um alla aðra. Þjón- ustan var hennar dyggð, æðst allra dyggða. Það er mikið lán að hafa átt Erlu að, móður mína. Hún var minn klettur og mín eyru, hlust- aði á mig og studdi mig. Hún tengdist mér nánum böndum og var okkur fyrirmynd í svo mörgu. Oftar en ekki ræddum við saman um lífið og tilgang þess, um hulda heima og geima, fólkið hinum megin og að allt ætti sér bæði stað og stund þar sem að tilgangur væri með öllu og tilviljun harla fátíð. Erla var berdreymin og trúði á lífið handan við móðuna. Henni bár- ust oft skilaboð í draumi sem hún deildi með okkur, stundum frá ættingjum sem voru farnir. Í samtali okkar, ekki fyrir löngu, barst í orð að þegar dyr- unum yrði upp lokið skyldir þú ganga inn í ljósið og óttast það eigi. Þegar þú ert tilbúin að kveðja opnast ljósið fyrir þér. Síðasta samtal okkar Erlu, móður minnar, var föstudags- kvöldið 2. desember. Hún var glöð og kát, enda mikil veisla í gangi, þegar við fögnuðum fer- tugsafmæli tengdasonar hennar. Hún sagðir mér að hún hefði orðið svo hissa þegar hann bankaði upp á 16 ára gamall til að spyrja um Bergþóru Pálínu, systur mína, því að hún hafði valið þennan góða dreng þegar hann var aðeins tveggja ára. Þannig var hún af Guði gerð. Við sátum saman og töluðum lengi en eftir veisluna sá ég hana ekki meir, fyrr en að drengurinn kom að sækja mig eldsnemma að morgni, sunnu- dagsins 4. desember, vegna þess að hún varð skyndilega mjög veik, en þá var hún farin þegar ég kom. Þetta varð langur og einkennilegur dagur þar sem að fjölskyldan öll varð harmi sleg- inn. Enginn sá þetta fyrir og skyndilega höfðum við misst stóran stein úr ættinni. Móðir, þín verður ætíð minnst og saknað, megi Guð geyma þig og megir þú lifa í okkar hjarta. Ég kveð þig með ljóð mínu, Stundin: Eitt augnablik Í lífsins mynd, ein urtin kvik úr ljóssins lind. Úr Hóli heldur á Hólmatind, tíminn í tómið hverfull í fyrnd. Stundin siglir sundin inn, vegur vitund vagninn sinn. Tíminn tekur tollinn sinn, visnar urtin vorgleðin. Halla tekur á haustlitinn, himnahöllin hringir inn. Stutt er stundin strokin mér, vitjun valin voldug er. Hrundinn hóllinn helgur þér, móðir mærðin mikils er. (Eyjólfur Andrés Björnsson) Með kveðju frá, Sunnevu G. Kolbeinsdóttur, Evu Carmen Eyjólfsdóttur, Anítu Björk Eyjólfsdóttur. Elsku amma okkar er dáin og það gerðist svo snögglega. Við gátum ekki kvatt hana en okkur langar að minnast hennar. Amma var alltaf glöð og ynd- isleg. Þegar við komum í heim- sókn var hún búin að baka pönnukökur eða vöfflur. Þegar við héldum upp á afmælin okkar þá mætti amma með pönnukök- ur. Hún var pönnuköku- og vöfflumeistari. Amma vildi vita hvernig okkur gengi í skólanum og íþróttum. Svo hafði amma líka skoðun á því hvaða tóm- stundir við ættum að stunda. Amma vildi að Atli yrði módel og Kristín yrði dansari. Hún gaf sér tíma til að spila við okkur en spilastokkurinn var alltaf á borðinu hjá henni. Svo var hún góð í að sauma föt, breytti föt- unum sínum þegar hún vildi og saumaði líka púða og dúkkuföt. Amma heyrði mjög illa og þurfum við að tala skýrt við hana svo hún heyrði til okkar. Stundum kom það fyrir að hún gat ekki heyrt til okkar þegar við hringdum til ömmu og afa. Svo var amma mikill snillingur í krossgátum en sagðist aldrei hafa verið góð í íslensku sem er ótrúlegt. Vonandi líður þér vel þar sem þú ert núna. Við sökn- um þín og munum ávallt minn- ast þín, elsku amma. Þín barnabörn, Atli Már og Kristín Ylfa. Bréf til ömmu Erlu. Elsku besta amma mín, ég á erfitt með að trúa að dagurinn í dag sé raunverulegur. Ég bíð eftir að vakna upp frá vondum draumi. Ég var viss um að börnin mín yrðu orðin frekar stálpuð þegar þú myndir kveðja okkur. En ég er ævinlega þakk- lát fyrir góðu stundirnar sem þú náðir að eiga með börnunum mínum þó að stutt hafi verið og að þú hafir fengið að eignast þessi tvö langömmubörn. Fyrir þig skipti fjölskyldan mestu máli og varstu montin af stækk- andi fjölskyldu þinni. Það hefur alltaf verið mikill gestagangur hjá þér enda varstu glettin og skemmtilegur karakter. Það var gaman að vera í kringum þig. Ég man þau ófáu skipti sem ég kom í heimsókn og þú varst á leiðinni út um dyrnar. Afi var búinn að taka bílinn út úr bíl- skúrnum og þið bæði búin að hafa ykkur til. Það þýddi ekki að segja „ég kem seinna“, þú einfaldlega slepptir öllum plön- um til þess að geta lagt kökur og kræsingar á borð fyrir mann. Allir tala svo vel um þig. Þú vildir alltaf kjafta við alla þótt heyrnin væri slæm og þú heyrðir ekki endilega hvað sagt var. Þú hafðir svo gaman af fólki og lést heyrnina ekki stoppa þig. Við eigum margar góður minningar saman, elsku amma, enda vorum við góðar vinkonur. Það þurfti lítið til að gleðja þig. Ég man ennþá viðbrögð þín þegar ég dró hjartadrottn- inguna úr spilastokknum þín- um. Það var eins og ég hefði unnið stærsta lottóvinninginn. Þú sagðir mér að spilið táknaði eitthvað gott og þú varst viss um að lukkan myndi fylgja mér. Lukkan hefur svo sannarlega fylgt mér seinustu árin þangað til í morgun. Mamma kom heim til mín og vakti mig með þeim fréttum að þú værir farin. Þetta voru óvæntar og erfiðar fréttir. Tengsl okkar voru svo sterk og mér þykir svo vænt um þig, elsku amma. Ég veit að þú varst ekki tilbúin að kveðja okkur strax en ég veit líka að þú ert í góðum höndum. Þú átt eftir að fylgjast með okkur, passa upp á okkur og stríða okkur af og til þegar tækifæri gefst. Elsku amma, eins og þú sagðir alltaf við mig, „þú kíkir við hjá mér þegar þú getur“. Þín Eydís Erla. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 Að fá að fara í bíó, alltaf þegar mig langaði. Að fá alltaf aukapening fyrir nammi í bíó. Að fara til Reykjavík- ur og fá að gista á hóteli. Að láta kaupa sig til tannlæknis. Að fá kaup fyrir að raða flöskum á sjó- mannastofunni. Að fá að salta síld alla nóttina tólf og þrettán ára. Að sansa mömmu á að vera ekki í upphlut á fermingardaginn minn. Að láta keyra sig í Ljósvetn- ingabúð á ball. Að láta keyra sig í Vaglaskóg á útihátíð. Að fá lán- aðan bílinn hvenær sem var. Að Sigurvin Elíasson ✝ Sigurvin Elías-son fæddist 9. janúar 1918. Hann lést 26. nóvember 2016. Útför Sigurvins hefur farið fram í kyrrþey. hlaupa með honum yfir nýrunnið hraun á Gjástykki. Að vera alltaf til staðar. Að vera svo skiln- ingsríkur þegar ég skildi og kom með annan maka. Þetta er lýsing á stjúpa mínum, sem vildi allt fyrir mig gera. Þó að ég væri mikið fiðrildi fann hann alltaf lausn sem við gætum mæst á. Það var ólýsanleg tilfinn- ing að fá allt í einu pabba, pabba sem var svo skilningsríkur og góð- ur. Við áttum ágætlega saman, þó að við værum ekki alltaf sammála. Það eru góðar minningar sem ylja manni þegar einhver sem maður metur mikils hverfur á braut. Takk fyrir allt. Þín stjúpdóttir, Þórhalla. Hryggðar hrærist strengur hröð er liðin vaka ekki lifir lengur ljós á þínum stjaka. Skarð er fyrir skildi skyggir veröldina eftir harða hildi horfin ertu vina. (H.A.) Elskuleg vinkona mín og fóst- ursystir lést langt um aldur fram fyrir röskum tveimur ár- um, þann 24. nóvember 2014. Í dag hefði hún orðið 75 ára hefði henni auðnast líf. Drífa Jónsdóttir ✝ Drífa Jóns-dóttir fæddist 14. desember 1941. Hún lést 24. nóv- ember 2014. Útför Drífu fór fram 4. desember 2014. Drífa var fædd á Klukkufelli í Reyk- hólasveit, en þar bjuggu foreldrar hennar, Jón og Val- gerður, stórbúi. Ég átti því láni að fagna að vera þar í sveit í fjögur sumur. Þar naut ég góðs atlætis og hlýju. Með þátt- töku eftir getu í daglegum bústörfum þroskaðist maður og lærði margt gagnlegt. Það var mikil gæfa fyrir borg- arstúlkuna að fá að kynnast sveitalífinu og því góða fólki sem þar bjó. Mér er efst í huga innilegt þakklæti fyrir okkar góðu kynni og samveru, sem ég bjó að alla tíð. Guð blessi minningu hennar. Jensína Sigurborg Jóhannsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, HALLVARÐUR EINVARÐSSON, fyrrverandi ríkissaksóknari, lést 8. desember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 20. desember klukkan 13. . Erla Magnúsdóttir Kjærnested, Elín Vigdís Hallvarðsdóttir, Gísli I. Þorsteinsson, Einar Karl Hallvarðsson, Þórhildur B. Þórdísardóttir, Sunna Ólafsdóttir, Þröstur Jóhannsson, Anna Sigurveig Ólafsd., Björn Magnússon, Ragna Ólafsdóttir, Emil Ólafsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNHEIÐUR HJARTARDÓTTIR, lést 9. desember á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Lang- holtskirkju þriðjudaginn 20. desember klukkan 13. . Sigrún Hjördís Pétursdóttir, Kristinn Kristjánsson, Sigurður J. Pétursson, Sverrir Pétur Pétursson, Ólöf Birna Garðarsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Brynjólfur Smárason, barnabörn og barnabarnabörn. Nokkur þakkar- orð til góðrar konu sem ég kynntist í barnæsku. Það var hún Ásta, mín góða vinkona og mamma hennar Hildar, æsku- vinkonu minnar. Ásta andaðist 26. nóvember síðastliðinn, 98 ára að aldri. Það var árið 1949 sem ég kom fyrst með Hildi heim að Bústaðablokk til Ástu og Helga, sem þar bjuggu ásamt dætrun- um Hildi og Bryndísi, síðan hef- Ásta B. Ágústsdóttir ✝ Ásta B. Ágústs-dóttir fæddist 28. ágúst 1918. Hún lést 26. nóvember 2016. Útför Ástu fór fram 7. desember 2016. ur þessi vinátta haldist. Ásta var einstök kona, blíð og góð. Það var líka gott að hlæja með henni Ástu. Það gátum við í símtölum og gerðum í gegnum árin. Hún var ljúflingur í alla staði og allt hennar fólk fékk að njóta þess, enda var mikill samhugur á milli þeirra. Það er ríkidæmi að hafa haft hana Ástu svona lengi hjá sér. Elsku Hildur, Bryndís og fjöl- skylda. Hugheilar samúðar- kveðjur frá mér og mínum. Góð kona er gengin. Sveinsína (Sína). Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur Bjarni Guðjónsson ✝ Bjarni Guð-jónsson fæddist 25. desember 1931. Hann lést 29. nóv- ember 2016. Útför Bjarna fór fram 10. desember 2016. þá fær að hljóma lífs- ins ljóð og lag sem tilgang hef- ur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson) Hvíldu í friði, elsku pabbi. Hafdís Björg, Una Birna, Kristinn, Guðjón, Katrín Erla og Jón Þór. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.