Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Björn Halldórsson, formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda,á 60 ára afmæli í dag. „Árin eftir hrun voru mjög góð og til við-bótar lágu gengi var hækkun á verði skinna. Það féll síðan og
þetta ár hefur verið rekið með miklu tapi, en nú horfir til betri vegar.
Frá því í september er verðið aftur farið að hækka og góðar líkur á því
að það haldi áfram. Framboð á skinnum hefur líka minnkað gífurlega
og ef markaðslögmálin virka þá mun verðið halda áfram að hækka.“
Björn býr á Akri í Hofsárdal í Vopnafirði og er þar í búskap ásamt
mágkonu sinni og bróður. „Svo á konan mín smá hlut í þessu. Við erum
með mjólkurkýr, kindur og minka og slatta af skógrækt og smá æðar-
dún, svona sitt lítið af hverju.“
Björn hefur mjög gaman af því að ferðast og var staddur á flugvell-
inum í Frankfurt þegar blaðamaður ræddi við hann í gær. „Við erum á
leiðinni til Síle og Falklandseyja, en ég hef aldrei komið til Suður-
Ameríku. Við verðum komin inn á hótel í Síle í fyrramálið og ég býst við
að verða sofandi á afmælisdaginn. Ég fór í burtu til að þurfa ekki að
halda upp á afmælið og ætla því ekki að halda upp á það einhvers staðar
annars staðar.“
Eiginkona Björns er Else Möller, verkefnastjóri hjá Austurbrú. „Hún
er helsti jólatrjáasérfræðingur landsins. Ég á einn son, Bergþór Björns-
son sem er læknir í Nyköping, og tvö barnabörn, stúlku sem er 9 ára og
strák sem er 3 ára.“
Ljósmyndari/Hörður Kristinsson
Bóndinn Björn er með fjölbreyttan búskap í Vopnafirði.
Sofandi í Síle á
afmælisdaginn
Björn Halldórsson er 60 ára í dag
H
annes Pálmi Pét-
ursson fæddist á
Sauðárkróki 14. des-
ember 1931 og ólst
þar upp. Fyrir fimm
árum gaf Hannes út endurminn-
ingabók sem nefnist Jarðlag í tím-
anum – minningamyndir úr barn-
æsku, og hefst hún svo: „Ég stend í
gömlum sporum á Nafabrúninni fyr-
ir ofan Sauðárkrók sunnan Kirkju-
klaufar, skyggnist um, kann samt
utan að það sem ég sé, þekki það
ekki síður en línurnar í lófa mínum.
Hingað hraða ég mér alltaf þegar
leiðin liggur á slóðir uppvaxtarára
minna.“ Á þessum stað hefur verið
komið fyrir heiðurstákni um
Hannes.
Náms- og starfsferill
Hannes varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1952, var við
nám í germönskum fræðum við há-
skólana í Köln og Heidelberg 1952-
54 og lauk kandídatsprófi í íslensk-
um fræðum frá Háskóla Íslands
1959. Hannes var útgáfustjóri Smá-
bókaflokks Menningarsjóðs 1959-69
og Alfræði Menningarsjóðs 1972-
76. Hann sat í ritstjórn Skagfirð-
ingabókar, ársrits Sögufélags Skag-
firðinga, 1966-73 og hefur annast
útgáfu margvíslegra annarra rita
frá 1957.
Þegar Hannes var aðeins 23 ára,
kom út fyrsta ljóðabók hans, Kvæða-
bók, sem vakti þegar mikla athygli.
Síðan þá hefur hann sent frá sér
fjölda bóka, bæði ljóðabækur, fræði-
bækur, frásagnarþætti, smásögur
og ferðasögur, auk nokkurra þýð-
inga.
Hannes hefur hlotið viðurkenn-
ingar fyrir verk sín, meðal annars
Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
ljóðabókina Eldhyl árið 1993, Silfur-
hestinn, bókmenntaverðlaun dag-
blaðanna 1973, þýsku Henrik Stef-
fens-verðlaunin 1975 og verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar 2012. Hann
er heiðursfélagi Rithöfunda-
sambands Íslands og hefur verið í
heiðurslaunaflokki listamanna frá
1983.
Bækur eftir Hannes hafa verið
þýddar á nokkur erlend tungumál
og fjórar ljóðabóka hans, Stund og
staðir, Innlönd, Heimkynni við sjó
og 36 ljóð, hafa verið lagðar fram til
Bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs.
„Núna fæst ég helst við bók-
menntafræði, er til dæmis að grúska
í ljóðum eftir ýmis skáld. Svo hef ég
undanfarið unnið að nýrri útgáfu á
öllu því sem ég hef skrifað um þjóð-
leg fræði og kemur út í tveimur
bindum á næsta ári.“
Hannes Pétursson rithöfundur – 85 ára
Við Reykjavíkurtjörn sl. haust Frá vinstri: Haukur, Ingibjörg, Ingibjörg Fía, Hannes og Hannes Pétur.
Stendur í gömlum sporum
með útsýni til allra átta
Í dag eiga okkar elsku amma og
afi, Guðrún Eyberg og Sæ-
mundur Árnason, 55 ára brúð-
kaupsafmæli. Afi og amma eru
okkur miklar fyrirmyndir. Þau
eru ævintýragjörn, fróðleiksfús,
kærleiksrík, skemmtileg, ráða-
góð og full af visku og húmor.
Til hamingju með daginn. Okkar
bestu kveðjur, barnabörnin sjö.
Árnað heilla
55 ára
brúðkaupsafmæli
Þór Gunnlaugsson læknamiðill á 70 ára afmæli í dag. Hann
starfaði sem lögreglumaður í 43 ár innanlands sem utan
og fór á eftirlaun árið 2006 þegar hitt starfið í lækningum
að handan fór að auka bankið og hefur sinnt því síðan.
70 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af