Morgunblaðið - 14.12.2016, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Erla Rún Guðmundsdóttir
erlarun@mbl.is
„Þetta verður bara svona stutt og laggott í hádeginu,“
segir Andri Björn Róbertsson bassabarítón um hádeg-
istónleika í Hannesarholti klukkan 12.10 í dag. Andri
Björn og Ruth Jenkins-Róbertsson sópran munu þar
flytja ljóð, aríur og jólalög ásamt Kristni Erni Krist-
inssyni píanóleikara. „Þetta eru mikið til lög sem við höf-
um sungið áður en eitthvað nýtt líka.“
Að sögn Andra Björns samanstendur efnisskráin af ís-
lenskum sönglögum, þýskum ljóðum, óperuaríum, jóla-
lögum og enskum þjóðlögum. „Við syngjum til dæmis
„Það á að gefa börnum brauð,“ aríur eftir bæði Berlioz
og Ambroise Thomas og síðan þýsk ljóð eftir Mendels-
sohn, Schubert, Brahms og Loewe. Það verður fjöl-
breytni í efnisskránni.“
Auk þess eru á efnisskránni íslensku sönglögin „Vísur
Vatnsenda-Rósu“ í útsetningu Jóns Ásgeirssonar og „Þú
ert“ eftir Þórarin Guðmundsson. „Svo erum við með
þjóðlög frá Tyneside í Englandi þaðan sem Ruth er og
við búum,“ segir Andri Björn. Sum lögin syngja þau sitt í
hvoru lagi en önnur saman.
Margverðlaunuð og mikið að gera
Andri Björn lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í
Reykjavík og flutti haustið 2010 til Englands þar sem
bæði hann og Ruth námu söng við Royal Academy of
Music í London. Síðan þá hafa þau sungið í óperum og á
tónleikum víðsvegar um heim og bæði unnið til fjöl-
margra verðlauna. Ruth vann önnur verðlaun í Hilde-
gard Zadek-keppninni í Vínaborg árið 2015 og hefur
einnig hlotið Pavarotti-verðlaunin, svo eitthvað sé nefnt.
Andri Björn var HSBC-verðlaunahafi á Aix en
Provence-tónlistarhátíðinni árið 2014 og var tilnefndur
sem Bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum
árið 2013.
Ruth og Andri Björn héldu síðast sameiginlega tón-
leika á Íslandi árið 2012 enda er mikið að gera hjá þeim
báðum. Ruth hefur til að mynda túlkað hlutverk Fras-
quita í Carmen, Norina í Don Pasquale, Papagena og
Næturdrottninguna í Töfraflautunni en auk þess komið
fram í Wigmore Hall, King’s Palace og víðar. Þá var
Ruth listakona mánaðarins í Opera Now í febrúar 2014.
Andri Björn hefur að sama skapi verið upptekinn við
óperur, ljóðasöng og fleira. Hann hefur meðal annars
sungið í Jóhannesarpassíu Bachs, Messíasi Handels og
sálumessu og krýningarmessu Mozarts. Þá er hann í
hópi svokallaðra Harewood-listamanna hjá ensku þjóð-
aróperunni sem býður söngvurum framúrskarandi þjálf-
un og tækifæri til að koma fram með einni stærstu óperu
heims.
Undanfarið ár hefur Ruth meðal annars sungið
Næturdrottninguna í Töfraflautunni með Nýsjálensku
óperunni og Andri Björn söng hlutverk Angelotti í Toscu
með ensku þjóðaróperunni. Framundan hjá Andra Birni
er hlutverk Ceprano í Rigoletto með ensku þjóðaróper-
unni og mun Ruth meðal annars flytja Carmina Burana í
Aldeburgh á nýju ári. „Það er nóg um að vera.“
Hádegistónleikar í Hann-
esarholti klukkan 12.10 í dag
Jólalög, þjóðlög og fleira
Sjarmör Andri Björn var tilnefndur sem Bjartasta von-
in á íslensku tónlistaverðlaununum árið 2013.
„Fjölbreytni í efnisskrá“
Bók skáldsins og rapparansKött Grá Pje, Perurnar ííbúðinni minni, er full afsögum; mislöngum prósa-
brotum þar sem dansað er á mótum
forma sem kölluð hafa verið prósa-
ljóð, smáprósar, örsögur, stuttar
smásögur, fant-
asíur, anekdótur
– höfundurinn
kallar þetta ein-
faldlega texta og
á það víðfeðma
orð ágætlega við
um fjölbreytileg
verkin í bókinni. Í
henni eru hátt í
annað hundrað
textar, frá tæplega einni línu að
lengd („Langhlaup“: Einlægt sjálfs-
hatur er langhlaup. (16)) upp í eina
blaðsíðu eða svo.
Höfundurinn, eða sá sem talar til
lesandans, fjallar um innihaldið í síð-
asta textanum, sem er stuttur, „Sög-
urnar í þessari bók“: Í þessari bók
eru engar líkingar nema einsog.
Sögurnar í þessari bók ber að lesa
bókstaflega þó einhverjum kunni að
þykja þær barnalegar (90). Fyrir-
mælin að lestri loknum, að sögurnar
beri að taka bókstaflega, eru írónísk
enda innihaldið mikið á lendum fant-
asía og furða. Dregnar eru upp
myndir af hversdagslegum veruleika
þar sem eitthvað óvænt gerist, alls
ekki er allt sem sýnist, eða upplýst
um hliðar á heiminum sem lesand-
anum hefur verið ókunnugt um. Í
einum texta rignir fólki fram af svöl-
um blokkar með lök bundin um hálsa
eins og skikkjur; á Arnarnesi hrynur
turn gerður úr tánöglum góðborg-
ara; svipur þýsks greifa birtist sögu-
manni ætíð í sturtu; maður nokkur
var svo „villtur í draumi að þegar
hann vaknaði þorði hann ekki fyrir
sitt litla líf út úr svefnherberginu“;
og í Fógetagarðinn er kominn
stálgrár „kafbátur með beyglaða
sjónpípu og skiptist á merkjasend-
ingum við herkastalann. Loftið er
lævi blandið. Kærleikssendingar
liggja niðri. Hér er tekist á um óræð-
ar dyggðir og vammlausir kettir
halda sig fjarri“ (56).
Og fyrst minnst er á ketti, þá
koma þeir víða fyrir í textunum og
eru slægir, óræðir, og hafa manninn
undir í textanum „Kattakúpullinn“,
þar sem allir íbúar borgar drepa sig
smám saman eftir að ægilegur kúp-
ull hefur verið reistur yfir hana og
enginn lifði nema kettir og átu „eig-
endur sína heitna og önnur hræ. Og
undir kúplinum varð ríki kattanna.
Þeir eins og mannfólkið áður fögn-
uðu ævarandi blíðviðri. Eru á þann
eina hátt líkir mönnum“ (89).
Textar Kött Grá Pje eru æði mis-
jafnir og misáhrifamiklir. Þeir bestu
eru áhugaverður skáldskapur,
hnyttnir, frumlegir, kveikja óvæntar
myndir í huga lesandans, vel mótaðir
og byggðir, en aðrir ná ekki flugi,
óskáldlegar gaman- eða furðusögur
sem eru sumar hreinlega banal. Þá
gerir höfundurinn nokkuð af því að
draga ályktun í lok ýmissa texta, út-
skýra innihald eða hnykkja á, í stað
þess að treysta þeim fyrir sigling-
unni inn í skilning þess sem les. Því
hefðu höfundur og yfirlesarar hans
mátt ganga harðar fram við að skera
ófleygu textana frá hinum betri, því
bókin líður nokkuð fyrir þá, heildar-
upplifunin verður ekki jafn ánægju-
leg og betri hlutar verksins verð-
skulda.
Hönnun og umbrot Jóns Ágeirs er
framúrskarandi og vinnur vel með
textunum. Kápan vísar á hugvits-
samlegan hátt í þekktan umbúnað
ljósapera og á milli textanna á síð-
unum má síðan sjá alls kyns skrúfur
og nagla, misskakka og beyglaða,
ganga inn í síðurnar og má sjá text-
ana hanga á þeim.
Perurnar í íbúðinni minni er at-
hyglisvert byrjandaverk, þótt
skerpa hefði mátt betur á textaval-
inu. „Síðdegis í janúarlok“ er gott
dæmi um einn þeirra bestu, hvar
skáldið nær að skapa mynd með vel
lukkuðum líkingum sem lifna:
Þegar þú skrúfar frá vatninu þyrlast
matarleifar upp dálítið svona eins og
marflær í flæðarmáli og þú kippir að þér
höndunum og þig hryllir við, en kemur
fljótt til sjálfrar þín og klökknar vegna
barnanna. Það er farið að snjóa. (60)
Kött Grá Pje Fyrsta bók hans er
„athyglisvert byrjandaverk“.
Fólki rignir fram af svölum
Textar
Perurnar í íbúðinni minni bbbnn
Eftir Kött Grá Pje.
Bjartur, 2016. 96 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fim 15/12 kl. 20:00 133. s Fös 6/1 kl. 20:00 138. s Lau 21/1 kl. 20:00 143. s
Fös 16/12 kl. 20:00 134. s Sun 8/1 kl. 20:00 139. s Sun 22/1 kl. 20:00 144. s
Lau 17/12 kl. 20:00 135. s Fim 12/1 kl. 20:00 140. s Fim 26/1 kl. 20:00 145. s
Sun 18/12 kl. 20:00 136. s Lau 14/1 kl. 20:00 141. s Lau 28/1 kl. 20:00 146. s
Mán 26/12 kl. 20:00 137. s Sun 15/1 kl. 20:00 142. s Sun 29/1 kl. 20:00 147. s
Janúarsýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 17/12 kl. 13:00 22.s Lau 14/1 kl. 13:00 26.s Sun 29/1 kl. 13:00 30. s
Sun 18/12 kl. 13:00 23.s Sun 15/1 kl. 13:00 27.s Lau 4/2 kl. 13:00 31. s
Mán 26/12 kl. 13:00 24.s. Lau 21/1 kl. 13:00 28.s Lau 11/2 kl. 13:00 32. s
Sun 8/1 kl. 13:00 25.s Sun 22/1 kl. 13:00 29.s Sun 19/2 kl. 13:00 33. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 4/1 kl. 20:00 Lau 7/1 kl. 20:00 Síðasta s.
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðasta sýning.
Ræman (Nýja sviðið)
Mið 11/1 kl. 20:00 Frums. Sun 15/1 kl. 20:00 3. sýn Fim 19/1 kl. 20:00 5. sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 2. sýn Mið 18/1 kl. 20:00 4. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 6. sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014!
Jólaflækja (Litli svið )
Lau 17/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 18/12 kl. 13:00 Aukas. Mán 26/12 kl. 13:00 Aukas.
Bráðfyndin jólasýning fyrir börn
Jesús litli (Litli svið )
Fim 15/12 kl. 20:00 7. sýn Sun 18/12 kl. 20:00 9. sýn
Lau 17/12 kl. 20:00 8. sýn Mán 26/12 kl. 20:00 aukas.
Margverðlaunuð jólasýning
Hún Pabbi (Litla svið )
Fös 6/1 kl. 20:00 Frums. Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 5 sýn
Lau 7/1 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/1 kl. 20:00 4. sýn Lau 21/1 kl. 20:00 6. sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning
Salka Valka (Stóra svið)
Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn
Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn
Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn
Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Fös 30/12 kl. 19:30 32.sýn Sun 15/1 kl. 19:30 34.sýn Fim 26/1 kl. 19:30 36.sýn
Sun 8/1 kl. 19:30 33.sýn Fös 20/1 kl. 19:30 35.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 13/1 kl. 20:00 Akureyri Fös 27/1 kl. 19:30 35.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 Akureyri Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn
Fim 26/1 kl. 19:30 34.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 37.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Þri 20/12 kl. 19:30 Forsýn Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn
Mið 21/12 kl. 19:30
Aðalæfing
Fös 13/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn
Fim 22/12 kl. 19:30 Frums Lau 14/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn
Mán 26/12 kl. 19:30
Hátíðarsýning
Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 17/12 kl. 11:00 Lau 17/12 kl. 14:30 Sun 18/12 kl. 13:00
Lau 17/12 kl. 13:00 Sun 18/12 kl. 11:00 Sun 18/12 kl. 14:30
Sívinsæla aðventuævintýri Þjóðleikhússins 12 árið í röð
Jólakósí með Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs
(Þjóðleikhúskjallari)
Lau 17/12 kl. 18:00
aukatónleikar
Lau 17/12 kl. 21:00
Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs syngja inn jólin í rólegheitastemningu.
Gott fólk (Kassinn)
Fös 6/1 kl. 19:30 Frums Fim 12/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 19/1 kl. 19:30 5.sýn
Lau 7/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 14/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 21/1 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Fös 13/1 kl. 19:30 Mið 18/1 kl. 19:30
Sun 15/1 kl. 14:00 Fim 19/1 kl. 19:30
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 16/12 kl. 20:00
Tilraunasýn
Lau 14/1 kl. 20:00 4.sýn Fös 20/1 kl. 22:30 8.sýn
Fim 12/1 kl. 20:00 1.sýn Lau 14/1 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/1 kl. 20:00 9.sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 2.sýn Fim 19/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 21/1 kl. 22:30 10.sýn
Fös 13/1 kl. 22:30 3.sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7.sýn Fim 26/1 kl. 20:00 11.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn
Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan)
Lau 14/1 kl. 15:00
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Sýningum lýkur í nóvember!