Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Fólk beðið að fylgjast með spám
2. Íbúar Aleppo kveðja umheiminn
3. „Ég ætla aldrei aftur að prófa …
4. Sendi pabba skilaboð og bað um hjálp
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Haldið verður ljóðakvöld á Norður-
bakkanum, bókakaffinu í Hafnarfirði,
í kvöld kl. 20. Þar lesa upp úr verkum
sínum Þorsteinn frá Hamri, Kristian
Guttesen, Sigurbjörg Þrastardóttir
og Sunna Ross. Kynnir er Birgitta
Jónsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Skáldin lesa upp úr
verkum sínum
Rithöfundar
lesa upp úr nýút-
komnum bókum
sínum í Bíó Para-
dís í kvöld kl. 20
og er aðgangur
ókeypis. Lilja Sig-
urðardóttir les
upp úr Netinu,
Sigríður Hagalín
Björnsdóttir úr Eylandi, Hallgrímur
Helgason úr Lukku, Sverrir Norland
úr Fyrir allra augum, Ragnar Jónas-
son úr Drunga og Kött Grá Pje úr
Perunum í íbúðinni minni.
Upplestur höfunda í
Bíó Paradís í kvöld
Jólaboð til þín er yfirskrift styrkt-
artónleika sem haldnir verða í Akur-
eyrarkirkju í kvöld kl. 20. Kynnir er
Hildur Eir Bolladóttir, prestur kirkj-
unnar, og meðal þeirra
sem koma fram eru
Magni Ásgeirsson,
Marína Ósk, Elvar
Jónsteinsson, Halla
Ólöf Jónsdóttir og
Rúnar Eff, sem
skipuleggur
tónleikana.
Jólaboð til þín í
Akureyrarkirkju
Á fimmtudag Gengur í austan og suðaustan 18-23 m/s með tals-
verðri rigningu og hita 1-6 stig, en lengst af úrkomulítið nyrðra.
Vestan 18-23 með skúrum eða éljum syðra um kvöldið og kólnar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 15-23 m/s austantil, en annars
norðvestlæg átt, 8-15, hvassast á annesjum. Víða talsverð rigning
og slydda inn til landsins vestantil, en úrkomulítið norðaustantil.
VEÐUR
Skýringar þýska handknatt-
leiksfélagsins Füchse Berlin á
brottvikningu þjálfarans Erlings
Richardssonar í gær eru ekki
merkilegar. „Þess vegna voru
búnar til einhverjar einfaldar
ástæður eins og getið er um að
framan í greininni um stjórn-
unarstíl Erlings eða of fáa sigra
til að leita að ástæðum til að
segja Erlingi upp þegar ekki var
hægt að kvarta yfir árangurs-
leysi,“ segir Ívar Benediktsson í
fréttaskýringu. »1
Skýringar Füchse
ekki merkilegar
Emelía Ósk Gunnarsdóttir er 18 ára
körfuknattleiksstúlka í Keflavík sem
er þegar komin í lykilhlutverk hjá
efsta liði Dominos-deildarinnar.
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari henn-
ar, segir óhikað að með
sama áframhaldi verði
hún fljótlega í stóru
hlutverki í landsliði Ís-
lands þar sem hún fékk
sín fyrstu tækifæri í
síðasta mánuði. »2
Fljótlega í stóru hlut-
verki í landsliðinu
,,Menn hér tala um það að ég hafi
fengið góða kennslu í Hollandi en ein-
hvern tímann verða drengir að verða
að mönnum. Þetta er svolítill
drengjafótbolti á köflum í Hollandi.
Hér er harkan meiri og maður hefur
þurft að taka skref fram á við og ég á
eftir að taka fleiri skref,“ segir Hjört-
ur Hermannsson, leikmaður danska
liðsins Bröndby. »4
Meiri harka og hef þurft
að taka skref fram á við
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Með þessu vildum við þakka fyrir
ómetanlegan stuðning og um leið
benda á hve stóran sess leikstofan
skipar í bataferli krakkanna,“ segir
Sigríður Þorsteinsdóttir, móðir
barns sem greinst hefur með
krabbamein og félagsmaður í
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna (SKB), í samtali við blaðið.
Vísar hún í máli sínu til þess að í
gær tók mömmuhópur innan SKB
sig saman og blés til fögnuðar til
heiðurs Sigurbjörgu A. Guttorms-
dóttur, leikskólakennara á leikstofu
Barnaspítala Hringsins, en hún
verður sextug nk. fimmtudag.
Á leikstofunni starfa þrír leik-
skólakennarar í tveimur stöðugild-
um og vinna þeir með börnunum í
rólegu og barnvænu umhverfi, en
þar er lögð áhersla á að koma til
móts við þarfir hvers barns í gegn-
um leik og skapandi störf.
„Krakkarnir geta mætt þangað og
fengið mikilvægt tækifæri til að
gleyma sér – einbeita sér bara að því
að föndra, spila eða leika. Konurnar
sem vinna á leikstofunni hafa því létt
mjög á okkur á erfiðum tímum og
veitt um leið dýrmæta hjálp,“ segir
Sigríður og bætir við að ef börnin
séu of veik til að geta mætt á leik-
stofuna – þá hafa leikskólakenn-
ararnir gjarnan mætt á sjúkrastof-
una til þeirra í staðinn. „Þetta finnst
mér mjög mikilvægur hluti í öllu
þessu ferli,“ segir hún.
Fjölbreytt og gefandi starf
Sigurbjörg, oftast kölluð Sibba,
hefur unnið með börnum á leikstof-
unni í 27 ár. Hún segir framtak
mömmuhópsins hafa komið sér mjög
á óvart. „Maður átti nú alls ekki von
á þessu, en þetta kemur auðvitað
skemmtilega á óvart,“ segir hún.
Aðspurð segir Sibba aðstöðuna á
leikstofu spítalans afar góða þó að
alltaf megi gera betur og fjölga
starfsfólki.
„Aðstaðan er mjög góð og hér er
eitthvað fyrir alla og þá meira að
segja foreldrana, en við sinnum að
meðaltali 15 til 17 börnum á dag og
er starfið því afar fjölbreytt en um
leið mjög gefandi, segir hún.
Góður staður til að slaka á
Þá segir Sibba afar mikilvægt að
bjóða upp á þjónustu sem þessa inn-
an veggja spítalans svo börnum líði
sem best á meðan meðferð þeirra
stendur þar yfir.
„Okkur finnst mjög mikilvægt að
bjóða upp á þessa þjónustu, en líkt
og við vitum öll, þá er verið að kippa
börnum út úr sínu umhverfi og þau
færð inn í framandi aðstæður. Því
teljum við nauðsynlegt að veita góða
þjónustu svo börnunum líði betur í
þessu ókunna umhverfi,“ segir hún
og bætir við að á leikstofunni geti
börn jafnt sem foreldrar slakað á.
Sibba á leikstofunni heiðruð
Mömmurnar
segja stuðninginn
ómetanlegan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á sjúkrahúsi Sigurbjörg Guttormsdóttir leikskólakennari fékk þakklætisvott fyrir störf sín á leikstofunni.
Afmæliskveðja Sibba fékk m.a. þetta skemmtilega kort frá hópnum.