Morgunblaðið - 19.12.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016
Netverð á mann frá kr. 66.995 m.v. 2 fullorðna í
gistingu. 2. janúar í 9 nætur.Jólapakki
Gran Canaria
& Tenerife
Gefðu jólapakka
í vetrarsól
Frá kr.
66.995 Bókanlegt
til 24. des.
Brottfarir
2. janúar til
24. mars
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Lífeyrisfrumvarpið verður tekið út
úr nefnd á morgun, mánudag,“ segir
Brynjar Níelsson, varaformaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, í samtali við Morgunblaðið í
gær og fer frumvarp um lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins því í aðra um-
ræðu á þinginu í dag. Ef engar breyt-
ingartillögur koma fram er óvíst
hvort frumvarpið fer í nefnd að um-
ræðu lokinni eða beint í atkvæða-
greiðslu.
„Þetta er mjög nauðsynlegt og
mikilvægt mál sem er til bóta fyrir
alla,“ bætir Brynjar við og á einnig
von á að frumvarp um Kjararáð fari
úr nefnd í dag og í aðra umræðu. Þá
eru engar breyt-
ingar fyrirhugaðar
á hinum svokallaða
bandormi, eða
frumvarpi um
ýmsar forsendur
fjárlagafrumvarps
2017.
Efnahags- og
viðskiptanefnd Al-
þingis fundar aftur
í dag en kom ekki
saman um helgina. Fjárlaganefnd
fundaði hins vegar yfir helgina en þar
er til umræðu fjárlagafrumvarp 2017.
Loksins breytinga að vænta
Mikill fjöldi umsagna barst varð-
andi lífeyrisfrumvarpið þrátt fyrir
knappan skilafrest og reyndust skipt-
ar skoðanir á meðal umsagnaraðila um
hvort styðja ætti frumvarpið í núver-
andi mynd.
Alþýðusamband Íslands ítrekar að
samræma þurfi lífeyrisréttindi á al-
mennum og opinberum vinnumarkaði
en það sé forsenda fyrir samtali milli
aðila vinnumarkaðarins varðandi nýtt
samningalíkan. Grundvallarbreyting
hafi verið gerð frá fyrra frumvarpi en
nú er gert ráð fyrir áframhaldandi rík-
isábyrgð á óbreyttum réttindum allra
núverandi elli-, örorku- og makalífeyr-
isþega og sjóðfélaga sem náð hafa 60
ára aldri. Alþýðusambandið geldur þó
varhug við því að ekki hafi verið gerð
greining á fjölda sjóðfélaga sem þessi
breyting nær til, tímarammanum eða
tryggingafræðilegum áhrifum eða
kostnaðaráhrifum á ríkissjóð.
Viðskiptaráð Íslands fagnar því að
loks standi til að stíga skref til breyt-
inga á lífeyriskerfi opinberra starfs-
manna og telur afar mikilvægt að
frumvarpið nái brautargengi á þing-
inu. Nái það ekki fram að ganga kunni
það að hafa alvarlegar afleiðingar fyr-
ir ríkissjóð og stöðugleika á vinnu-
markaði.
Félag íslenskra náttúrufræðinga
styður hins vegar ekki breytingar á
lífeyriskerfinu sem fela í sér skerð-
ingu á réttindum eða kjörum núver-
andi eða framtíðar-félagsmanna og
Bandalag háskólamanna telur frum-
varpið ekki í fullu samræmi við efni
samkomulags ríkis, sveitarfélaga og
opinberu bandalaganna þriggja og
það geti því ekki mælt með afgreiðslu
frumvarpsins í óbreyttri mynd.
Lífeyrisfrumvarp úr nefnd
Nauðsynlegt og mikilvægt mál, segir varaformaður Efnahags- og viðskipta-
nefndar Viðskiptaráð Íslands fylgjandi frumvarpinu en BHM og FÍN hafna því
Brynjar
Níelsson
Uppsteypa á fjögurra hæða
sjúkrahóteli á Landspítalareitn-
um er langt komin. Samkvæmt
upplýsingum frá Gunnari
Svavarssyni, framkvæmdastjóra
Nýs Landspítala, er innivinna
hafin á neðstu hæðinni. Þá er
verið að ganga frá tengibygg-
ingum í K-bygginguna svokölluðu
og yfir í kvennadeildina.
Stefnt er að því að verkinu
ljúki í byrjun sumars, en þá hefj-
ast framkvæmdir á bílastæðum
og torgi á milli sjúkrahótels og
kvennadeildar. Á hótelinu verða
75 herbergi í 3.500 fermetra
rými.
Byggingin er alls 4.258 fer-
metrar að stærð með kjallara og
tengigöngum sem tilheyra hót-
elinu. Það mun tengjast barna-
spítala og kvennadeild um tengi-
gang í kjallara. Gert er ráð fyrir
að byggingarkostnaður nýs
sjúkrahótels verði um tveir millj-
arðar króna með lóða- og
hönnunarkostnaði vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Uppsteypa langt komin
Sjúkrahótel Uppsteypa nýs sjúkrahótels stendur yfir þessa dagana.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í hádeginu í gær voru 98 skip og
bátar, flestir litlir, á kortum Landhelg-
isgæslunnar. Á venjulegum degi hefðu
þau verið um 300,
en þarna kemur til
að fiskiskipaflot-
inn er í höfn vegna
verkfalls sjó-
manna gagnvart
Samtökum fyrir-
tækja í sjávar-
útvegi, SFS, sem
skall á í síðustu
viku.
Sjómenn frá
Bolungarvík voru
meðal þeirra sem sóttu sjó í gær, en
verkfallið nær ekki til smábátasjó-
manna. Bátarnir Fríða Dagmar, Jón-
ína Brynja, Guðmundur Einarsson og
Einar Hálfdánarson fóru allir út í gær-
morgun og komu í land síðdegis.
Ágætlega fiskaðist
„Við vorum í mynni Ísafjarðardjúps
og það fiskaðist ágætlega, þorskur og
ýsa því sem næst til helminga. Ýsan
fer á fiskmarkaðinn og vonandi fæst
gott verð fyrir aflann núna, því fram-
boðið er lítið,“ sagði Egill Jónsson,
skipstjóri á Jónínu Brynju ÍS, í sam-
tali við Morgunblaðið. Í komandi viku,
þeirri síðustu fyrir jól, sagði hann að
menn myndu sækja á sjó eins og veður
leyfði, en spáin væri ekki góð. Þá var
báturinn Þorlákur ÍS frá Bolungarvík
á sjó. Útgerð bátsins er á vegum
áhafnar og nær verkfallið því ekki til
hennar.
Frystitogari Samherja, Oddeyrin
EA, er væntanlegur til Akureyrar á
þriðjudag af miðunum í Barentshafi,
hvaðan er sex daga sigling hingað
heim. „Þetta er grábölvað, núna erum
við með átta skip bundin við bryggju
og bráðum það níunda,“ sagði Kristján
Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja.
„Landvinnslan er stopp og auðvitað
getur þetta haft áhrif á viðkvæman
markað. Þar get ég nefnt til dæmis
Norðmenn sem fara á fullt eftir nýárið
þegar nýtt kvótaár hefst.“
Um 100 skip voru á sjó í gær
Verkfall sjómanna á fiskiskipum bítur Oddeyrin að koma úr Barentshafi
Ljósmynd/Haraldur Guðfinnsson
Sjósókn Útgerð smærri línubáta er uppistaðan í útgerðinni í Bolungarvík. Hér sést landað úr bátum við Brjótinn.
Egill
Jónsson
Köldu lofti úr vestri og norðri sem
leggja mun að landinu á miðvikudag
og fimmtudag fylgir éljagangur og
ekki eru líkur á að snjó sem þá kann
að falla taki upp í síðari hluta vik-
unnar. Margt bendir því til þess að á
aðfangadag verði hvít jörð víðast
hvar á landinu.
Veðráttan framan af vikunni verð-
ur fremur kaflaskipt. Í dag, mánu-
dag, voru líkur á að snjór yrði víða
um landið sunnan- og vestanvert og
allt norður í Skagafjörð. Fylgt gætu
dimm él víða, svo fólk sem er á ferð-
inni þarf að huga vel að færð. Á
morgun, þriðjudag, má gera ráð fyrir
hlýindum, en eftir það verða breyt-
ingar – og þá kemur vottur af vetri.
„Sú hlýja tíð sem verið hefur meira
og minna í allt haust virðist vera
komin á enda. Hlýtt loft sunnan úr
Atlantshafi hefur streymt hingað
norður, en nú leggur það fremur að
Bretlandseyjum, Norður-Evrópu og
Skandinavíu. Þar er fínt veður þessa
dagana,“ segir Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur.
Metið fellur ekki
Trausti Jónsson veðurfræðingur
sagði um helgina á bloggsíðu sinni að
ólíklegt væri, miðað við spár næstu
daga, að árið 2016 yrði það hlýjasta
sem vitað væri um á landinu. Núna
væru líkur á að hitinn yrði um 6,0
stig, sem skilar þó einu toppsætanna
hvað hlýindi áhrærir. Þannig er árið
2003 það hlýjasta sem mælst hefur,
þá var 6,06 gráðu meðalhiti, og næst
á eftir því 2014 með 5,99 gráður.
sbs@mbl.is
Hlýindin á enda
Morgunblaðið/Eggert
Seltjarnarnes Ekki hefur verið ama-
legt að fá sér göngutúr í blíðunni.
Vaxandi
líkur á hvít-
um jólum