Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is Vagnar og kerrur frá OPIÐ mánudaga til föstudags 8:00-17:00 Hafið samband í síma 480 0000 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Jólavörurnar eru að verða búnar en vonandi kemur einhver viðbót að sunnan nú í vikunni. Í verslun í litlu byggðarlagi úti á landi erum við vel meðvituð um ábyrgð okkar, sem er að sjá viðskiptavinum okk- ar hér fyrir öllum daglegum vörum en líka ýmsu öðru sem fólk vanhagar um en fæst kannski ekki nema í Reykjavík. Ég gerði til dæmis heilmikla leit um daginn fyrir bónda hér í sveitinni sem vantaði axlabönd úr leðri og auð- vitað reddaðist það. Sendingin, sem vissulega var ekki stór, kom með næstu ferð flutningabílsins,“ segir Ingibjörg Benediktsdóttir, verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík. Ferðamenn í desember Kauptíð jólanna er nú í al- gleymi og vissulega fara margir vestan af Ströndum í innkaupa- ferðir fyrir jólin suður í Borgarnes eða annað eftir atvikum. „En samt finnst mér þessar verslunarferðir á undanhaldi, því bensínið kostar sitt og þetta tekur tíma. Héðan er tveggja tíma akstur suður í Borgarnes. Vissulega erum við hér á Hólmavík ekki samkeppnis- hæf við til dæmis Bónus í verði, en verðlagið er samt ekki þannig að daglegar nauðsynjar kosti bæði hönd og fót,“ segir Ingibjörg, sem bætir við að mynstrið í verslunar- rekstrinum hafi breyst mikið á síð- ustu misserum. „Við hér á bæ þjónum allstóru svæði; það er Hólmavík og nær- liggjandi svæðum hér á Ströndum og Reykhólasveit. Svo má ekki gleyma því að ferðamannavertíðin stendur enn. Þótt nú sé liðið vel á desember eru oft gestir á gisti- stöðum hér á Hólmavík og í grenndinni og í starfseminni þar hefur ekki verið svigrúm í rekstr- inum til þess að bjóða morgunmat. Gestir byrja því daginn oft á því að koma hingað í kaffi og nýbakað brauð. Fjölgun ferðamanna hefur í raun skapað alveg nýja stoð í at- vinnulífi á landsbyggðinni.“ Ingibjörg Benediktsdóttir er fædd og uppalin á Hólmavík og starfaði á unglingsárum meðal ann- ars í söluskála kaupfélagsins. „Ég flutti hingað aftur fyrir átta árum, en við fjölskyldan höfðum þá búið í nokkur ár fyrir sunnan. Við erum með alls fimm krakka og hvergi er að mínu mati betra að ala upp börn en í litlu þorpi úti á landi. Börnin eru frjáls og leiksvæði þeirra er stórt. Mér finnst alveg frábært að tilheyra þessu samfélagi og hér vil ég vera,“ segir Ingibjörg, sem tók við sem verslunarstjóri í september síðastliðnum. „Starfið var auglýst og ég var svo stálheppinn að hreppa það. Mér líður alltaf best þegar nóg er að gera og hér í búðinni er aldrei dauð stund. Ég kem til vinnu um klukkan átta á morgnana og fyrsta verkið er að setja bakaraofnana í gang. Síðan tekur við pappírs- vinna, pantanir og alls konar púsl við að láta þetta rúlla, verslun þar sem vinna 10 til 15 manns,“ segir Ingibjörg, sem er fulltrúi í sveit- arstjórn Strandabyggðar. Hún segir ganginn í rekstri sveitar- félagsins um þessar mundir vera um margt góðan. Íbúarnir eru alls 467, þar af um 341 í Hólmavíkur- kauptúni. Statistar í bíómynd „Strandabyggð er í ágætri stöðu um þessar mundir. Sam- göngur eru góðar og atvinnulífið tiltölulega stöðugt. Hins vegar gerum við sanngjarna kröfu til stjórnvalda um að vera jafnsett öðrum svæðum á landinu um þjón- ustu og lífsins gæði. Það er hreint ekki boðlegt að byggðarlagið hafi ekki ljósleiðaratengingu eða full- komið símasamband. Norður í Árneshreppi er kominn sími á hæsta styrk, en allar græjur sem til slíks þarf voru settar upp í haust þegar stórleikarar og kvikmynda- gerðarmenn mættu þangað til að taka upp Hollywood-mynd. Ég, krakkarnir mínar og foreldrar fór- um á svæðið eins og margir fleiri og lékum statista í aukaatriði og sáum dýrð kvikmyndaheimsins, sem ekki er lítil. Og símasamband- ið nyrðra er nú eins og best getur orðið, sem er frábært. Því segi ég stundum að kannski þurfum við Strandafólk bara meira Hollywood inn í tilveruna,“ segir Ingibjörg að síðustu. Ingibjörg Benediktsdóttir stýrir kaupfélagsbúðinni á Hólmavík Morgunblaðið/Sigurður Bogi Jólaverslun „Erum við vel meðvituð um ábyrgð okkar,“ segir Ingibjörg Benediktsdóttir hér í viðtalinu. Strandafólk þarf Hollywood í tilveruna Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is  Ingibjörg Benediktsdóttir er fædd árið 1976. Hún er snyrti- fræðingur að mennt og starf- aði lengi sem slík.  Nam nútímafræði við Há- skólann á Akureyri. Starfaði í nokkur ár hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða en byrjaði í kaup- félaginu í haust. Hver er hún?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.