Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Traustur kostur. Láttu ekki snjóinn þvælast fyrir þér... Verð frá kr. 59.900 Stöndum öll saman sem ein þjóð 800 fjölskyldur hafa óskað eftir jólaaðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands og að baki þessum fjölskyldum eru yfir 2400 einstaklingar og þar af hundruðir barna. Sýnum kærleik og samkennd í verki. Við megum ekki gleyma fátæka fólkinu á Íslandi. Jólasöfnun er hafin hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Hjálpið okkur að hjálpa öðrum. Margt smátt gerir eitt stórt. Guð blessi ykkur öll 546-26-6609, kt. 660903-2590 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nicolás Maduro, forseti Venesúela, tilkynnti á laugardag að ógildingu 100 bolívara seðilsins yrði frestað fram í janúar. Ófremdarástand skapaðist eftir að stjórnvöld tilkynntu síðastliðinn þriðjudag að seðillinn yrði tekinn úr umferð og að almenningur hefði 72 klukkustundir til að skipta seðlun- um sínum fyrir nýja 500, 2.000 og 20.000 bolívara seðla. Verðlítill pappír Áður en nýju seðlarnir voru kynntir til sögunnar var 100 bolív- ara seðillinn sá verðmesti í landinu, en óðaverðbólga hefur orðið til þess að heilu búntin af seðlum þarf til að greiða fyrir vörur og þjónustu. Þannig nefnir breska blaðið Guardi- an að þurfi fimmtíu 100 bolívara seðla til að kaupa stakan hamborg- ara á veitingastað McDonalds í mið- borg Caracas. Nýi 20.000 bolívara seðillinn er um það bil 550 króna virði miðað við opinbera gengis- skráningu. Fljótlega eftir að tilkynnt hafði verið um ógildinguna höfðu langar raðir myndast fyrir utan flesta banka en á fimmtudag var ljóst að ekki yrði nægilegt framboð af nýju seðlunum til að koma í staðinn fyrir þá gömlu. Þrjár flugvélar sem flytja áttu nýprentaða seðla til landsins höfðu tafist af ýmsum orsökum, og sagði Maduro tafirnar stafa af „al- þjóðlegum skemmdarverkum“. Mótmæli og átök Óánægja og örvænting varð til þess að mótmæli brutust út víða um landið og kom til átaka milli borgara og lögreglu. Á sumum stöðum fóru hópar fólks um ránshendi. Á laug- ardag ruddu um 400 manns sér leið yfir landamærin til Kólumbíu, sem ríkisstjórn Maduro hafði lokað. Þangað fór fólkið í leit að mat og lyfjum, en skortur er á mörgum lífs- nauðsynjum í Venesúela. Néstor Reverol, innanríkisráð- herra, réttlætti ógildingu 100 bolív- ara seðilsins með því að ætlunin væri meðal annars að snúa á glæpa- samtök og smyglara í nágranna- löndunum sem eiga að hafa hamstr- að seðlana með það fyrir augum að gera einhvers konar „fjárhagslega árás“ á landið. Nýju seðlarnir eiga að berast á næstunni og hafa landsmenn nú frest fram til 2. janúar til að skipta gömlu 100 bolívara seðlunum. Á meðan verða landamærin að Kól- umbíu og Brasilíu lokuð. Venesúela frestar ógildingu seðils  Stjórnvöld segja „alþjóðleg skemmdarverk“ hafa tafið afhendingu nýrra seðla  Mótmæli og átök brutust út AFP Vandræði Maður sýnir búnt af 100 bolívara seðlum á meðan hann bíður fyrir utan seðlabanka Venesúela. Vegna óðaverðbólgu eru seðlarnir næsta verðlausir og mætti mögulega kaupa einn eða tvo hamborgara fyrir allt búntið. ● Liam Fox, sem stýrir nýju alþjóða- viðskiptaráðuneyti Bretlands, segir að eftir útgöngu landsins úr Evrópusam- bandinu gætu tengsl Bretlands við ESB orðið með svipuðu sniði og er í dag á milli sambandsins og Tyrklands. Myndu þá sumir hlutar breska hagkerf- isins vera hluti af innri markaði ESB en aðrir ekki. Lét Fox þessi ummæli falla í viðtali við BBC. Sagði ráðherrann mikilvægt að skoða alla möguleika í stöðunni. Kvart- aði hann yfir tali um að útgangan úr ESB yrði annaðhvort að vera „hörð“ eða „mjúk“ og sagði hann fleiri en tvo valkosti í boði. ai@mbl.is Gætu haft svipaða stöðu og Tyrkland Valkostir Liam Fox segir fleira í boði en bara „harða“eða „mjúka“ útgöngu. Í síðustu viku tók loks að hægja á þeirri miklu og samfelldu hækkun sem verið hefur á bandarískum hlutabréfamarkaði vikurnar eftir sigur Donalds Trump í forseta- kosningunum í nóvember. Margir höfðu vænst þess að Dow Jones vísitalan gæti farið yfir 20.000 stig í vikunni en lækkun fjármálafyrirtækja varð til þess að hægja á styrkingu bæði S&P 500 og Dow Jones. Lækkaði S&P 500 um 0,1% yfir vikuna en Dow Jones hækkaði um 0,4%. Í lok vikunnar mældist Dow Jones vísitalan 19.843,41 stig og S&P 2.258,07 stig. Fréttastofa Bloomberg bendir á að þrátt fyrir að hafa lækkað í síð- ustu viku eru bankar sá flokkur fyrirtækja á bandaríska hluta- bréfamarkaðinum sem hækkað hefur mest frá því úrslit kosning- anna lágu fyrir, eða um meira en 20%. Orkufyrirtæki hafa hækkað næstmest eða um 13% að jafnaði. ai@mbl.is Dow Jones hársbreidd frá 20.000 stigum AFP Met Jólalegt er um að litast á Wall Street í New York þessa dagana. Hagfræðingar á Wall Street reikna með að Seðlabanki Bandaríkjanna muni ekki hækka stýrivexti á ný fyrr en að sex mánuðum liðnum. Þetta er meðal niðurstaða könn- unar sem Financial Times gerði. Sérfræðingarnir búast við tveim- ur vaxtahækkunum á næsta ári, og væntir mikill meirihluti svarenda þess að sú fyrri verði í júní. Búast þeir við að vextir verði orðnir á bilinu 1 til 1,25% í lok næsta árs. Þá eiga hagfræðingarnir von á að hagvöxtur í Bandaríkjunum verði frekar hóflegur bæði 2017 og 2018, eða 2,2 og 2,3%. Þeir reikna með að þær markaðsvænu aðgerðir sem Donald Trump hefur lofað muni bæta 0,2 prósentustigum við hagvöxtinn á næsta ári og 0,4 á því þarnæsta. ai@mbl.is Vænta næstu hækkunar í júní AFP Stýring Janet Yellen seðlabanka- stjóri hækkaði vexti nýlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.