Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 væri flott að hafa með. Ég leiðbeini kúnnanum við hvað sé best að birta á heimasíðunni og hvað fer í bækl- inginn sem sendur er til innkaupa- stjóra tískuverslana. Þetta er líka mjög áhugaverð vinna því kúnninn er alltaf að reyna að gera vöruna söluvæna svo sem flestir kaupendur Hildur Loftsdóttir hildurl@mbl.is ÍLondon ber Lilja HrönnHelgadóttir titilinn Free-lance Fashion Stylist eðasjálfstætt starfandi tískustíl- isti. Árið 2012 skellti hún sér í nám í listrænni stjórnun með áherslu á tísku við London College of Fashion og útskrifaðist fyrir einu og hálfu ári með BA-gráðu. „Það eru tvær hliðar á minni vinnu. Annaðhvort er ég með tísku- þátt fyrir tímarit eða ég vinn fyrir fatamerki og hjálpa þeim að stíl- isera fatalínuna þeirra,“ útskýrir Lilja Hrönn. „Ef ég er með tískuþátt fyrir tímarit hef ég samband við hönnuð eða umboðsmann hans og fæ lánuð föt til þess að nota í tískuþættinum. Sem stílisti sé ég um hvernig stíll verður á myndatökunni. Oftast vinn ég náið með ljósmyndaranum og ritstjóra tímaritsins til þess að allir séu sammála um hvernig þetta eigi að líta út. Stundum tek ég líka þátt í að velja fyrirsæturnar og töku- staðinn. Þetta eru skemmtilegustu verkefnin af því að í þeim er svo mikið listrænt frelsi.“ Minna frelsi en meira borgað „Vinnan fyrir fatamerkin er yfirleitt mun betur borguð, en á móti er mun minna frelsi. Yfirleitt felst vinnan í að fræða kúnnann um helstu tískubylgjur og hvað þurfi að leggja áherslu á þegar við stíl- iserum fatalínuna. Ég kem t.d. með tillögur um hvaða flíkur sé hægt að nota saman, hvaða skó og aukahluti geti tengt við hana, en á sama tíma vill hann líka að línan hans standi upp úr og falli ekki í hópinn. Það er mjög krefjandi og margt sem þarf að hafa í huga til að það takist,“ segir Lilja Hrönn sem vinnur þess konar verkefni 3-4 daga á viku, oft- ast fyrir Arcadia Group sem er eig- andi vinsælustu fatabúðanna í Bret- landi eins og Topshop, Topman og Miss Selfridge, auk þess að hafa líka unnið fyrir AllSaints og Marks and Spencer. Eins og lesa má hefur Lilja Hrönn nóg að gera í tískubrans- anum í London. „Þótt ég vinni fyrir stór fata- fyrirtæki hef ég ekki ennþá unnið fyrir mjög stóran hönnuð. Ég vinn mikið fyrir sjálfstæða unga hönnuði á tískuvikunni, eins og Xu Zhi sem er kínverskur hönnuður búsettur hér í London, en hann sýndi í fyrsta skipti á Lundúnatískuvikunni fyrir nokkrum mánuðum. Ég hef mikla trú á honum.“ Myndar í íslenskri náttúru Lilja Hrönn er tískuritstjóri fyrir Bast Magazine sem er tísku- tímarit á netinu með höfuðstöðvar í Kaupmannahöfn. „Þetta er skandinavískt tímarit og við erum nokkrar íslenskar stelpur sem vinnum það saman; tvær í London, fjórar í Kaupa- mannahöfn og tvær á Íslandi. Við skrifum reyndar á ensku til að ná til stærri lesendahóps. Tímaritið hefur bara gengið vel, það verður fimm ára í apríl nk.“ Þú vinnur þá stundum með Ís- lendingum? „Í raun vinn ég mun oftar með Íslendingum en ég bjóst við að gera. Ég er svo heppin að búa með íslenskum ljósmyndara, Katrínu Ólafsdóttur, og ljósmyndarinn Marsý Hild býr líka hér í London, og ég vinn mikið með þeim,“ segir Lilja Hrönn sem fær stundum verkefni heima á Íslandi. „Ég hef bent bresku kúnn- „Skemmtilegast að fá verkið í hendurnar Lilja Hrönn Helgadóttir er ungur stílisti í London. Eftir stuttan tíma í tískubransanum vinnur hún reglulega fyrir Topshop og Topman, er yfir allri stíliseringu hjá Wallis, auk þess að hafa unnið fyrir AllSaints og Marks and Spencer. Henni þykir skemmtilegast að vinna verkefni þar sem listrænt frelsi ræður för; sem tískuritstjóri skandinavísks nettímarits, á tískuvikunni með upprennandi hönnuðum eða í góðum hópi við ástríðuverkefni. Ljósmynd/Marsý Hild Stílistinn Lilja Hrönn hefur nóg að gera í tískubransanum í London. Sannar gjafir UNICEF eru lífs- nauðsynleg hjálpargögn fyrir bág- stödd börn. Hægt er að kaupa gjaf- irnar í vefverslun UNICEF og verður þeim dreift til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest. Sannar gjafir UNICEF eru keyptar í nafni þess sem langar að gleðja. Hann fær fallegt gjafabréf með ljós- mynd og lýsingu á gjöfinni og lætur viðkomandi fá bréfið. Hjálpargögnin sjálf eru hins vegar send úr birgða- stöð UNICEF til barna í neyð. Hægt er að velja um margs konar hjálpargögn í öllum verðflokkum. Öll eiga þau eitt sameiginlegt: Að bæta líf barna um víða veröld. Á vefsíðunni www.sannargjafir.is má sjá vöruúrvalið sem saman- stendur af því sem börn í neyð sár- vantar, t.d. hlý teppi, næringarmjólk, jarðhnetumauk og sneisafull gjafa- karfa af hjálpargögnum. Afar einfalt er að panta sanna gjöf, en á vefsíð- unni er ferlinu lýst skilmerkilega, lið fyrir lið. Þar er líka tónlistar- myndband með jólakveðju Prins Póló og Gosa, sem er hluti af jólaátaki UNICEF á Íslandi fyrir sannar gjafir. Vefsíðan www.sannargjafir.is Gjafir UNICEF Nauðsynleg hjálp- argögn sem bæta líf bágstaddra. Gjafir handa börnum í neyð Trúlega er ungviðið komið í mikið jólaskap og býður óþreyjufullt eftir að hátíðin gangi í garð. Á meðan fullorðnir eru önnum kafnir í jóla- undirbúningnum geta síðustu dag- arnir fyrir jólin verið eins og heil ei- lífð að líða fyrir börnin. Út um borg og bý er jólastemningin í hámarki og margt í boði til að stytta stund- irnar. Á aðventunni hefur Norræna húsið ekki látið sitt eftir liggja í alls konar viðburðum tengdum jólunum. Kl. 17 á morgun, þriðjudaginn 20. desember, verður síðasti viðburð- urinn fyrir jólin og gefur hann þeim fyrri ekkert eftir. Boðið verður upp á sannkallað fjölskyldubíó, sem er hin bráðskemmtilega kvikmynd Jól í Furufirði, en hún er gjöfin frá Ósló í ár. Á frummálinu heitir kvikmyndin „Jul i Flåklypa!“, en hún er með ís- lensku tali í þýðingu Steinunnar Soffíu Skjenstad. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Jól í Furufirði er 76 mínútna löng. Sögumaður er Guðmundur Ólafsson, en leikarar sem ljá sögupersónum rödd sína eru m.a. Hanna María Karlsdóttir, Steinn Ármann Magn- ússon, Sigurður Sigurjónsson, Orri Huginn Ágústsson, Þórhallur Sig- urðsson (Laddi), Guðmundur Ólafs- son og Stefán Benedikt Vilhelms- son. Fjölskyldubíó í Norræna húsinu á morgun Norska kvikmyndin Jól í Furu- firði er gjöfin frá Ósló í ár Jólastemning Í Furufirði búa litríkir karakterar sem allir eru í jólaskapi. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.