Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 Í mínu uppeldi var aldrei haldið að mér trú né heldur latt til hennar. Satt að segja hef ég ekki minnsta grun um andlegt líf foreldra minna. Að- eins hef ég örlitla sýn á andlegt líf ömmu minnar í föðurlegg en hún átti virkan þátt í uppeldi mínu. Satt að segja má túlka sögu okkar Íslendinga og Herúla frá árinu 1000, þegar við fyrst þjóða skilgreindum lagalegt trúfrelsi, sem eina langa varðveislu þess að hver og einn er ábyrgur gagnvart sjálfum sér og því sem hann kann að trúa á, um sitt andlega líf. Vissulega eru tímabil í sögu þjóðar okkar sem hún var fótvölt á þeirri löngu göngu, margt hefur gerst sem er miður en einnig margt sem er framúrskarandi. Enda vitum við öll að enginn verð- ur óbarinn biskup, né heldur smið- ur við fyrsta hamarshögg. Vissulega er til fólk sem hefur ánetjast trúarbrögðum og öðrum óhlutbundnum hugmyndakerfum (e. Abstract ideologies) vegna áhrifa frá öðrum, hvort heldur í æsku eða á þroskaðri árum. Samt held ég að hver og einn sem kom- inn er til fullorðinsára geti vottað að hafa valið sína heimsmynd sjálfur. Ég hef talsverða reynslu af að tala við bæði trúaða og guðlausa (e. Atheists) jafnt sem efahyggju- fólk og þá sem flokka sig utan við þessa þrjá hópa fólks. Hef einnig orðið vitni að því að fólk skiptir um trú á alla þrjá vegu. Aldrei hef ég hins vegar hitt manneskju sem ekki hefur gert upp hug sinn og reynt að gera það af ábyrgð. Allt þetta fólk á það sameiginlegt að hafa verið beitt vægð- arlausu ofbeldi „litlu jólanna“ og fengið kristilegar jóla- gjafir á aðfangadagskvöld. Sem ætti að minna guðleysingja og kommúnista (með fullri virðingu fyrir þeirra heimssýn) á hversu mikið Vottar Jehóva hafa verið gagnrýndir fyrir að gefa ekki jóla- gjafir en þeir telja sig þó vera kristna. Mér þætti gaman að sjá trú- lausa segja við börn sín um jólin „því miður færðu engan jólapakka því trú er ópíum fólksins“. Ég heyri oft frá efahyggjufólki og guðlausum að það sé rangt að halda að börnum þeim siðvenjum og aðferðum sem menning okkar hefur beitt í gegnum aldirnar af þeirri ástæðu einni að þær séu á trúarlegum grunni. Því má svara til að þær minni börnin og okkur sjálf á mikilvægi þess að þó margar hugmyndir séu til um hið yfirskilvitlega og mörg kerfi verið smíðuð utan um þær hugmyndir, þá vitum við ekki fyrr en okkar tími kemur hvað sé satt um þær og hvað ekki. Að enn- fremur sé það áminning að hin hugsandi mannvera smíðar alla sína heimsmynd úr óhlut- bundnum hugmyndum og mótar samfélagskerfi sín með því að hlutgera þær. Sem er þörf áminning að mínu mati, hvernig svosem við vinnum úr henni. Því hvort sem hefðin er byggð á trúarlegu kerfi eða góð- vilja, þá held ég að margir geti samþykkt að þegar mannkynið, eða mannfólk yfirleitt, útilokar möguleikann á andlegu innra lífi, eða reynir að meina öðrum að taka þátt í því, þá blasi við vörður á þokubraut sem sumir hafa nefnt Heljarslóð. Vel mætti skjóta hér inn þeirri staðreynd að aðalhugmyndafræð- ingar stærsta stjórnmálaflokks Rússlands, sem hefur farið með völd þar eystra í allt að því tvo áratugi, vilja skilgreina Rússland sem kristilegt lýðræðisríki og ekki er langt síðan Pútín fór í op- inbera heimsókn í kristilegt munkaríki á eyjunni Athos í Eyjahafi, en það er opinberlega viðurkennt í alþjóðastjórnmálum sem sjálfstætt ríki. Enginn hefur gleymt að Rúss- land var eitt af kommúnískum að- ildarríkjum Sovétríkjanna og var þar opinber stefna að trúarbrögð séu ópíum fólksins og ætti að út- rýma með markvissum hætti. Eftir því sem ég best veit, án þess að hafa aðgang að opinberri tölfræði, eru meira en 90% ís- lenskra barna skírð til kristinnar trúar og langflest þeirra velja að fermast til þeirrar trúar. Sem merkir að yfirgnæfandi fjöldi ís- lenskra grunnskólabarna er laga- lega trúaður upp á lútersk- evangelíska trú. Að meina þeim að rækja litlu jólin eða að fara í kirkju á vegum skóla síns hlýtur að teljast trúarofsóknir gegn þeim. Trúarofsóknir hinna trúlausu Eftir Guðjón E. Hreinberg Guðjón E. Hreinberg » Það er mikið deilt um þessa dagana hvort leyfa eigi skólum að halda litlu jól eða fara í kirkju. Höfundur er heimspekingur. Raforkusæstreng- urinn Basslink liggur neðansjávar milli eyj- unnar Tasmaníu og meginlands Ástralíu. Fyrirætlun Lands- virkjunar er að leggja sams konar sæstreng milli Íslands og Bret- lands. Í orkukerfum Ís- lands og Tasmaníu er vatnsafl ráðandi. Einkennistölur Basslink og Icelink Basslink: Lengd 370 km, þar af 295 km í sjó. Mesta dýpi 139 m. Flutn- ingsgeta 500 MW. Raunkostnaður 0,6 milljarðar USD (Bandaríkjadoll- arar). Sæstrengurinn var tekinn í notkun 2006. Icelink: Lengd 1.100 km. Mesta dýpi 1.100 m. Flutningsgeta 1.000 MW. Kapallinn er enn á hugmynda- stigi. Hönnun á Icelink er ekki hafin svo vitað sé og þar af leiðandi liggur kostnaðaráætlun ekki fyrir. Ein- hverjar kostnaðartölur hafa sést en þær eru ófullkomnar og byggja á vafasömum samanburði við aðra sæ- strengi. Í Kviku-skýrslunni frá júlí 2016 var stofnkostnaður áætlaður 3,0 milljarðar USD, endabúnaður inni- falinn. Aðilar að Basslink- sæstrengnum Keppel Infrastructure Trust, fjár- festingarsjóður skráður í Kauphöll Singapúr, er 100% eigandi Basslink Pty Ltd. Basslink Pty Ltd (BL) er 100% eigandi Basslink. Hydro Tasm- ania (HT), sem er sambærileg við Landsvirkjun á Íslandi, hefur leigt Basslink af BL fyrir 54 milljónir USD á ári. Samningurinn er í gildi til ársins 2046. Bilun í Basslink Basslink bilaði 20. desember 2015 á 80 metra dýpi. Rifan á varnarkápu kapalsins var á stærð við þumlung. Bilunin kom á sama tíma og vatns- miðlanir ofan vatnsaflsvirkjana í Tas- maníu voru í lágstöðu, lítil úrkoma og rennsli vatnsfalla í lágmarki. Varð af mikil orkukrísa. Hætt var við að taka niður stóra gastúrbínu og fjöldi dís- ilstöðva í gámum var í skyndi fluttur til Tasmaníu. Í Morgunblaðsgrein minni sem birtist 9. júní 2016 var fjallað um bil- unina í Basslink, sérstaklega með til- liti til hugmynda Landsvirkjunar um að leggja Icelink. Skömmu síðar tókst að gera við Basslink með aðstoð kapalskips og með miklum tilkostn- aði. Raforkuflutningar hófust aftur 13. júní 2016. Þá varð önnur bilun í endabúnaði sem var lagfærð og hófst raforkuflutningur að nýju 23. júní 2016. Þeir standa enn. Raforkuflutn- ingur um Basslink stöðvaðist sem sagt í sex mánuði. Kostnaður vegna bilunar og ágreiningur BT fékk óháðan aðila, breska fyrir- tækið CCI, Cable Consulting Inter- national Ltd., til að gera athugun á málinu og lá skýrsla fyrir í byrjun desember 2016 eftir sex mánaða rannsóknarvinnu. Niðurstaðan var að bilunin væri óútskýranleg og mætti flokka sem óviðráðanlegt atvik (e. force majeure) eða athöfn frá Guði (e. act of God). Með því væri skaðinn tryggingarhæfur. Tryggingafyr- irtæki BL hefur samþykkt niðurstöð- una og greitt fyrir skaðann. Hvort niðurstaða CCI er pöntuð af verk- kaupanum BL skal ósagt látið, en CCI var með auka- bónus. Basslink- kapallinn er í fínasta lagi beggja vegna bil- unarstaðarins og alla leið til lands. Kostnaður HT vegna stöðvunarinnar er tal- inn vera um 135 millj- ónir Bandaríkjadollara. HT vill að BL taki þátt í þeim kostnaði. BL hef- ur talið að framlag sitt vegna viðgerða á Bass- link, úttektar á ástæðu óhappsins og tekjutaps meðan bilunin stóð yfir sé nægjanlegt framlag. Ef BL greiðir ekki þarf HT að varpa kostnaðinum yfir á viðskiptavini sína, almenning í Tasmaníu. Þetta finnst stjórnvöldum í Tasmaníu vafasamt og hafa ekki samþykkt kröfur BL. HT stöðvaði greiðslur til BL um tíma en hóf þær aftur fyrir nokkrum vikum til að greiða fyrir samræðum milli aðila þannig að hægt væri að komast að niðurstöðu og til að hleypa ekki illu blóði í málareksturinn. BL óskaði eftir því að HT byrjaði aftur að greiða reglulega fyrir not af kapl- inum. Með stuðningi stjórnvalda í Tasmaníu hafnaði HT þeirri málaleit- an. Annar sæstrengur samhliða Basslink Í ljósi þessara atburða hófust há- værar umræður um hvort leggja ætti annan sæstreng milli Tasmaníu og Ástralíu. Hinn nýi sæstrengur væri þá bæði til vara og til að flytja raf- orku frá nýjum vind- og sól- arrafstöðvum á Tasmaníu upp til meginlands Ástralíu. Þetta finnst manni smá galið því hvernig ættu vind- og sólarrafstöðvar með sæ- streng að geta keppt við sams konar stöðvar uppi á meginlandinu? Málið í Tasmaníu er í hnút. Niðurstaða Atburðirnir í Tasmaníu leiða hug- ann að áhættu, sem er grundvallar- atriði í rekstri vatnsorkukerfa enda getur margt farið aflaga. Það er eðli vatnsorkukerfa að oftast gerist ekki neitt, en ef eitthvað kemur upp á er stutt í „katastrófuna“. En hvað geta Íslendingar lært af óförum þeirra Tasmaníumanna? Mál- in gætu þróast þannig að sérstakur eignaraðili verði að Icelink á sama hátt og BL er eigandi Basslink. Í um- ræðum um Icelink hefur Lands- virkjun lagt áherslu á að Íslendingar mundu einnig hafa not af sæstrengn- um til að flytja raforku frá Bretlandi til Íslands. Þetta er rangt og mun lík- lega aldrei reyna á það. Ef Icelink bilaði síðan úti á miðju Atlantshafi gæti viðgerð vissulega tekið töluverðan tíma. Í uppgjöri á tengdum ágreiningsmálum gæti ver- ið vafasamt að þurfa að sitja uppi með hugsanlegan ávinning okkar af því að hafa getað flutt orku til Íslands, kost- ur sem aldrei mundi reyna á. Þessi gerviávinningur gæti orðið okkur til trafala og jafnvel til tjóns í uppgjöri. Sæstrengirnir Basslink og Icelink Eftir Skúla Jóhannsson » Sæstrengurinn Basslink liggur neðansjávar milli Tas- maníu og Ástralíu. Fyrirætlun Landsvirkj- unar er að leggja sæ- streng milli Íslands og Bretlands. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.