Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Njóttu hátíðanna með frönskum mat og drykk Jólamatseðill og jólaglögg alla daga Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert á varðbergi gagnvart yfirvöld- um og ögrar þeim við hvert tækifæri. Beygðu þig undir forystu aðila sem þú virð- ir. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú heldur vel á spöðunum varðandi ákveðið mál muntu sjá það leysast farsæl- lega. Ef einhver reynir að höfða til tilfinn- inga þinna, streitist þú ósjálfrátt á móti. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Án þess að vita af því hefur þú eitthvað í fórum þínum, sem öðrum finnst eftirsóknarvert. Trúðu því djúpt innra með þér. Kannaðu hins vegar málið vandlega áð- ur en þú lætur til skarar skríða. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Viljirðu búa við áframhaldandi vel- gengni máttu í engu slaka á. Notaðu þetta tækifæri út í ystu æsar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hrærir í pottinum en veist ekki enn hvað þú ert að elda. Tilkomumiklar fréttir úr félagslífinu koma við sögu – ef vinir hafa eitthvað að halda upp á, hefur þú það líka. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Besta leiðin til þess að nýta orku dagsins er að vinna af kappi. Ekki væri vit- laust að vinna eilítið bakvið tjöldin. 23. sept. - 22. okt.  Vog Já, já, þú ert ekki að eyða deginum í það sem þig langar til. Hún er í snertingu við hið góða innra með henni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú getur komist að óvæntum leyndarmálum í dag. Hikaðu ekki við að hrinda þeim í framkvæmd. Viðhorf þitt til lífsins er að verða miklu jákvæðara og sjálfstraustið meira. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ekki láta það á þig fá þótt yfir- menn og foreldrar séu að gera út af við þig um þessar mundir. Aðrir eru hálfhræddir við þig þegar þú geltir á þá. 22. des. - 19. janúar Steingeit Málið er ekki hvað er í vændum, heldur hverjir – ekta og skemmtilegir ein- staklingar, frábær félagsskapur. Gættu sér- staklega að útgjöldunum og dragðu þau saman eftir mætti. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það eru ýmis teikn á lofti um breytingar í starfi. Svo er bara að halda fylgismönnunum ánægðum. Neitun getur verið það besta sem þú gerir fyrir þá. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur haft yfrið nóg að starfa að undanförnu en sérð nú fram á að eiga tíma aflögu fyrir sjálfan þig. Ef þið frystið aðra úti lokið þið á ykkur sjálf um leið. Ólafur Stefánsson kallar þettakvæði „Á aðventu“ og er vel ort: Víst er hann kominn tíminn á íhygli’ og andakt, þó allt sem við hugsum sé vitað, tuggið og margsagt. Órofa myrkrið og endalaus rigningarhryðjan, er eins og vítamín-moli, og þá er að bryðja ‘ann. Ferðum í kirkjur fækkar hér lítið á jólum, fáheyrðir kórar sýnast á mörgum boðstólum. Mærðsemin lekur af andlitum gestanna inni, ennþá er von til að mennirnir lausnarann finni. Einlægt bak jólum, eilítið fer þá að birta, úti á snúrunni blakta fer náttbrók og skyrta. Á góu má aftur heyra hér svanina syngja, sýnist þá mál til að gleðjast og harminum kyngja. Sigrún Haraldsdóttir yrkir að morgni dags: Er nokkur furða, eins og fangi í stíu, að fálát ég höfði lúti, það klingir í fjarska því klukkan er 10 og kolniðamyrkur úti. Og Sigurlín Hermannsdóttir hnykkir á: Rignir hann og rignir enn á réttláta og aðra menn. Ef hann hættir ekki senn í álinn fer að syrta. Kannski mun hann aldrei ætla að birta. Þessar vísur Björns Ingólfssonar eru skemmtilegar: – „Ég hitti Mána á morgungöngunni,“ segir hann: Þú siglir í sátt um sérhverja nátt og veist hvort menn sofa eða vaka. … Á himnininn hátt þú hreykja þér mátt eins og lýsandi laufabrauðskaka. Páll Imsland heilsaði leirliði á draumtíð með þeirri athugasemd, að „það er ekki óhikað sem ég sendi þessa limru með fréttum úr sveit- inni, þar sem það er andstætt inn- rættum hefðum limrunnar að haga sér svona pent“: Það rignir í sífellu’ í sveitinni og svarrinn hann bitnar á geitinni. Sérhvern dag hefur völd dropamergðin svo köld og dottinn er kjarninn úr beitinni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Í svartasta skammdeginu og hann rignir og rignir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „AUGLÝSING MEÐ FALINNI MYNDAVÉL, TAKA NÍU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að líða eins og þú hafir lagt heiminn að fótum þér. ÞAÐ SEM HANN SAGÐI: SAMKEPPNIN VILL INN Á MARKAÐINN, EN VIÐ ERUM EKKI TILBÚNIR TIL AÐ LÁTA ÞAÐ GERAST. VIÐ ERUM EKKI TILBÚNIR, ÞANNIG AÐ ÞETTA MUN GERAST. ÞAÐ SEM HANN HEYRÐI: ÞAÐ ER HÁTTATÍMI OG JÓN ÆTLAR AÐ LESA SÖGU FYRIR SVEFNINN „FORHITIÐ OFNINN Í 175 GRÁÐUR…“ HELGA MYNDI VERA SVO STOLT AF MÉR! HVÍ? ÉG HEF EKKI FENGIÐ MÉR SOPA Í HEILA VIKU! Víkverja verður sífellt meira um-hugað um umferðaröryggi. Hvort það helgast af hækkandi aldri eða þeirri staðreynd að hann á son á fimmta ári er ekki gott að segja en margt er athugavert við umferðarhegðun okkar borgarbúa. x x x Áhættuhegðun er orð sem gjarn-an er tengt við margt annað en daglegt líf og almennar sam- göngur en samt virðist bera á henni. Eftir því sem umferðarþungi eykst fyrir hátíðarnar virðist stressið frekar ná tökum á fólki. Það tekur stærri sénsa, flautar meira og virðist pirraðra. x x x Þetta á ekki bara við um þá semferðast um í vélknúnum öku- tækjum, heldur eru gangandi og hjólandi vegfarendur margir hverjir engu skárri. Það er ótrú- legt hversu oft maður verður vitni að því að dökkklætt fólk reynir að skjótast á milli bíla í myrkrinu og grámanum svo bílstjórar þurfa að nauðhemla. Síðastliðinn föstudag fékk Víkverji sjálfur reiðhjóla- mann svo gott sem beint á stuð- arann þegar hann lagði af stað á grænu ljósi. Svo má ekki gleyma hvað við bílstjórar erum duglegir að fara yfir á dökkappelsínugulu ljósi. x x x Það er bara tímaspursmál hve-nær alvarleg slys verða í um- ferðinni, það er alltaf raunin. Mannlegi þátturinn er sá sem lík- legastur er til að valda slysum. Ástand vegar, veður og birta eru breytur sem okkar mannfólksins er að taka inn í reikninginn og fá dæmið til að ganga upp. Það er í langflestum tilfellum okkur að kenna ef slys verða og ég held að fæstir vilji verða til þess að náunginn þurfi að eyða jólunum á sjúkrahúsi, hvað þá að gera það sjálfur. Er ekki skárra að leggja fyrr af stað og njóta ferðarinnar? vikverji@mbl.is Víkverji Sjá, Guð er hjálp mín, ég er öruggur og óttast ekki. Því að Drottinn er vörn mín og lofsöngur, hann kom mér til hjálpar. Þér munuð með fögnuði vatni ausa úr lindum hjálpræðisins. (Jes. 12:2)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.