Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.12.2016, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Fastir liðir eins og venjulega. Á Aðventudagskránni í dag, jólastund vinnustofunnar kl. 10.30 og bókarkynning kl. 15, en þá kynnir Davíð Logi Sigurðsson bók sína Ljósin á Dettifossi Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 8.30–16, útvarpsleikfimi RÚV í mat- sal kl. 9.45–10, bútasaumur - Ljósbrotið kl. 11–15, handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30–16.30, félagsvist með vinningum kl. 13–15, myndlist með Elsu kl. 16–20. Boðinn Leikfimi kl. 10.30 og félagsvist kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi kl. 10, eigum von á góðum gestum; unglingar úr Háteigsskóla ætla að koma og eiga með okkur notalega morgunstund, leikfimi kl. 10.30 með Auði leikfimikennara og munu gestirnir okkar vera þátttakendur. Allir velkomnir í Bólstaðarhlíðina, allar upplýsingar í síma 535-2760. Dalbraut 18-20 Kl.13 brids. Félagsmiðstöðin Lindargötu 59/Vitatorg Leirmótunarnámskeið kl. 8–12, postulínsmálun kl. 9–12, lestur framhaldssögu kl. 12.30–13. Frjáls spilamennska kl. 13–16.30, stólaleikfimi kl. 13–13.30, bókbands- námskeið kl. 13–17. Allir velkomnir! Gerðuberg 3–5 Opin handavinnustofa kl. 8.30–16, útskurður með leiðbeinanda kl. 9–16, keramikmálun kl. 9–12, leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 10.50 jóga, kl. 13 lom- ber, kl.13.15 kanasta. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl.10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir! Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, bænastund kl. 9.30–10, göngu- hópur kl. 10.30, þegar veður leyfir. Dóra djákni í heimsókn kl.10–12, hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 14, kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8–16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Mömmu- hópur kl. 12, spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir 588-2320. Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, ganga kl. 10. Glerlistarnámskeiðið er komið í jólafrí en byrjar aftur 6. febrúar. Myndlist hjá Margréti Zóphoníasd. kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Munið að panta Þorláks- messuskötuna eða saltfiskinn fyrir 21. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag frá Borgum, frá Grafarvogskirkju og fyrir þá sem vilja; inni í Egilshöll, félagsvist hefst kl. 13 í dag í Borg- um. Gleðileg aðventa í Borgum, njótum saman með gleði í hjarta. Seltjarnarnes Billjard í Selinu kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. Jólafrí í gleri, leir, handa- vinnu og jóga fram yfir áramót. Smáauglýsingar 569 1100 www.mb Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Verslun Trúlofunar- og giftingar- hringar í úrvali Auk gullhringa eigum við m.a. hvíta- gull, silfur, titanium og tungstenpör á fínu verði. Demantar og vönduð arm- bandsúr. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, www.erna.is Óska eftir Staðgreiðum og lánum út á: gull, demanta, vönduð úr og málverk! Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kost- naðar-lausu! www.kaupumgull.is Opið mán.– fös. 11–16. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 782 8800 Þjónusta ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD              Uppl. í s: 788 8870 eða murumogsmidum@murumogsmidum.is Múrum og smíðum ehf Ýmislegt Frú Sigurlaug Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Mikið úrval af náttfatnaði í jólapakkann Frú Sigurlaug Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Mikið úrval af náttfatnaði í jólapakkann Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Ódýru dekkin Hágæða sterk dekk. Allar stærðir. Sendum hvert á land sem er. Bílastofan, Funahöfða 6, sími 562 1351. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Færir þér fréttirnar mbl.is Þjónustuauglýsingar Þarft þú að koma fyrirtækinu þínu á framfæri Hafðu samband í síma 569 1390 eða á augl@mbl.is og fáðu tilboð Palli, og barnabörn, við Hildur sendum ykkur okkar einlæg- ustu samúðarkveðjur. Guðmundur Ármann Sigurjónsson. Kollegi minn og frændi Jón Ólafsson innanhússarkitekt er látinn eftir löng og erfið veik- indi. Við Jón vorum þremenn- ingar að skyldleika, ættaðir af Skógarströnd á Snæfellsnesi, báðir í föðurætt. Leiðirnar lágu fyrst saman er við vorum í Iðn- skólanum í Reykjavík árið 1956-7. Okkur varð fljótlega vel til vina enda báðir við nám í húsgagnasmíði og samnings- bundnir hvor hjá sínum meist- ara. Jón var bráðgreindur og stóð sig vel, hvort heldur var í teikn- ingu eða öðrum greinum. Hann var glaðlyndur og félagslyndur og er mér minnisstætt lítið at- vik úr skólanum sem lýsir Jóni vel. Einn kennarinn var afar strangur og átti til að gera lítið úr nemendum sem áttu til að gata. Hann lét þá engjast uppi við töflu, sem var ömurlegt. Þá stóð Jón upp og hélt stutta ræðu og tók upp hanskann fyrir félaga okkar. Þetta sýndi mik- inn kjark. Þá var ekki algengt að nemendur gerðu þess háttar. Slíka réttlætiskennd sýndi Jón oft. Við lukum báðir námi og vorum góðir vinir og félagar, Skemmtum okkur oft í hópi góðra vina. Haustið 1960 ákvað ég að fara til Kaupmannahafn- ar og nema húsgagnahönnun. Af tilviljun fórum við Jón að ræða þetta og kom þá í ljós að Jón hafi ekki bara hugleitt þetta, heldur hafði þegar sótt um skólavist. Jón var þá kvænt- ur maður, hafði kvænst Ingi- björgu Árnadóttur hjúkrunar- fræðingi. Jón fór utan á undan mér og fékk starf við smíðar og til þess að læra betur dönsku. Við þreyttum báðir inntöku- próf, því mjög var sótt í þennan skóla, og hófum nám í septem- ber 1961. Við vorum einu út- lendingarnir í bekknum, hinir tólf voru Danir. Þetta voru spennandi tímar. Við nutum þess vera í skólanum og takast á við alls konar hönnun hús- gagna og nytjahluta. Fljótlega eignuðust þau Jón og Inga sitt fyrsta barn, en þau unnu hörð- um höndum til þess að geta fest kaup á litlu húsi, sem þau lang- aði að eignast sem var næstum óhugsandi meðal danskra fé- laga. Þessi þrjú skólaár liðu alltof fljótt. Samstarf okkar var gott og eitt sinn tókum við þátt í samkeppni um nýja hönnun á lömpum. Við vorum mjög kapp- samir sem bar þann árangur að við unnum til verðlauna. Út úr þessari viðleitni kom lampinn Hekla, sem síðar var framleidd- ur hjá þekktu dönsku fyrirtæki og seldur víða um heim. Þetta var okkur mikill sigur. Jón var frábær hönnuður, hugmynda- ríkur og úrræðagóður. Eftir sex ár í Kaupmanna- höfn fluttum við heim með fjöl- skyldum okkar og stofnuðum teiknistofu til þess að vinna að okkar hugðarefnum. Þá var rétt ein kreppan og lítið um verkefni. Þar kom að Jón fór að kenna í Iðnskólanum til þess að afla öruggra tekna með teikni- stofunni. Brátt skildi leiðir og við hættum reglulegri starf- semi saman og fórum hvor í sína áttina. Við héldum alltaf góðu sambandi en unnum ekki saman að verkefnum. Jón stofnaði teiknistofu með öðrum arkitekt og unnu þeir að mörg- um stórum verkefnum. Jón giftist síðar Birnu Sigur- jónsdóttur, fyrrverandi skóla- stjóra, sem reyndist honum aðdáanlega í veikindum hans. Ég votta Birnu og afkomendum Jóns og ástvinum öllum inni- lega samúð. Megi minningin um góðan dreng lifa. Pétur B. Lúthersson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.