Morgunblaðið - 19.12.2016, Síða 28
28 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2016
Nei, ég kvíði því sko ekki að eldast. Þvert á móti fagna éghverjum afmælisdcgi, er þakklát fyrir hvern dag og þáheilsu sem maður hefur, þó maður sé auðvitað ekkert ung-
lamb lengur. Við eigum að reyna að taka því sem að höndum ber
með æðruleysi, vera ánægð með lífið og tilveruna og átta okkur á því
að það eru forréttindi að fá að eldast,“ segir Guðlaug Björk Bjarn-
þórsdóttir sem hefur verið bankamaður á Selfossi og í Hveragerði á
undanförnum árum, en er nú að byrja í nýju starfi eftir áramót.
Guðlaug fæddist í Hafnarfirði, bjó síðan í Hveragerði, átti heima á
Egilsstöðum í þrjú ár en hefur búið á Selfossi frá 2002. Eiginmaður
hennar er Davíð Jóhannesson gullsmiður og á hún tvö börn en Davíð
á fjögur börn. Samtals eiga þau svo 13 barnabörn og tvö barna-
barnabörn.
Guðlaug var með kvennaboð sl. laugardag í tilefni afmælisins en
blaðamaðurinn spjallaði við hana sl. föstudag: „Ég er nú ekki vön að
gera mikið úr mínum afmælum en nú ætla ég að breyta til og bjóða
til mín góðum konum. Þetta verður svona smáréttaboð í hádeginu,
rétt til þess að hita upp fyrir kvöldið, fyrir þær sem eru að fara á
tónleika og á jólahlaðborð á laugardagskvöldið. Í síðustu viku í að-
ventu er fólk gjarnan upptekið á kvöldin við ýmsa jólaviðburði. Ég
er alla vega að gera allt klárt og hlakka til afmælisins eins og ég sé
enn smátelpa.“
Afmælisbarnið og eiginmaðurinn Guðlaug Björk og Davíð gullsmiður.
Fagnar aldrinum
og hverju afmæli
Guðlaug Björk Bjarnþórsdóttir er sextug
Ó
skar Helgi Guðjónsson
fæddist í Reykjavík
19.12. 1966 og ólst þar
upp til sex ára aldurs,
síðan í Hafnarfirði og
loks á Akranesi frá 1979: „Við átt-
um fyrst heima á tveimur stöðum í
Vestubænum í Reykjavík, síðan á
Hjallabraut í Hafnarfirði og á
Vogabraut á Akranesi. Þetta voru
allt ágætar bernskuslóðir en erfitt
að bera þær saman því börn og
unglingar líta ekki alltaf umhverfið
sömu augum.
Maður átti alls staðar góða leik-
félaga og ég er enn í sambandi við
gamla félaga, einkum af Skaganum
en einnig úr Hafnarfirði. Ég starf-
aði t.d. mikið með Hjálparsveit
skáta á Akranesi frá stofnun sveit-
arinnar og var síðan meðlimur
Óskar Helgi Guðjónsson framkvæmdastjóri – 50 ára
Útivistarfjölskyldan í fjallgöngu Óskar Helgi og Ragnheiður, ásamt sonum sínum, þeim Degi, Hrafnkatli og Frey.
Sérhæfður í skemmti-
legum ferðalögum
Urð og grjót - upp í mót Hér eru þeir feðgar á ferðinni, Óskar og Hrafnkell.
Reykjavík Tvíburarnir Ágúst Helgi Gunnarsson og Sigurður Heiðar Gunnarsson
fæddust 30. ágúst 2016. Ágúst Helgi fæddist kl. 19.08, vó 3010 gr og var 51cm
langur, en Sigurður Heiðar kl 19.32, vó 3020 gr og var 51cm langur.
Foreldrar þeirra eru Hólmfríður Birna Sigurðardóttir og Gunnar Ágústsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
HLEÐSLUTÆKI
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Hleður og vaktar rafgeyminn þinn í vetur
15%
jólaafslá
ttur
af þessum
frábæru
hleðslutæ
kjum
Tilvalin
jólagjöf
12v 0,8A
12v 5,5A