Berklavörn - 01.06.1946, Síða 17

Berklavörn - 01.06.1946, Síða 17
BERKLAVORN 8. ÁRG. ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BERKLASJUKLINGA 1946 Ritnejnd: Guðmundur Löve, Kristinn Stejúnsson, Þórður Benediktsson. . Abyrgðarma&ur: Kristinn Stefánssun. BORCARPRITNT Avarp lslenzka þjóð! — í átlunda sinn kemur Berklavörn jyrir almenningssjónir og flytur nú! sem fyrr ýmsan fróðleik, en þó jyrst og fremst hvatningu til þjóðarinnar um áframhaldandi stuðning við áhugamál samtaka vorra, sem einnig eru áhugamál hvers einstaks þegns þessarar þjóðar. Samtök vor — Sambands íslendzkra berklasjúklinga — hafa notið velvildar og skiln■ ings alþjóðar jrá upphafi vega sinna. Ber Vinnuheimilið órœkt vitni örlœtis og góðvilja þjóðar- innnr, en það er þegar risið af grunni og hefur starfað í 20 mánuði. Þó er langt að leiðarlokum, því að hér er aðeins kominn vísir að því vinnuheimili, sem koma skal, og nauðsyn er að rísi sem allra /yrst. Takmarkið er, að upp vaxi í Reykjalundi myndarleg stojnun, sem geti lekið við öllum, er þar þurfa að dvelja. Vér erum líka sannfœrðir um, að þjóðin, sem byggt hefur þessa sto/nun, lætur sér aðeins nægja fullkomið vinnuheimili. Margir bíða þess enn að komast að Reykjalundi og eiga þá ósk heitasta, að geta unnið eitthi-að, sjálfum sér og þjóðinni til blessunar. Og undir þá ósk munu allir taka, því að hvers virði er lífið án starfs. Þá, sem ert hraustur, veizt, að heilsan cr dýrmætasti fjársjóður þinn, og að enginn er fátœkur, sem er heill heilsu. Engum er þetta þó Ijósara en þeim, sem misst hefur heilsuna og er að reyna að skapa sér starfsþrólt á ný. Oss ber því að styrkja hann og styðja á þessum áfanga œvi hans. — Fyrir tveim árum áttu samtök vor allmikla sjóði. Þessir sjóðir cru nú tæmdir, fyrir þá hefur vinnuheimilið, eins og það er nú, verið reist. Þar dvelja nú fiórir tugir manna og safna sér þrótti undir meira starf í þágu allrar þjóðarinnar. — Vér vonum, að þér gerið það, sem í yðar valdi stendur til þess að allir, sem á heimilinu þurfa að dvelja, komist þangað. — Daglega hufið þér tœkifœri til að leggja eitthvað af mörkum, en í dag á berklavarnardaginn, heitum vér alveg sérstaklega á yður að sýna samtókum vorum stuðn- ing. — SAMTÖK ER MÁTTUR, og ef allir leggjast á eitt, má miklu til vegar koma. Verum samtalca, leggjum öll fram okkar skerf í dag, því að strax verður það þeim til góðs, er þess þarfnast. En „kornið jyllir mælinn". I miðstjórn S. I. B. S. Maríus Helgason, Þórður Benediktsson, Oddur Ólafsson, Ólafur Björnsson, Björn Guðmundsson, Þorleifur Eggertsson, Ásberg Jóhannesson. ForsíSumyndin er af stórhýsinu að Reykjalundi eins og þaS mun líta út fullgert. Myndir allar, aSrar en þær af höf., eru frá Reykjalundi

x

Berklavörn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.