Berklavörn - 01.06.1946, Blaðsíða 27
Elzti vistmaðurinn að Reykjalund-:
við vinnu sína.
VINNAN.
Vinnuþol vistníánna var við komu
4—6 stundir daglega að meðaltali.
Vistmenn unnu aðallega í verkstæðum
Vinnuheimilisins en einnig við heimilis-
reksturinn og bókhaldið.
Aðalverkstæði vinnuheimilisins voru:
trésmíðaverkstæði, járnsmíðaverkstæði og
saumastofa, einnig vísir að bólstraraverk-
■stæði, prjónastofu og veiðarfæragerð (neta-
hnýtingu).
1. Trésmíðaverkstæði: Þar unnu 12 vist-
menn 7553 stundir á árinu. Unnið var
aðallega að framleiðslu leikfanga, en
einnig vann verkstæðið ýmislegt fyrir
heimilið og' byggingarnar. Eins og geng-
ur þá átti verkstæðið við ýmsa byrjunar-
örðugleika að etja, en framleiðslan hefur
stöðugt farið batnandi og má nú fullyrða
að leikföng frá Vinnuheimilinu séu full-
komlega samkeppnisfær við hver önnur
innlend leikföng. Nokkuð var einnig smíð-
að á verkstæðinu af krocket áhöldum og
hafin smíði á renndum lampafótum, en
takmarkað vinnuafl hamlaði verulegri
framleiðslu í þessum greinum. Verkstæðið
greiddi vistmönnum 34.889.48 krónur i
vinnulaun og stóð nokkurn veginn undir
isér.
2. Járnsmiðaverkstœðið: Þar unnu á ár-
inu 6 vistmenn, 6034,5 stundir. Unnið var
að framleiðslu leikfanga úr járni, bak-
pokagrinda, barna- og sjúkrarúma. Auk
þess voru framkvæmdar margs konar við-
gerðir fyrir heimilið og aðra. Allmikið af
vinnunni þetta fyrsta starfsár fór í undir-
búning og smíði móta og áhalda fyrir verk-
stæðið sjálft. Framleiðsla verkstæðisins
hefur þegar fengið orð á sig fyrir að vera
falleg og vönduð og er ástæða til þess að
ætla að miklir möeuleikar séu framundan.
Verkstæðið greiddi vistmönnum 30.910.
58 krónur í vinnulaun.
Nokkur halli varð á rekstri verkstæðis-
ins.
3. Saumaverkstœði: 14 stúlkur unnu
7448 stundir við sauma.
BERKLAVÖRN
11