Berklavörn - 01.06.1946, Síða 20
JÓNAS ÞORBERGSSON:
Þeir, sem féllu, hafa líka sigrað
Þegar við í dag efnum að nýju til átaks
í berklavarnarmálunum, þá gerum við það
með hugarbirtu þess manns, -sem reyndar
sér mikið starf fram undan, en á sér vísan
sigur. Þau eru ekki mörg, árin, senr liðin
eru, síðan berklasjúklingar hófust handa
um að hrinda fram einu stærsta og mikil-
vægasta átaki í þessum málum. Heitir af
hugsjón þjóðarkærleikans, líknarandans
og fórnfýsinnar bundust þeir samtökum
um að leysa eigin nauð og þjáningarbræðra
sinna um alla framtíð. Upphafsvonirnar
vöfðust reyndar í mörgum og torráðnum
spurningum. Það virtist mundi verða með
ólíkindum, að hópur sjúkra manna fengi
orkað þjóðarátaki, lnundið fram stórvirki,
slegið brú milli þeirra, sem sjúkir dæmast
til vistar á heilsuhælum, og hinna, sem
hraustir ganga til starfa.
En blessun mannkærleikans hefur fylgt
starfi þessara fórnfúsu hugsjónamanna.
Þjóðin hreifst með. Árangrinum þarf ekki
að lýsa í þessu máli. Allir vita, að rnikið
hefur unnist á. En margir ganga þess duld-
ir, að enn meira er óunnið, unz lokið verð-
ur hinu fyrsta meginátaki. Samt horfum
við sigurreif fram á leið. Hér eftir mun
sóknin ekki stöðvast. Við munum i dag og
jramvegis reyna það, að hugsjónir mann-
úðarinnar og fórnfýsin eiga sér marga vini.
IL
Við horfurn fram á leið. Við sækjum
ótrauð fram til lokamarks hins fyrsta mik-
ilvæga áfanga, að fá lokið hressingar- og
heilsuverndarstöðvum fyrir berklasjúka
menn á leið þeirra frá vanmætti sjúkleik-
ans til endurheimts lífs og starfs í vinnu-
fylkingum þjóðarinnar. —■ Við sækjum
fram, gamlir og ungir, heilir og vanlieilir.
Æska þjóðarinnar, fórnfýsi góðra borgara,
framtíðargifta lands okkar veitir málinu
brautargengi til leiðarenda.
Framtíðin er okkar, og við munurn sigra.
En þeir, sem féllu í þessari baráttu, eða
urðu óvígfærir, hafa líka sigrað. Hér skulu
ekki verða þulin nöfn. Þó verður fortíð-
arinnar í vinnuheimilismálinu ekki getið
án þess að minnst sé frumherjans Andrésar
Straumlands. Þegar allt er metið, eigum
við honum meira að þakka en öllum öðr-
um til samans. Sá, sem reisir merki, fylkir
liði og brýtzt fram fyrsta spölinn, er hirin
raunverulegi faðir sérhvers afreks. Engan
mann hef ég þekkt gæddan ákjósanlegri
hæfileikum til slíkrar forustu en Andrés.
Fór þar saman óbilandi fórnfýsi og starfs-
vilji, þrautseigja og hófstilling. í dag vott-
um við honum heita þökk í starfi. Og við
þökkum svo mörgum öðrum ótrauðum
liðsmönnum, sem nú eru horfnir úr fylk-
ingunni. Sigur okkar verður líka sigur
þeirra.
Jónas Þorbergsson.
Faðirinn: Ég lield, að þú ættir ekki aS giftast honum
Páli Pálssyni. Hann er bæSi fátækur og ófriSur.
Dóttirin: Já, en hann hefur tveggja manna vit.
FaSirinn: Nú, ef svo er þá eigið þið vissulega mjög
vel saman.
4
BERKLAVÖRN