Berklavörn - 01.06.1946, Side 28
Unnið var við sauma á kjólum, slopp-
um, gluggatjöldum og teppum.
Saumaverkstæðið komst fyrst í gang a£
öllum verkstæðum heimilisins og naut
Jaeirra miklu hlunninda að flestar stúlk-
urnar, sem þar unnu, höfðu eitthvað
fengist við sauma áður. Enda hefur frant-
leiðsla saumaverkstæðisins verið stöðug og
trygg. Verkstæðið starfar nú nær eingöngu
að kjólasaumi og hefur einnig haldið sníða-
námskeið fyrir nokkrar af stúlkum sín-
um. Er það von okkar, að þær stúlkur, sem
Jiaðan fara, séu einfærar um að sauma utan
á sig og sína.
Verkstæðið greiddi stúlkunum 23.140.02
krónur í vinnulaun og var rekið með tals-
verðum liagnaði.
4. Prjónastofa: 2 stúlkur unnu í 1504
stundir við prjón. Við höfðum gert okkur
allmiklar vonir um þessa grein, en þær
vonir brugðust vegna veikinda stúlknanna
sem við prjónið unnu. Önnur fékk löm-
unarveiki en hin varð að hverfa á hæli
vegna berklanna. Mikil eftirspurn var eftir
prjónavörunum, sem þóttu óvenju vand-
aðar.
Verkstæðið greiddi stúlkunum 6.399.56
krónur í vinnulaun og stóð undir sér.
5. Bólslraraverkstœði: 1 vistmaður vann
195 st. við bólstrun, var það aðallega við
framleiðslu á dýnum fyrir heimilið og til
sölu. Þetta var aðeins byrjun á starfsemi
verkstæðisins, sem á fyrir sér að stækka að
verulegu leyti í náinni framtíð.
Verkstæðið greiddi 902.63 krónur í
vinnulaun.
Lítilsháttar halli var á rekstrinum.
6. Veiðafœragerð: 1 maður vann 512
stundir við netahnýtingu.
Vinnuheimilisstjórnin hefur lengi haft
liug á að vinna hér að gerð veiðafæra.
Þótt hér sé nokkuð stórt á stað farið Joá
vonum við að þessi grein starfseminnar
eigi eftir að margfaldast áður en mörg ár
líða. Verkstæðið greiddi 2.693.22 krónur í
vinnulaun.
Halli varð á netarnýtingunni.
Auk vinnu á verkstæðunum unnu 10
vistmenn við rekstur heimilisins, 7781,5
stundir. Aðallega var unnið við Jrvott,
vinnu í borðstofu, hreingerningar og
fleira. Auk Jress var oft gripið til vistmanna
við vinnu er frískar starfstúlkur unnu að
jafnaði. Voru hér sem annars staðar örðu-
leikar á að fá starfsfólk, en bjargaðist með
því að grípa til vistmanna þegar verst var
ástatt.
Heimilið greiddi vistmönnum 31.325.00
krónur í vinnulaun.
Við bókhaldið unnu 3 vistmenn 2388
stundir og við verzlun staðarins unnu 2
menn 731,5 stundir.
2 vistmenn unnu við málningu á húsum
og framleiðslu í 915,5 stundir.
Á RÉTTRI LEIÐ.
Ég hef nú drepið á flest það, sem vist-
menn unnu við á árinu. Sjá má að Jrað var
margt og margþætt. þar sem þetta var
fyrsta ár starfseminnar má geta þess nærri
að örðuleikar voru á að koma Jressu öllu
af stað á sama eða svipuðum tíma.
En reynt var að lofa fólkinu, sem kom,
að liafa um eitthvað að velja og þá einkum
að hagnýta sér það ef einhver hafði áður
starfað í iðngrein, sem hægt var að koma
á fót.
Flestir af þeim, sem kornu, höfðu ekkert
unnið lengri tíma, sumir 9—12 mánuði
aðrir höfðu ekki gert handtak árum sam-
an vegna veikinda. Þótt vinnutíminn væri
stuttur og tvískiptur með hvíld á milli,
12
BERKLAVÖHN