Berklavörn - 01.06.1946, Page 34

Berklavörn - 01.06.1946, Page 34
STEFÁN VÍGLUNDSSON: HRAFNINN Við stóðum á palli vörubifreiðar, sem þaut með ofsahraða niður Sogsveginn. Við vorum á leið í tjaldstað eftir vel unnið dagsverk. Regnið ýrði úr loftinu og poll- ar voru víða á veginum, svo að gusurnar gengu út frá bílnum. Á móts við Tanna- staði hægði bílstjórinn allt í einu ferðina og stanzaði svo alveg, svo að við hentumst allir í kös fram á bílhúsið. Við vissum ekki hverju þetta sætti, en fengum brátt skýringuna, því að bílstjór- inn þaut út úr bílnum og aftur fyrir hann. Þá sáum við hvar hrafn bagsaði á vegkant- inum. Bílstjórinn náði honum fljótlega, kom með hann til okkar og sagði: „Illa er hann útleikinn ,elsku vinurinn, önnur löppin brotin“. Þetta virtist vera ungi, horaður og úfinn og ógurlegur vargur. Hann gargaði án afláts. Nú var réttur sett- ur þarna á veginum og rætt um það, hvort ,snúa skyldi krumma úr hálsliðnum eða græða beinbrotið og ala liann síðan upp í guðsótta og góðum siðurn. Eiíginn vildi verða til þess að drýgja rnorð á varnarlaus- um fuglinum, svo síðari tillagan var sam- þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Héldum við svo aftur af stað með skjól- stæðing okkar, sem virtist una sér hið versta. Tjöld okkar stóðu undir Ingólfs- fjalli, rétt austan við krossgöturnar, þar sem vegurinn beygir niður að Ölfusá. Þeg- ar komið var í tjöldin, var krummi tek- inn til rækilegrar læknisskoðunar. Einn okkar hafði lesið „Hjálp í viðlögum". Hann gerði að meiðslinu, setti spelkur við fótinn. Síðan létum við krumma inn í verk- Steján Víglundsson. færaskúrinn, gáfum honum ýmsar matar- leifar og lokuðum. Þetta kvöld ræddum við mikið um hrafninn og hvernig haga skyldi uppeldi hans. Ýrnsar voru bollaleggingar okkar og ekki allar sem viturlegastar. Nafn gáfum við fuglinum og kölluðum hann elsku vin- inn. Leið nú nokkur tími. Elsku vinur- inn þreifst vel, fóturinn gréri og uppeldið gekk einnig ágætlega. Nú var Vinurinn farinn að spígspora kringum tjöldin og fara í smá flugleiðangra, en kom alltaf fljótt aftur. Hann var orðinn feitur og pattaralegur, en gerðist um leið matvand- ur, í meira lagi. Bezt þótti honum nýtt kjöt og niðursoðið. Brátt tókum við eftir því, að það var ekki sama hvaðan niður- soðna kjötið var, hann virtist þekkja dós- irnar. Ef byrjað var að taka upp dós frá Sláturfélagi Suðurlands, brást Vinurinn æfareiður við. Allt fiður rauk fram á haus, garg og skammir dundu á okkur og síðan snaraðist hann út. En öðru máli var að gegna, ef tekin var upp dós frá Kaupfélagi Borgfirðinga. Þá kom Vinurinn hoppandi, spígsporaði kringum þann, sem opnaði dósina, spjallaði mikið og var hinn vin- 18 BERKLAVÖRN I

x

Berklavörn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.