Berklavörn - 01.06.1946, Side 35

Berklavörn - 01.06.1946, Side 35
Saumastofan. gjarnlegasti. Svo þegar dósin var opin, át hann nteð beztu lyst. Um þetta leyti fór að bera á hnupli o£ smá þjófnuðum í tjöldum og matarskúr. Slíkt ltafði aldrei komið fyrir áður, í okk- ar félagsskap. Okkur þótti þetta undarlegt og afarleiðinlegt. Helzt gerðum við okkur í liugarlund, að einhverjir slæpingjar, sem um veginn færu, fremdu verknaðinn. En eitt mælti á móti þessu. Ráðskonan, sem heima var allan daginn, varð aldrei vör neinna mannaferða kringum tjöldin. Þannig liðu nokkrir dagar, að hnuplinu hélt áfrarn en ekkert upplýstist. En upp komast svik um síðir. Einn dag, þegar við komurn í mat, stendur ráðskon- an í dyrunum, þungbrýn á svip og segir okkur þau tíðindi, að við fáum víst lítið að borða í þetta sinn. Svo var mál með vexti, að lax hafði verið keyptur kvöldið áður, og um morguninn tók ráðskonan hann og brytjaði niður í bala, sem stóð fyrir utan skúrinn. En þegar til átti að taka, voru mörg stykkin horfin. Þetta þótti okkur mikil tíðindi og ill. Datt mér þá allt í einu í hug, að hér rnyndi Elsku vinurinn ekki vera með öllu saklaus. Labbaði ég svo út og skyggndist um eftir Vininum. Jú, mikið rétt, stendur ekki þrællinn í verkfæraskúrnum brýnandi blóðugan gogginn. Ég hljóp inn og sagði tíðindin.' Héldum við svo fylktu liði í skúrinn og leituðum þjófafeit undir járnplötum og spítnarusli. Fundum við þar mikið af þýf- inu. Ægði öllu saman, hnífum, diskum og allskonar nærfatnaði. Meðan leitin fór fram stóð þjófurinn í dyrunum og horfði á okkur, einna líkast- ur Sigga á kassanum, þegar hann er að deila á efnishyggjumenn. Allt í einu þaut BERKLAVÖRN 19

x

Berklavörn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.