Fréttatíminn - 22.07.2016, Page 34
…maraþon 10 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Það hafa
aldrei jafn
margir erlendir þátt-
takendur skráð sig í
hlaupið og nú, 3400
manns.
Unnið í samstarfi við
Íþróttabandalag Reykjavíkur
Þegar mörg þúsund manns hlaupa af stað í Reykja-víkurmaraþoni Íslands-banka hefur heilmikill
undirbúningur átt sér stað svo
allt gangi sem skyldi. Um 600
manns starfa við Reykjavíkur-
maraþonið sem er skipulagt af
Íþróttabandalagi Reykjavíkur, þar
af tvö full stöðugildi allt árið um
kring. Íþróttabandalag Reykja-
víkur skipuleggur einnig tvö önn-
ur árleg hlaup, Miðnæturhlaupið
og Laugavegshlaupið.
„Handtökin eru mörg, allt
frá því að afhenda drykki og
skera banana í að halda utan um
áheitasíðu, skráningar og mæla
brautina,“ segir Anna Lilja Sig-
urðardóttir hjá Íþróttabandalagi
Reykjavíkur. Vinsældir Reykja-
víkurmaraþonsins fara vaxandi
með ári hverju og nú þegar hafa
verið slegin skráningarmet, mið-
að við sama tíma í fyrra þegar
15 þúsund manns hlupu. Nú hafa
8000 manns skráð sig í Reykja-
víkurmaraþonið, en það er um
20% fleiri en voru skráðir á sama
tíma í fyrra. „Fólk er farið að skrá
sig fyrr til leiks. Bæði æfir fólk í
lengri tíma og margir vilja gefa
sér góðan tíma í að safna áheit-
um.“ Nú hafa safnast rúmlega
þrettán milljónir til góðra mál-
efna, en á sama tíma í fyrra voru
komnar tíu milljónir.
„Vinna við að pakka í umslög-
in sem hlaupurum er afhent með
númerum og öðrum gögnum er
hafin um páskana, en útbúa þarf
um 17 þúsund umslög,“ segir
Anna Lilja. Í hverjum pakka er
skráningarnúmer, tímatökuflaga
ásamt leiðbeiningum, sundmiði
og veglegt tímarit sem gefið er
út árlega í tengslum við hlaup-
ið. „Áætlað er að 17.656 lítrum af
vatni og Powerade verði dreift
til hlaupara á meðan hlaupinu
stendur og í það verði notuð
85.550 glös,“ segir Anna LIlja.
Drykkjastöðvar er staðsettar
með 5 kílómetra millibili. „Við
erum svo heppin að fá að stór-
um hluta til sama fólkið til starfa
ár eftir ár. Þetta er mest fólk úr
íþróttafélögunum í Reykjavík og
með þessari vinnu safna þau fé
Endaspretturinn. Þúsundir verðlaunapeninga eru hengdir á alla hlaupara sem koma í mark.
Með bros á vör.
Á réttu tempói. Hraðastjórar hjálpa hlaupurum að ná markmiðum sínum. Þeir hlaupa á
jöfnum hraða sem merktur er á vesti og blöðrum.
Göturnar. Margar götur eru lokaðar á
meðan hlaupi stendur. Hægt er að kynna
sér allar lokanir á marathon.is.
Slegið á þorstann. Starfsmenn með útréttar hendur við hverja drykkjastöð sjá til þess að allir fái nægan vökva. Rúmlega 17 þúsund lítrar af drykk er hellt í um 85 þúsund glös til að svala þorsta hlauparanna.
Sigur í höfn. Fyrstu hlauparar í flokki karla og kvenna hlaupa í gegnum borða þegar þau
koma í mark.
Fólkið á bakvið tjöldin
Fjöldi fólks stendur að baki þeim stórviðburði sem Reykjavíkurmaraþonið er. Undirbúningur er í gangi allt árið um
kring og þegar stóri dagurinn rennur upp eru um 600 manns að sinna margvíslegum verkum. Fagleg vinnubrögð og
jákvætt viðhorf þeirra sem að hlaupinu standa er grunnurinn að velgengni Reykjavíkurmaraþons.
fyrir sitt félag. Reynsla þeirra af
íþróttastarfi kemur að góðum
notum, til dæmis þegar kem-
ur að því að hvetja hlauparana
áfram. Hlauparar hafa haft orð á
því hvað stuðningur og hvatn-
ing frá brautavörðum og öðrum
starfsmönnum hefur mikið að
segja,“ segir Anna Lilja.
Það góða starf sem fólkið á
bakvið tjöldin vinnur hefur skil-
að sér í góðu orðspori út fyrir
landsteinana. „Það hafa aldrei
jafn margir erlendir þátttakendur
skráð sig í hlaupið og nú, 3.400
manns, og skráningu er ekki
nærri lokið. Flestir sem koma
hingað hafa frétt af Reykja-
víkurmaraþoninu frá vinum og
vandamönnum. Það þykir gott að
hlaupa hérna á þessum árstíma,
þar sem víða erlendis er ekki
hægt að hlaupa vegna hita.“
Hlaupdagurinn sjálfur byrj-
ar snemma hjá starfsmönnum
Reykjavíkurmaraþons. „Uppsetn-
ing á markinu sjálfu hefst fljót-
lega eftir miðnætti. Klukkan 4.30
mætir svo hópur fólks til að stilla
upp öllu marksvæðinu og tíma-
tökuteymið tekur til starfa um
klukkan 6. Fyrstu hlauparar eru
ræstir af stað kl. 8.40 og tíma-
töku lýkur kl. 14.40. Að því loknu
tekur við frágangur á hlaupa-
brautinni og marksvæði sem
lýkur um kl. 18.”