Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 06.08.2016, Síða 2

Fréttatíminn - 06.08.2016, Síða 2
Söfnun Hjálparsamtök bágstaddra barna eru nýlega stofnuð félagasamtök sem biðla til fólks um að styrkja fátæk börn. Fjöldapóstur með ósk um peninga var ný- lega sendur út en ómögulegt er að rekja hver stendur fyrir söfnuninni. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Engin leið var að finna ábyrgðar- menn söfnunarinnar í kynningarefni samtakanna, né eiganda símanúm- ers sem gefið er upp á hjalparsamtok.is , þar til Frétta- tíminn spurðist fyrir um það. Ekki var svarað í síma samtakanna held- ur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. „Okkur hafa borist upplýsingar um þessa síðu og erum að skoða hvort eitthvað óeðlilegt sé í gangi,“ segir Snorri Birgisson, lögreglufull- trúi á höfuðborgarsvæðinu. Samtökin eru nýstofnuð en sam- kvæmt lögum ber að sækja um leyfi fyrir opinberri fjársöfnun. Fjár- söfnun í keðjubréfum er óheimil. Samkvæmt upplýsingum frá sýslu- manninum á Suðurlandi hafa Hjálp- arsamtök bágstaddra barna ekki fengið leyfi fyrir opinberri fjársöfn- un. Tilgangur samtakanna er að „vinna að velferð bágstaddra barna og þeirra sem eiga um sárt að binda á Íslandi og víðar.“ Um þessar mundir fer púðrið í að safna fyrir skóladóti sem reynist bágstöddum fjölskyld- um þungbært að fjármagna. Glæsi- leg heimasíða samtakanna var opn- uð með tölum úr nýlegri skýrslu UNICEF um fátækt barna á Íslandi. Undanfarna daga hefur fjölmörg- um aðilum borist tölvupóstur úr netfanginu postur@hjalparsamtok. is þar sem óskað er eftir peningum sem eiga að renna til bágstaddra barna. Í póstinum er vitnað í skýr- slu UNICEF. UNICEF sendi hjálparsamtökun- um póst og óskaði eftir upplýsingum um aðstandendur og að leiðrétt yrði orðalag þar sem vitnað er í UNICEF. Svar barst frá Gunnari Bender, blaða- og veiðimanni, þar sem hann segir samtökin ný í þessum geira og muni einbeita sér að börnum á grunn- skólaaldri og þar sem þörfin sé brýn- ust hverju sinni. Gunnar er titlaður formaður samtakanna, í tölvupóst- inum. Fréttatíminn spurði Gunnar um samtökin. „Ég veit ekkert um þetta, ég hjálpaði þeim bara að koma þessu af stað og aðstoðaði lítillega við markaðsmál.“ Hann vísaði alfarið á Eggert Jóhannesson. Eggert sagðist, í samtali við Frétta- tímann, vera framkvæmdastjóri samtakanna. Fjöldapósturinn, sem sendur var út í vikunni, hafi hins- vegar verið sendur út óvart og ekki að beiðni samtakanna. „Það var tölvufyrirtæki úti í bæ sem sendi þetta, án þess að við höfum óskað eftir því. Söfnunin er hinsvegar rétt að byrja og við höfum fengið 68 þús- und krónur inn.“ Hvernig verður peningunum úthlutað? „Núna erum við að safna í sam- bandi við skóladót og þessháttar og við erum með plan um það að koma kannski greiðslum til, sem sagt, þeirra sem eru einstæðar mæður og svona.“ Hvernig verður söfnunarfénu miðlað? „Við ætlum að setja okkur í sam- band við samtök sem eru á svipaðri bylgjulengd og við. Og svo er félags- leg aðstoð hjá sveitarfélögunum, svo það er öruggt mál að víða er þörf. Eins og Mæðrastyrksnefnd, við höf- um mikinn hug á að veita mestu til þeirra.“ Hvers vegna er þess ekki getið á heima- síðunni?„Við viljum ekki eyrna- merkja peningana, til dæmis ef ein- hverjir vilja sækja um til okkar. Það er algengt hjá svona samtökum.“ Eggert segist hafa sótt um öll til- skilin leyfi fyrir söfnuninni. Fréttatíminn hefur rætt við konu, eiganda lítils fyrirtækis í Kópavogi, sem millifærði 20 þúsund krónur inn á reikning samtakanna í gær. Það runnu hinsvegar á hana tvær grím- ur þegar hún uppgötvaði að enginn væri skráður fyrir samtökunum. Skúli Jónsson er sviðsstjóri skráa- sviðs ríkisskattstjóra; „Vandamálið er að það eru ekki neinar reglur um félagasamtök. Við viljum hafa laga- bókstafinn sem skýrastan svo ekki þurfi að koma til okkar persónulega mats á því hvað megi skrá og hvaða kröfur megi gera til slíkra félaga um stjórnskipulag og upplýsingaskyldu.“ Sakamál Nítján ára piltur, sem er grunaður um að hafa nauðgað tveimur stúlkum, hefur kært gæsluvarðhalds- úrskurð yfir sér. Fréttatíminn greindi fyrst frá mál- inu í gær en þar kom fram að piltur- inn er sakaður um að hafa nauðg- að tveimur 15 ára stúlkum með viku millibili. Í fyrra skiptið var piltinum sleppt úr haldi, en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Viku síðar var hann handtekinn aft- ur vegna gruns um nauðgun. Að sögn skipaðs verjanda pilts- ins, Unnars Steins Bjarndal, fór lög- reglustjórinn á höfuðborgarsvæð- inu fram á að gæsluvarðhald yfir piltinum yrði framlengt um mánuð, eða til 2. september. „Héraðsdómur féllst ekki á það, en úrskurðaði hann í gæsluvarðhald til 19. ágúst. Lög- reglustjóri krafðist þessa á grund- velli almannahagsmuna en telur ekki lengur þörf á gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Umbjóðandi minn kærði úrskurðinn til hæstaréttar og niðurstaðan mun liggja fyrir í fyrri hluta næstu viku,“ segir Unnar Steinn. | vg/þt 2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016 Fjölmiðlar Aðalritstjóri 365 miðla sagði upp yfirmanni ljósmyndadeildar 365 miðla í gær, en sá hafði sakað hana um að beita sig einelti. Þá sló í brýnu á starfsmannafundi eftir uppsögnina á milli starfsfólks og ritstjórans. Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, sagði Pjetri Sigurðar- syni, yfirmanni ljósmyndadeildar 365 miðla, upp störfum í gær. Hann hafði áður sakað hana um að leggja sig í einelti. Nokkur titringur er á meðal starfsfólks vegna uppsagnar- innar og sló meðal annars í brýnu á milli starfsmanna og ritstjórans þegar uppsögnin var tilkynnt sam- starfsmönnum Pjeturs í gær. Það var í lok maí sem Fréttatím- inn greindi frá því að Pjetur Sig- urðsson væri í leyfi frá störfum hjá fyrirtækinu vegna ásakana um ein- elti. Hann starfaði hjá fyrirtækinu í 13 ár, eða nánast frá stofnun Frétta- blaðsins, og var undir það síðasta yfirmaður ljósmyndadeildar 365 miðla. Eineltið á að hafa staðið yfir í um eitt ár og hafa lýst sér í sí- felldum athugasemdum við störf og vinnuframlag Pjeturs. Þá voru samskipti þeirra á milli stirð. Að lokum upplifði hann hegðun Krist- ínar sem persónulega aðför að sér sjálfum. Pjetur staðfestir í samtali við Fréttatímann að honum hafi verið formlega sagt upp störfum í gær. Hann segist enga afsökunarbeiðni hafa fengið og málinu hafi lokið með uppsagnarbréfi. Hann segist aftur á móti enga ákvörðun hafa tekið um einhverskonar framhald málsins. Í kjölfar uppsagnarinnar kallaði Kristín samstarfsmenn Pjeturs á fund. Þar reifaði hún málið og úr varð að nokkuð snörp orðaskipti urðu á milli ritstjórans og starfs- manna. Samkvæmt heimildum Fréttatímans reifaði Kristín eigin sjónarmið í málinu og gagnrýndi bæði Pjetur fyrir hroka í starfi, og einnig athugun mannauðsstjórans, Unnar Maríu Birgisdóttur, á ein- eltinu. Unnur sagði svo upp störfum skömmu eftir að málið kom upp. Þá hafði hún aðeins starfað hjá fyrir- tækinu í um 6 mánuði. | vg Kristín Þor- steinsdóttir hélt starfsmannafund þar sem hún reifaði sjónarmið sín varðandi upp- sögn Pjeturs. Rak yfirmann ljósmyndadeildar og sakaði um hroka Hart er sótt að súgfirsku þingkon- unni Lilju Rafneyju Magnúsdóttur í komandi forvali Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. Hvorki fleiri né færri en þrír karlmenn sækjast eftir sæti hennar. Lárus Ástmar Hannes- son hefur lýst yfir framboði og sagt er að Bjarni Jónsson, sonur Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, sé að hugsa málið. „Þetta er galið, við erum þrír að sækjast eftir sætinu,“ segir Rúnar Gíslason sem er tvítugur að aldri og sonur sjónvarpsmanns- ins Gísla Einarssonar. „Ég vona það besta en býst við því versta.“ Hann segir að sitt framboð sé ekki gagnrýni á Lilju: „En það á enginn neitt í pólitík.“ Samkvæmt heimildum Fréttatímans hafa tugir nýrra meðlima gengið í flokkinn til að styðja sína frambjóðendur í for- valinu sem verður í haust. Hart sótt að Lilju Rafneyju Þrír karlar stefna á sæti Lilju Rafneyjar. Grunaður nauðgari áfram í gæsluvarðhaldi Ekki bara verð ræður kaupum ráðherrabíla Útboð Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa, vísar á bug gagnrýni Friðberts Friðbertssonar, forstjóra Heklu, um að útboð um ráð- herrabíla séu tilgangslaus. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Í Fréttatímanum í gær gagnrýndi forstjóri Heklu að Ríkiskaup hefðu í þrígang synjað tilboðum þeirra í ráð- herrabíla, þó þau væru lægstu boð og uppfylltu öll skilyrði útboðslýs- inga. Halldór Ó. Sigurðsson hjá Rík- iskaupum segir það ekki sjálfgefið að taka lægsta tilboði hverju sinni, Rík- iskaup starfi eftir ströngum reglum. „Eins og nefnt hefur verið er það því ekki alltaf verð sem ræður niður- stöðu eins og umfjöllun Fréttatím- ans virðist ganga út frá. Óheimilt er að velja tilboð sem uppfyllir ekki kröfur tæknilýsingar og hæfiskröf- ur til bjóðanda, jafnvel þótt um lægsta tilboð sé að ræða. Hver og einn bjóðandi fær málefnalegar röksemdir fyrir valinu, sem byggist á valforsendum útboðsgagna og tæknilýsingu. Þér er velkomið að fá bæði örútboðsgögn og röksemd- ir fyrir vali í hverju tilviki fyrir sig í þeim örútboðum sem hér um ræðir. Að síðustu skal þess getið að selj- endur geta kært niðurstöðu útboðs og er það rétti farvegurinn ef selj- andi telur niðurstöðu útboðs byggða á ómálefnalegum sjónarmiðum. Það hefur seljandi ekki gert í þessu til- viki. Ríkiskaup eiga engra hagsmuna að gæta við val á ráðherrabifreiðum að öðru leyti en því að farið sé að lögum við innkaupin,“ segir Halldór. Halldór Ó. Sigurðs- son hjá Ríkiskaup- um, segir ekki sjálfgefið að taka lægsta tilboði. Eggert Jóhann- esson er fram- kvæmdastjóri hjálp- arsamtakanna en hans er hvergi getið á heimasíðunni. Nafnlaus samtök safna fyrir bágstödd börn Hver króna skiptir máli, segir á heimasíðu Hjálparsamtaka bágstaddra barna. Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 Á R A Grillbúðin Opið virka daga 11-18 Laugardaga 11-16 Mikið úrval garðhúsgagna grillbudin.is frá Þýskalandi GAR ÐHÚ SGÖ GN 20 - 5 0% afslá ttur

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.