Fréttatíminn - 06.08.2016, Qupperneq 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016
Samkvæmt nýjustu könnun
Gallup, sem var birt 29. júlí síð-
astliðinn, eru þeir flokkar sem
eru hlynntir uppboðsleiðinni,
með 63,3 prósent. Þeir flokk-
ar sem eru andvígir leiðinni,
Framsókn og Sjálfstæðisflokk-
ur, eru með samanlagt 36,1
prósent.
Allir nema stjórnarflokkarnir vilja uppboð
Stjórnmál Fimm af sjö
stærstu stjórnmálaflokkum
landsins vilja reyna upp-
boðsleiðina í sjávarútvegi
hér á landi, þó blæbrigða-
mun megi finna á aðferðum
sem stjórnmálaflokkarnir
vilja fara. Framsóknar-
flokkurinn er harðastur í
andstöðu sinni gagnvart
uppboðsleiðinni, samkvæmt
nýjustu fréttum, á meðan
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur
verið óljósari í málflutningi.
Valur Grettisson
Valur@frettatiminn.is
Bæði Samfylkingin og Vinstrihreyf-
ingin grænt framboð ætla að bjóða
færeyskum stjórnmálamönnum til
landsins í haust til þess að fræð-
ast um uppboð Færeyinga á kvóta.
Þannig stefnir VG á að bjóða sjáv-
arútvegsráðherra Færeyinga til
landsins, Högna Höydal, á meðan
Samfylkingin hyggst bjóða Aleks V.
Johannessen, formanni Jafnaðar-
flokksins og lögmanni Færeyinga.
„Við höfum haft þessa leið á
stefnuskránni frá upphafi,“ útskýrir
Oddný G. Harðardóttir, en Samfylk-
ingin hefur lengi barist fyrir svo-
kallaðri fyrningarleið sem er í anda
uppboðsleiðar Færeyinga.
„Við þurfum að læra af reynslu
Færeyinga og því höfum við boðið
Aleks að koma til landsins í haust,“
segir Oddný. Spurð út í rök and-
stæðinga uppboðsleiðarinnar, með-
al annars út frá þeim forsendum að
það sé erfitt fyrir fyrirtæki að skipu-
leggja sig í slíku umhverfi, svarar
Oddný að það sé ódýr fyrirsláttur.
„Þá er hægt að gera langtímasamn-
inga,“ bætir hún við.
Píratar hafa ítrekað mælst
stærsta stjórnmálaaflið hér á landi
síðustu mánuði, en Birgitta Jóns-
VG
16,8%
Sam
fylkingin
8,0%
Björt
framtíð
8,0%
Píratar
25,3%
Sjálfstæðisflokkur
26,2%
Framsókn
9,9%
dóttir, þingmaður Pírata, segir
flokkinn hafa skýra stefnu í sjávar-
útvegi, „og hún er mjög í anda fær-
eysku leiðarinnar,“ segir Birgitta.
Þegar stefna Pírata er skoðuð má sjá
að vilji flokksins er skýr; þeir vilja
markaðsvirði fyrir kvótann.
Viðreisn er með keimlíka stefnu
og Píratar. Benedikt Jóhannesson,
formaður Viðreisnar, segist ekki
vera hrifinn af fyrningarleiðinni,
honum þyki hreinlegast að bjóða
upp 5-10% kvóta á ári í 10-20 ár.
Hann segir að til þess að auka á
rekstraröryggi fyrirtækja, þá megi
endurúthluta aflaheimildum áfram
árið eftir.
„Mér finnst eðlilegast að fyrir-
tæki borgi markaðsvirði fyrir kvót-
ann, þannig fær almenningur eðli-
legan arð af auðlindunum,“ segir
Benedikt.
Vinstri grænir vilja skoða upp-
boðsleiðina, „þetta er mjög
spennandi umræða,“ segir Katrín
Jakobsdóttir, formaður VG. Hún
segir flokkinn þó vilja fara bland-
aða leið, þannig vilja þau bjóða upp
hluta af kvótanum og úthluta rest,
meðal annars með áherslu á að
styrkja byggðarlög.
„Byggðir hafa verið að taka koll-
steypu vegna kvótasölu og við vilj-
um skoða það hvernig við getum
tryggt byggðafestu,“ segir Katrín.
Óttarr Proppé, formaður Bjartr-
ar framtíðar, segir mikilvægt að
horfa til nýliðunar í sjávarútvegi,
en flokkurinn er hlynntur uppboðs-
leiðinni. „Nýliðun í dag er mögu-
leg, en bara undir frekar óréttlátum
aðstæðum, þar sem þarf að kaupa
sig dýrum dómi inni í kerfið,“ segir
Óttar. Hann segir uppboðsleiðina
í raun geta auðveldað nýliðun á
markaði.
Ef reiknað er út virði þorskkvót-
ans hér á landi, með virði hans í
færeyska uppboðinu til hliðsjón-
ar – sem voru 3,40 krónur danskar
krónur kílóið – má fá út að virði
þorskkvótans á Íslandi sé 83 millj-
arðar króna. Aftur á móti greiða út-
gerðir aðeins 4,8 milljarða í veiði-
leyfagjöld.
Útgerðir greiða 4,8 milljarða í veiði-
leyfagjöld, á meðan þorskkvótinn einn
gæti verið 83 milljarða króna virði.
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
kjúklinga
vefjur og borgarar
Gaypride „Það verða 34
atriði og þátttakendur
hlaupa á hundruðum,“ segir
Setta María Mortensen, ein
af göngustjórum Gleði-
göngunnar sem fram fer í
dag, laugardaginn 6. ágúst.
Þá mun BDSM félagið einnig
taka þátt í göngunni með
formlegum hætti í fyrsta
skiptið.
„Þarna verða fastir liðir eins og
venjulega, lúðrasveitir, Páll Óskar,
dragdrottningar og ýmsir grasrót-
arhópar,“ segir Setta María sem
býst við góðri mætingu enda spáð
fjórtán stiga hita og sól á köflum.
Þema Hinsegin daga í dag er
saga hinsegin fólks en gangan mun
þó ekki endilega endurspegla það
þema sérstaklega.
Þau tíðindi áttu sér stað hjá Sam-
tökunum ´78 að BDSM félagið fékk
inngöngu í samtökin þrátt fyrir
miklar deilur innan þeirra. Formað-
ur BDSM félagins, Magnús Hákonar-
son, segir þær deilur ekki varpa
miklum skugga á þátttöku þeirra.
„Það skiptir eiginlega engu máli
hvað við gerum, við verðum alltaf
umdeild,“ segir hann. Magnús býst
ekki við fjölmennum hópi úr BDSM
félaginu í göngunni á morgun, en
félagsmennirnir verða á vagni í
göngunni.
„Líklega verðum við frekar lág-
stemmd í göngunni,“ segir Magnús
spurður hvort að þarna verði áber-
andi atriði á ferð.
„Tilgangur okkar er bara að auka
á sýnileikann og auðvelda næstu
kynslóð, eða þeim sem á eftir koma,
að koma út úr skápnum,“ segir
Magnús sem er kominn með sér-
stakan leðurpride-fána í hendurn-
ar, sem liðsmenn félagsins munu
skarta í göngunni.
Gangan hefst klukkan 14 og verð-
ur gengið frá Vatnsmýrarvegi að
Arnarhóli. | vg
Liðsmenn BDSM lágstemmdir í Gleðigöngu
Gleðigangan hefur verði gengin árlega frá árinu 1999 við miklar
vinsældir landsmanna.