Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 06.08.2016, Side 16

Fréttatíminn - 06.08.2016, Side 16
Drekar selja Adidas Í portinu á Prikinu verður Gullni Drek- inn með sumarsölu á fatnaði. Um er að ræða Adidas fatnaðinn sívinsæla, Adidas skó og annan íþróttafatnað. Gott að næla sér í ferskt lúkk fyrir haustið. Hvar? Portið á Prikinu Hvenær? Laugardaginn klukkan 12 16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016 GOTT UM HELGINA Muse til Íslands Hljómsveitin á bak við slagarana Uprising, Ysteria, Supermassi- ve Black Hole er mætt til Íslands með tónleika í Laugardalshöll. Það má búast við mikilli sýningu er hljómsveitin er þekkt fyrir frábæra sviðsframkomu. Hvar: Laugardalshöll Hvenær: Laugardaginn klukkan 20.30 Gleðilega Hinsegin daga! Páll Óskar mætir sem silfraður, vængjaður ein- hyrningur, það verða dragdrottningar og kóngar, atriði og skemmtun í árlegu göngu Hinsegin daganna. Gangan hefst við Vatns- mýrarveg klukkan 14 og lýkur á Arnarhóli þar sem skemmtiatriði taka við. Tvíeykið Eva Hljómsveitin Eva hlaut heims- frægð á Íslandi fyrir leggangaáróð- ur hér um árið. Þær koma fram á skemmtistaðnum Kiki með ljúfa tóna og létt sprell. Hvar? Kiki Hvenær? Sunnudaginn klukkan 21 Brennt til góðs Farðu og hristu rass- inn í Tabata þjálfun til styrktar Styrktarfé- lagi krabbameinssjúkra barna. Í Tabata þjálfun er púlsinum haldið upp og mun Birkir Vagn, einn harðasti þjálfari World Class, stýra æfingunni. Aðgangseyrir er 1.500 krónur en frjáls framlög eru vel þegin. Hvar? World Class Laugum Hvenær? Laugardaginn klukkan 12 Mín eigin manndómsvígsla Íslendingur á nú heimsmet í róðri á þremur úthöfum Fjögurra manna róðrarteymi Fiann Paul sló heimsmet þann 14. júlí þegar það kom að landi í Hawaii eftir 39 daga róður á Kyrrahafi. Metið markaði sjötta heimsmet Fiann sem er fyrsti maðurinn til að eiga heimsmet í róðri á þremur úthöfum. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is „Í raun hafði ég mestu að tapa af öllum í keppninni en á sama tíma var til mikils að vinna. Ég vissi að sigraði ég í keppninni myndi mér áskotnast titill sem engum öðrum hefði tekist að vinna. En ég var langt í frá viss um að vinna, enda komust aðeins sex af tólf bátum, sem skráð- ir voru til keppni, á leiðarenda.“ Fiann hefur litið á Ísland sem sitt heimaland í 11 ár, og kom bátur liðs hans að landi á Hawaii með íslenska fánann á flaggstönginni. Hann sneri aftur heim til Íslands í vikunni og segist hafa haldið sig í sundlaugum og heitum pottum síðan hann kom til landsins, enda tekur róður í 39 daga svo á að menn eru lengi að jafna sig eftir. Þrátt fyrir frábæran árangur hyggst hann ekki leita frekari áskor- ana í róðrinum í kjölfar heimsmet- anna, heldur ætlar að leggja stund á svokallaða analýtíska sálfræði kennda við Carl Jung, sem hann segir raunar mjög tengda róðrar- afrekunum: „Greinin leggur áherslu á að skoða sjálf einstaklinga og sér- stöðu fólks,“ segir Fiann og útskýr- ir að kalla mætti fræðin einskonar manndómsfræði: „Þegar heimur- inn var byggður ættbálkum fengu ungir menn manndómsvígslu sem markaði inngöngu þeirra inn í heim fullorðinna, og gaf þeim þar með sjálfstraust til að taka þátt í hon- um. Nú er öldin önnur og margir karlmenn vaxa úr grasi óöruggir og óvissir um manndóm sinn, ef svo má segja.“ Sem dæmi segir Fiann höfnun frá feðrum geta orðið til þess að menn leita sífellt eftir sam- þykki frá stofnunum, sem þeim áskotnast ekki. Eins geti vandamál í sambandi móður við son orðið til þess að hann eigi erfitt með að mynda heilbrigð sambönd við kon- ur, og svo framvegis. Greinin fæst við að leita svara við því hvernig menn geti fundið slíka manndóms- vígslu í nútímalífi. Er róðurinn því manndóms- vígslan sem Fiann þurfti á að halda? „Algjörlega. Síðan róðrinum lauk í júlí hef ég í fyrsta sinn á ævinni fundið keppnisskapið sem hefur fylgt mér alla ævi hverfa að miklu leyti. Mér líður loks eins og ég sé orðinn maður og get gert eitthvað annað en að keppa að heimsmet- um,“ segir Fiann, og vísar til náms- ins sem hefst í Carl Gustav Jung-há- skólanum í Sviss í haust. Róðrarferð af þessu tagi tekur auðvitað andlega á og því ekki fjarri lagi að nema sálfræði eftir hana. Á bátnum með Fiann voru þrír aðr- ir ræðarar sem Fiann hafði aldrei hitt fyrir keppnina, og engin leið að vita hvernig þeim myndi koma saman, fastir í litlu rými allan sól- arhringinn. Fiann segir að auðvit- að verði til togstreita á leiðinni og maður sjálfur þurfa að éta ýmis- legt ofan í sig: „Til dæmis reyndist manneskjan sem ég bjóst við að hafa áhyggjur af í liðinu sú sem reyndist mér langbest í ferðinni. Ég var reyndastur í liðinu, þó ég væri ekki liðsforingi, og það var ólík reynsla að þurfa ekki bara að hafa áhyggj- ur af sjálfum mér, heldur öllum í liðinu. Mitt aðalmarkmið var að koma liðsmönnum mínum á leiðar- enda.“ Fiann skilur því við Ísland í bili í haust, en ætlar þó að taka lauflétt- an róður frá Íslandi til Svalbarða á næsta ári: „Vonandi næ ég meti fyr- ir besta tímann á Norður-Íshafi. En það er mér svo sem ekkert kapps- mál,“ segir kappinn. Fiann Paul segir 39 daga róðurinn yfir Kyrrahafið hafa verið sína persónulegu manndómsvígslu. 6 heimsmet Fianns Paul: - Hraðasti róður yfir Atlantshaf - Flestir dagar við róður á vegalengd yfir 100 mílum - Hraðasti róður yfir Indlandshaf - Lengsta vegalengd róin af nokkru róðrarteymi - Hraðasti róður yfir Kyrrahaf - Fyrsti maður til að eiga heimsmetið í hraðasta róðri á þremur úthöfum í einu WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralíf og hinum forna menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída,gamlar menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims og upplifum regnskóginn. Endum svo á lúxus hóteli við Karabíska, þar sem allt er innifalið. 568.320.- á mann í 2ja manna herbergi Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat, islenskur fararstjóri, allar ferðir og aðgangur þar sem við á. 0 4 - 1 9 O k t ó b e r 2 0 1 6 Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA MEXICO, BELIZE & GUATEMALA Hin fagra og forna Albanía. Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð. Verð 344.900 per mann i 2ja manna herbergi Innifalið. Flug hótel í London, hótel m/hálfu fæði í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og aðgangur þar sem við á. Upplýsingar í síma 588 8900 Albanía 4. - 15. október

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.