Fréttatíminn - 06.08.2016, Page 30
Ofnæmisviðbrögð eru óeðlileg við-brögð ónæm-iskerfisins og getur ofnæmi
komið fram hvenær sem er á
ævinni. Ef þú tekur eftir því
að húð þín verður viðkvæm
eftir notkun snyrtivara, út-
brot myndast eða nefrennsli
eykst ættir þú að kanna
hvort möguleiki sé á að um
ofnæmi sé að ræða. Rotvarn-
arefni og ilmefni eru ihalds-
efni í snyrtivörum sem aðal-
lega eru ofnæmisvaldandi.
Þó að þú hafir verið að nota
sömu vöruna árum saman
getur ofnæmi allt í einu gert
vart við sig.
Hægt er að minnka líkurn-
ar á snyrtivöruofnæmi með
ýmsum leiðum.
Ofnæmi getur gert vart
við sig þó þú hafir notað
sömu vöruna árum saman
Hægt er að minnka líkur á snyrtivöruofnæmi með ýmsum leiðum.
Ekki nota farða
Prófaðu að vera nokkra daga án
andlitsfarða. Leyfðu húðinni að anda
og vera án allra ónáttúrulegra auka-
efna.
Gerðu blettapróf
Áður en þú tekur í notkun nýja vöru
skaltu bera hana á þig, á lítið svæði,
til dæmis á hálsinn undir eyrunum
eða á hendina, þar sem húðin er
þynnri og viðkvæmari. Hafðu vöruna
á í góðan tíma og kannaðu síðan
hvort einhver erting eða ofnæmi er
á húðinni. Ef þig klæjar eða ert með
roða, eru líkur á því að þú sért með
ofnæmi.
Settu ilmvatnið á fötin þín
Sum innihaldsefni í ilmvatni geta
valdið ofnæmisviðbrögðum. Spreyj-
aðu ilmvatninu þínu því frekar á
fötin þín til að minnka líkurnar á því
að þú fáir ofnæmi eða þróir með þér
ofnæmi fyrir uppáhaldsilmvatninu
þínu.
Ekki láta blekkja þig
Það er ekki sjálfgefið að varan valdi
þér ekki ofnæmi, þó að hún hafi ver-
ið ofnæmisprófuð eða sé einungis
framleidd úr náttúrulegum inni-
haldsefnum.
Haltu áhöldunum þínum
ávallt hreinum
Þú skalt passa upp á að burstarn-
ir þínir og svampar séu ekki fullir
af bakteríum með því að þrífa þá
reglulega. Þú kemur bæði í veg fyr-
ir sýkingar og lengir endingartíma
áhaldanna.
Forðastu að nota augnfarða
Ef þú ert viðkvæm fyrir augnfarða
er gott að minnka notkun hans og
þá sérstaklega ef þú notar linsur.
Aðalatriðið er að þú ofbjóðir ekki
húð þinni með ofnæmisvaldandi efn-
um og bakteríum. Þú getur vel feng-
ið ofnæmi fyrir vörum sem þú hefur
notað í töluverðan tíma og lífrænar
vörur geta líka valdið ofnæmi.
Nú þegar Reykjavíkurmaraþonið er
á næsta leiti er ekki úr vegi að vera
með það á hreinu hvernig best er
að haga síðustu vikunni fyrir hlaup,
þegar spenningurinn og stressið
nær hámarki.
Hvíldu þig vel
Eitt það mikilvægasta sem þú
þarft að gera í síðustu vikunni
fyrir hlaup er að hvílast vel. Þú ert
væntanlega búin/n að æfa af krafti
síðustu mánuði en þessi tími snýst
um góða hvíld og styttri hlaup.
Sofðu nóg
Mikilvægt er fyrir maraþon-
hlaupara að sofa vel rétt fyrir hlaup.
Síðustu tvær til þrjár næturnar
eru mikilvægastar. Ef þú nærð
nokkrum góðum nóttum þarftu
ekki að örvænta eins mikið ef svefn-
inn er lítill allra síðustu nóttina.
Borðaðu skynsamlega
Það er mikilvægt að passa hvað
maður borðar rétt fyrir hlaup.
Passaðu þig á trefjaríkum mat og
djúpsteiktum mat. Borðaðu bara
það sem þú þekkir og veist að kem-
ur ekki ójafnvægi á meltinguna.
Drekktu passlega mikið
Drekktu það magn af vatni sem
heldur þvaginu þínu límonaði
gulu. Það á ekki að vera dökkgult
og ekki glært.
Ekki prófa nýjar æfingar
Í vikunni fyrir hlaup er ekki rétti
tíminn til að taka einhverja sénsa,
fara í fjallgöngur eða prófa nýjar
æfingar. Haltu þinni rútínu og
hreyfðu þig létt við hvert tækifæri.
Kynntu þér brautina
Ef þú býrð í nágrenni við
hlaupaleiðina hefurðu væntanlega
prófað að hlaupa að minnsta kosti
hluta hennar. Svo er gott að keyra
eða hjóla brautina til að kynna sér
hóla og hæðir. Það er líka gott að
vita hvar drykkjar- og sjúkrastöðv-
ar verða staðsettar.
Skipulegðu þig vel
Vertu með það á hreinu hvernig
þú kemst til og frá hlaupastaðnum.
Taktu saman það sem þú þarft að
nota strax eftir hlaupið og segðu
fjölskyldu og vinum hvar er best að
standa til að styðja þig og hvetja.
Ekki prófa neitt nýtt
Ekki fara að prófa nýjan
hlaupafatnað rétt fyrir hlaup, sér-
staklega ekki skó.
Hafðu þetta í huga síðustu vikuna fyrir hlaup
Góður undirbúningur Síðustu vikuna
fyrir hlaup skiptir miklu máli að reyna ekki
einhverja nýjar kúnstir.
Svo virðist sem berjaspretta verði með allra besta móti í ár. Það er varla
til betri tilfinning en að skunda út í móa, fá góða hreyfingu og hreint
loft í lungun meðan berin bragðgóðu eru tínd í fötu. Ber er dásamlegt
að borða ein og sér með rjóma eða búa til sultu, hlaup, sósur, bökur eða
annað lostæti. Vitað er um góða berjasprettu í Fljótunum fyrir norðan,
víða á Vestfjörðum, í Hvalfirðinum og austan við Lagarfljót fyrir austan,
svo dæmi um berjalönd séu tekin. Á Facebooksíðunni Berjavinir eru
góð ráð og gagnleg fyrir þann sem hyggst vitja berja og ábendingar um
góða berjatínslustaði. Bláber eru meinholl, stútfull af andoxunarefn-
um, tapa ekki hollustu við að vera fryst, eru hitaeiningasnauð og vís-
bendingar eru um að þau geti lækkað blóðþrýsting og verið vörn fyrir
hjartasjúkdóma. Svo má ekki gleyma krækiberjunum sem eru dásamleg
þegar þau eru vel þroskuð og safarík. Öll í berjamó!
Góð berjaspretta í ár
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SELESTE
UMGJÖRÐ Á:
1 kr.
við kaup á glerjum
…heilsa 10 | amk… LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2016