Fréttatíminn - 06.08.2016, Side 32
alla föstudaga
og laugardaga
Fagnaðu fjölbreytileikanum
Skreyttu þig og fjölskylduna í regnbogalitunum og farðu í gleðigöngu í dag.
Óhætt er að lofa frábærri stemningu og mikilli gleði. Svo er veðurspáin líka góð.
Skjótur skilnaður hjá Drew Barrymore
Fjögurra ára hjónabandi hennar og Will Kopleman lokið.
Fær frábæra dóma
í New York Times
Gunnar Karl Gíslason mat-
reiðslumaður flutti í ársbyrjun til
New York til að opna veitinga-
staðinn Agern í félagi við danska
matarmógúlinn Claus Meyer.
Gunnar hafði getið sér gott orð
fyrir sín störf á veitingastaðnum
Dill og Meyer var einn stofnenda
Noma í Kaupmannahöfn svo eitt-
hvað gott hlaut að koma út úr
samstarfinu. Og sú virðist vera
raunin ef marka má umfjöllun í
New York Times á dögunum. Þar
fær staðurinn frábæra umsögn og
þrjár stjörnur af fjórum mögu-
legum sem telst virkilega gott.
„Frá opnun hefur Agern tekist að
gera lestarstöðina og veitinga-
húsaflóruna í New York mun
áhugaverðari,“ segir meðal annars
í umfjölluninni.
Nýir grínþættir
í undirbúningi
Félagarnir Steindi Jr., Sveppi
og Auddi undirbúa nú nýja grín-
þætti á Stöð 2. Þeir ætla sér að
gera grínsketsa og stefnt er að
því að þættirnir fari í sýningar á
næsta ári. Leikstjóri verður Ágúst
Bent sem hefur lítið látið fyrir sér
fara á þeim vettvangi eftir um-
talaða líkamsárás hans í fyrra á
stjórnarformann ÍMARK.
Leikkonan Drew Barrymore og Will
Kopleman skiluðu inn skilnaðar-
pappírum í síðasta mánuði og skiln-
aðurinn var kláraður á þremur vik-
um. Barrymore, sem er 41 árs, og
Kopleman giftu sig í júní 2012 eftir
fjögurra mánaða samband. Þau eiga
tvær dætur saman, Olive sem er
þriggja og Frankie, sem er tveggja.
„Drew og Will vildu bæði klára
skilnaðinn með hraði. Þau vildu
ekki hafa þetta sóðalegt enda eru
þau enn góðir vinir,“ sagði heim-
ildarmaður New York Post.
Drew Barrymore kveðst ekki vera
að leita sér að karlmanni í stað Will,
ekki enn sem komið er hið minnsta.
„Ég vil bara eyða tíma með vinkon-
um mínum.“
Ánægð Drew Barrymore er
skilin en ánægð með lífið.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT