Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 Viðskipti Ákvörðun banda­ rísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC að hætta við spurninga­ þátt í tengslum við QuizUp­ appið, virðist hafa komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Búið var að skipuleggja upptökur á þættinum og eins var búið að finna þáttunum stað í dagskrá sjónvarps- stöðvarinnar, en fyrsti þátturinn átti að fara í loftið 5. mars á næsta ári. Eins og greint var frá fyrr í vik- unni hefur Plain Vanilla sagt upp öllu sínu starfsfólki, eða 36 stöðu- gildum, en stofnandi fyrirtækisins, Þorsteinn Baldur Friðriksson, sagði ástæðuna vera ákvörðun NBC um að hætta við framleiðslu þáttanna. QuizUp hefur raunar verið í nokkrum vandræðum frá því í janúar á þessu ári en þá kom Glu Mobile með 7,5 milljón dollara hlutafé inn í fyrirtækið, eða um níu hundruð milljónir króna. Þá var markmiðið að sameinast innan fimmtán mánaða. Þá þegar var greint frá því að fyrirtækið ætti í vandræðum en Glu Mobile gerði í raun yfirtöku- samning við Plain Vanilla um að þeir gætu tekið fyrirtækið yfir á næstu 15 mánuðum og greitt fyrir það fyrirfram samið verð. Þá þegar var búið að segja upp um helmingi starfsfólks fyrirtækisins. Appið komst í sögubækurnar í tækniheiminum fyrir hraðasta vöxt smáforrita í sögu Appstore. Vandinn var þó að tekjur héldust ekki í hendur við vöxtinn, og þó að appið hefði fengið 40 milljónir not- enda á tiltölulega skömmum tíma, komst það ekki inn á topp 200 list- ann yfir þau smáforrit sem þénuðu mest. Því var þá fleygt fram í gríni að um væri að ræða mest-minnstu sigurgöngu sögunnar þegar kæmi að vexti smáforrita. Enn nota nokkur hundruð þúsunda appið, samkvæmt heimildum Fréttatím- ans. | vg Vitað að Plain Vanilla væri í vandræðum frá áramótum Þorsteinn B. Friðriksson hafnaði tilboði upp á 12 milljarða króna árið 2013 í QuizUp. Plain Vanilla hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki í dag. Mynd | Hari Menning Indverska leik­ stýran Deepa Mehta verð­ ur heiðursgestur á RIFF kvikmyndahátíðinni og er væntanleg til landsins. Sýnd verður eldfim heimildar­ mynd hennar um gerendur í hinni hrottalegu hópnauð­ gun í Dehli árið 2012. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Mehta er margverðlaunaður hand- ritshöfundur, leikstjóri og fram- leiðandi og tekur við heiðursverð- launum RIFF fyrir æviframlag sitt til kvikmyndagerðar. Meðal þekkt- ustu verka hennar er þríleikurinn um frumöflin; kvikmyndirnar Eld- ur, Jörð og Vatn sem komu út á ár- unum 1996–2005. Vatn var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í flokki er- lendra kvikmynda. Mehta er fædd á Indlandi en fluttist síðar til Kanada og þar sem hún starfar nú. Flestar kvikmynda hennar tengjast Indlandi á einn eða annan hátt og hafa margir af þekktustu leikurum Indlands farið með hlutverkin. Þrjár kvikmyndir Mehta verða sýndar á RIFF en auk þess verður hún með „masterclass“ í Norræna húsinu fyrir áhugasama. Nýjasta kvikmynd hennar, Anatomy of Violence, kemur beint af kvikmyndahátíðinni í Toronto. Í henni fjallar Mehta um einn al- ræmdasta glæp sem framinn hef- ur verið á Indlandi, hina hrotta- legu hópnauðgun og morð á 23 ára gamalli konu í strætisvagni í Nýju Delhi árið 2012. Málið vakti óhug um allan heim og kallaði á fjölda- mótmæli í öllum helstu borgum Indlands. Myndin blandar saman staðreyndum og skáldskap, en ell- efu leikarar spinna þar aðstæður nauðgaranna sex í samvinnu við Mehta. Einnig verða kvikmyndirn- ar Midnight’s Children, frá árinu 2012 og Beeba Boys, frá árinu 2015, sýndar á hátíðinni, en íslenski tón- listarmaðurinn Biggi Hilmars, sem kenndur var við hljómsveitina Ampop, samdi tónlistina í síðar- nefndu myndinni. RIFF hefst 29. september og stendur til 9. október. Með eldfima mynd um hópnauðgunina í Dehli Kvikmyndin Anatomy of Violence, fjallar um gerendur í hinni hrottalegu hópnauðgun á Indlandi, árið 2012, þar sem sex menn nauðguðu 23 ára konu í strætó. Deepa Mehta hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna en tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár. Mansal Grunur leikur á að hælisleitendur hafi verið í svartri vinnu á Hótel Framnesi í Grundarfirði. Í tvígang hefur lögreglan gert rassíu ásamt verkalýðs­ félaginu á staðnum. Brugðist var við orðrómi í þorp- inu í byrjun sumars um ólöglegt vinnuafl og að einn hælisleitandi svæfi í þvottagámi fyrir utan hót- elið. Sagan endurtók sig síðan í lok júlí. Guðbjörg Jónsdóttir hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga segir að í bæði skiptin hafi frést af komu eftirlitsaðila og þeir gripið í tómt. En þótt engir hafi verið við störf á hótelinu þegar að var komið, reyndist fólkið, sem er frá Pakistan og Rúmeníu, búa í húsi í þorpinu á vegum eiganda hótelsins. Guðbjörg segir að áfram verði haft eftirlit með hótelinu. Það sé erfitt að nálgast þessi mál þar sem starfsfólkið sé oftast hrætt við eft- irlitsaðila og reyni að flýja af hólmi eða koma sér undan því að svara. | þká Lögreglan og verkalýðsfélagið gripu í tómt en fundu nokkra hælisleitendur í íbúð á vegum hótelsins. Mynd | Commons.wikimedia Hælisleitendur í svartri vinnu Fangelsismál „Það var mikil óánægja meðal foreldra ungmenna í skólanum með að fangar, með misjafnan feril að baki, væru að taka þátt í útskriftarathöfnum með nemendum og það var því tekið fyrir það,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSU. Hún segir að þetta breyti því þó ekki að skólinn hafi mikinn metnað í kennslu fanga. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Guðmundur Ingi Þóroddsson, for- maður Afstöðu, félags fanga, fær ekki að taka þátt í útskriftarathöfn Verzlunarskólans ásamt öðrum nemendum í dag, föstudag klukkan tvö, þótt bæði hann og skólastjórn- endur þar vilji það. Fangelsismála- stofnun hefur bannað honum að vera viðstaddur. Hann segir ástæð- una vera þá að Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi, sem hefur mest allt framhaldsnám fanga með höndum, hafi tekið fyrir slíkt eftir kvartanir frá foreldrum. Olga Lísa segir að einungis hafi reynt tvisvar á bannið eftir að hún tók við og í bæði skiptin hafi verið haldnar útskriftarathafnir í fang- elsinu. Hún segir málið í Verzlun- arskólanum og afstöðu skólastjórn- enda í FSU vera ósambærileg mál. Annars vegar sé um að ræða út- skrift eldri nemenda í fjarnámi og hinsvegar útskrift með ungum krökkum í dagskóla. „Það er enginn heimsendir þótt ég fái ekki að útskrifast með öðr- um nemendum, en þetta er leiðin- legt fyrir foreldra mína. Eins veit ég að skólastjórnendur og kennar- ar vildu hafa mig með,“ segir Guð- mundur sem lauk stúdentsprófi á tveimur og hálfu ári. Hann hefur afplánað dóm fyrir fíkniefnasmygl undanfarin ár og stundað fjarnám í Verzlunarskóla Íslands. „Ég er að vekja athygli á þessu máli út af öðrum föngum sem eru í sömu stöðu. Fangelsismálastofn- un á ekki að komast upp með að nota eina manneskju sem grýlu til að halda niðri föngum um allt land. Mér finnst þetta út í hött,“ segir Guðmundur Ingi og segir að þetta virki ekki hvetjandi á fanga sem vilji bæta sig og stunda nám. „Það er enginn heimsendir þótt ég fái ekki að útskrifast með öðrum nemendum,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson. Fangar fá ekki að útskrifast með öðrum nemendum Olga Lísa Garðars- dóttir, skólameistari FSU, þar sem fyrst var tekið fyrir sameiginlega útskrift fanga og annarra nemenda, segir að foreldrar hafi kvart- að vegna fanganna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.