Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
Fíknefni Jafn margir hafa
látist hlutfallslega vegna
ofneyslu morfíntengdra lyfja
á Íslandi og Bandaríkjunum
sé miðað við hverja hundrað
þúsund íbúa. Þá eru Ís-
lendingar með hæsta hlutfall
andláta vegna lyfjaeitrana á
Norðurlöndum. Aldrei höfðu
jafn margir látist af neyslu
lyfja í Noregi 2014, en þá dóu
260 einstaklingar. Tvisvar
sinnum fleiri létust á Íslandi
árið 2015 hlutfallslega.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Meiriháttar fíkniefnafaraldur er í
gangi í Bandaríkjunum en árið 2014
var slegið met í andlátum þegar rétt
yfir 47 þúsund létust vegna ofneyslu
lyfja og var það í fyrsta skiptið sem
fleiri létust vegna ofneyslu fíkniefna
en umferðarslysum. Svipað ástand
er hér á landi, en á síðustu tíu árum
hafa að meðaltali 16 látist í bílslysum
á hverju ári.
Ofneysla fíkniefna hér á landi
síðustu þrjú ár er ítrekað yfir þeim
tölum, en bara á þessu ári hafa 23
látist og er eitt andlát til viðbótar til
skoðunar hjá Landlækni, samkvæmt
verkefnastjóra lyfjamála. Þá varð
töluvert stökk á milli árana 2014,
þegar 26 létust, og svo árið 2015,
þegar 36 létust. Færa má rök fyrir
því að snörp stígandi í andlátum hafi
átt sér stað á Íslandi ári eftir að vart
var við sama stökk í Bandaríkjunum
og á Norðurlöndunum árið 2014.
Nokkru munar á Íslandi og Banda
ríkjunum þegar litið er til heildar
talna yfir andlát, hafa Bandaríkja
menn vinningin, en þegar ofneysla
morfíntengdra lyfja er skoðuð kem
ur í ljós að Ísland og Bandaríkin eru
nánast á pari þegar kemur að dauðs
föllum. Nítján létust á Íslandi vegna
ofneyslu morfíntengdra lyfja árið
2015, en í Bandaríkjunum voru rúm
lega 18 þúsund sem létust af sömu
orsökum árið 2014. Inni í þeim töl
um er heróínneysla. Inni í tölum Ís
lendinganna er metýlfenídat, sem
kalla má hið íslenska heróin. Tölur
frá árinu 2015 í Bandaríkjunum eru
ekki komnar fram.
Landlæknir skrifaði grein í
Læknablaðið í sumar þar sem lýst
var áhyggjum af þessari þróun.
Í greininni segir: „Mest not
uðu lyfin á Íslandi sem innihalda
ópíóíða eru blöndur parasetamóls
og kódeins en árið 2014 fengu ríflega
22.000 einstaklingar ávísað Park
ódín forte. Skammtur á hvern sjúk
ling af ávísunum af Parkódín forte á
fyrstu fjórum mánuðum ársins 2016
jókst um 17,5% samanborið við sama
tímabil árið 2006 og er umhugsun
arefni.“
Það er því ljóst að almenn neysla
á morfínskyldum lyfjum hefur
stóraukist á örskömmum tíma hér
á landi. Ef reiknað er sama hlut
fall þeirra sem misnota lögleg lyf í
Bandaríkjunum og á Íslandi, sem
eru um hálft prósent, kemur í ljós
að hópurinn hér á landi telur að
minnsta kosti á annað þúsund
manns.
Ólafur B. Einarsson, verk
efnastjóri lyfjamála hjá embætti
Landlæknis, segir þetta hlutfall var
lega áætlað miðað við fyrrgreinda
aukningu.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn
ir á Vogi, segist ekki merkja miklar
breytingar í meðferðinni á Sjúkra
húsinu á Vogi, en bætir við að það
séu engu að síður augljós teikn á lofti
og það þarf að hafa varann á.
„Það er margt sem bendir til þess
að eitthvað sé að hreyfast og eitt
hvað sé að koma fram sem við get
um líklega ekki merkt fyrir en eftir
ár eða tvö,“ segir Þórarinn, en eðli
svona faraldra er bæði hægt og lúm
skt, enda misnotkun lyfja og fíkni
efna á margan hátt falið vandamál.
Þá bætir ekki úr skák að ekki er
mögulegt að nálgast talnaefni frá
Maðurinn kom til landsins í lok
ágúst, en ekkert er vitað um fortíð
hans. Hann hefur flakkað um
Evrópu í tíu ár.
Mynd | Rut
Lögreglan kannar
fortíð dularfulls manns
Dómsmál Hæstiréttur
Íslands felldi úr gildi gæslu-
varðhaldsúrskurð yfir karl-
manni sem kom hingað til
lands á fölsuðu vegabréfi 23.
ágúst síðastliðinn. Maðurinn
reyndist vera með íslenskt
vegabréf sem hann sagðist
hafa keypt fyrir þúsund evr-
ur, eða 130 þúsund krónur.
Athygli vekur að engin leið er
að sannreyna hver maðurinn
er, en hann segist hafa verið
á flakki í Evrópu í tíu ár án dvalar
leyfis í Evrópu eftir að hafa flúið
heimahagana, en ekki er tilgreint
hvaðan maðurinn er í úrskurði
hæstaréttar.
Þá segir einnig í dómi að yf
irvöld í þeim löndum sem hann
hefur verið í Evrópu hafi aldrei
haft afskipti af manninum.
Maðurinn segist hafa komið
hingað til lands til þess að vinna.
Lögreglan hefur tekið fingraför
af manninum og beðið er upp
lýsinga frá öðrum löndum til þess
að staðreyna hvort maðurinn sé sá
sem hann segist vera.
Ekkert er því vitað um forsögu
mannsins og með öllu óljóst hver
hann er.
Hæstiréttur felldi úr gildi gæslu
varðhaldsúrskurð yfir manninum
en úrskurðaði hann í farbann. | vg
Lyfjadauði álíka hér
og í Bandaríkjunum
Hlutfallslega dóu jafnmargir úr yfirskammti morfíntengdra lyfja í Bandaríkjunum og á Íslandi.Mynd | Shutterstock
2014
Bandaríkin
Lyfjadauði alls 14,5
Þar af morfíntengd efni
5,8
af hverjum 100.000
íbúum
2015
Ísland
Lyfjadauði alls 10,9
Þar af morfíntengd efni
5,8
af hverjum 100.000
íbúum
LYFJADAUÐI EFTIR LÖNDUM
Ísland nær
Bandaríkjunum
en Norðurlöndunum
Bandaríkin 2014 14,5
Ísland 2015 10,9
Noregur 2014 5,0
Danmörk 2014 4,6
Af hverjum 100 þúsund íbúum
Landlæknaembættinu né Rann
sóknarstofunni í lyfja og eiturefna
fræði, um andlát vegna lyfjaeitrana
aftur í tímann. Því er ómögulegt
að greina þróun þessara mála með
óyggjandi hætti síðustu ár. Sem
gefur hugsanlega nokkra mynd af
ákveðnu andvaraleysi þegar kemur
að málaflokknum.www.husgagnahollin.is
558 1100
Ævintýralegt
haust í Höllinni
Þú finnur nýja bæklinginn
á www.husgagnahollin.is
Ævintýralegt
haust í Höllinni
Reykjavík • Akureyr
i • Ísafjörður
www.husgagnaholl
in.is
MIRAGE
Þriggja sæta, bogadreginn sófi.
Slit sterkt áklæði. Stærð: 241 x 110 x 90 cm
149.990 kr.
189.990 kr.
KAMMA
Hægindastóll.
Dökkgrátt áklæði.
Stærð: 83 x 85 x 105 cm
69.990 kr. 89.990 kr.
Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi,
segir augljós teikn á
lofti og það þurfi að
hafa varann á.