Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 7
| 7FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
Kynferðisbrot Ekki hafa
jafn margar kærur borist til
lögreglu á einu ári og árið
2015. Kærum fjölgaði um 55
og voru alls 125.
Ekki hafa jafn margar nauðganir
borist inn á borð lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu síðastliðin
tíu ár og árið 2015, en þá voru 125
nauðganir til rannsóknar. Lög-
reglan birti á fimmtudaginn árs-
skýrslu lögreglustjórans á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem þetta
kemur fram.
Næst versta árið í þessum mála-
flokki var árið 2013 en þá voru 115
nauðganir kærðar til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, en það var
sama ár og upp komst um barna-
níðinginn Karl Vigni Þorsteinsson
sem var dæmdur í sjö ára fangelsi
fyrir allnokkur kynferðisbrot sem
beindust meðal annars að fötluð-
um einstaklingum.
Þegar ársskýrslur lögreglustjóra
á höfuðborgarsvæðinu eru skoðað-
ar kemur í ljós að aldrei nokkurn-
tímann hefur slíkur málafjöldi
kynferðisbrota borist inn á borð
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu síðan lögreglustjórinn fór að
skila sérstökum ársskýrslum árið
2007.
Sé litið til ársins 2014 kemur í ljós
að kærðum nauðgunum til emb-
ættisins fjölgaði úr 70 upp í 125, og
því voru 55 fleiri nauðganir kærðar
árið 2015.
Ekki er ljóst hverju sætir en sam-
kvæmt upplýsingum frá Neyðar-
móttöku vegna nauðgana, þá hafa
tölurnar staðið nokkuð í stað síð-
ustu ár, og rokkað á bilinu 120 til
140 ár ári sem leita til neyðarmót-
tökunnar á hverju ári.
Aftur á móti leituðu 677 einstak-
lingar til Stígamóta á síðasta ári. Af
þeim voru 302 einstaklingar sem
leituðu aðstoðar vegna eigin mála
í fyrsta skipti.
Þá stefnir í að kærum fækki ekki
mikið í ár, en bara í júlí síðastliðn-
um bárust yfir 40 kærur vegna
kynferðisbrota inn á borð lög-
reglunnar. | vg
Metfjöldi kæra vegna nauðgana
Kærurnar
skila sér
ekki með
sakfellingu
„Þarna geta verið ýmsar ástæð-
ur,“ segir Guðrún Jónsdóttir, fram-
kvæmdastýra Stígamóta, spurð
hvort Stígamót hafi svör þegar kem-
ur að þessari miklu fjölgun sem hef-
ur orðið í kærðum nauðgunum til
lögreglunnar.
Þar vegur líklega þyngst að um-
ræðan er orðin opnari og meðvit-
und meiri og fólk situr síður undir
því ofbeldi sem beinist gegn því.
„Sýnileiki kynferðisbrota er að
verða meiri og kannski eru konur
farnar að kæra frekar erfiðu brot-
in,“ segir Guðrún og tekur sem
dæmi nauðganir þar sem konur
eru til að mynda drukknar þegar
verknaðurinn á sér stað, en tölu-
verð viðhorfsbreyting hefur orðið í
samfélaginu sem hefur skilað þeim
árangri að konur kæra frekar of-
beldi.
Málaflokkurinn er þó langt því
frá í góðum málum, að sögn Guð-
rúnar, en hún bendir á að þó að
kærum vegna kynferðisbrota fjölgi
víðast hvar, þá skila málin sér ekki
í sama mæli með sakfellingu fyrir
dómstólum. Slíkt eigi bæði við hér
á landi sem og annarstaðar. Því má
ætla að aðeins lítill hluti af þeim 125
nauðgunum sem voru kærðar endi
með sakfellingu.
Guðrún segir tölur Stígamóta og
lögreglunnar ólíkar, þannig leiti
annarskonar hópur til Stígamóta
en sá hópur hefur sjaldnast leitað
til lögreglu vegna afbrotanna. Stíga-
mót töldu 155 nauðganir í töluefni
sínu fyrir árið 2015 en Guðrún árétt-
ar að aðeins 8% þeirra mála endi í
opinberum tölum lögreglunnar. | vg
Alls bárust 125 nauðgunarkærur inn á
borð lögreglu á síðasta ári. Þá voru yfir
40 kynferðisbrot kærð í júlí síðast-
liðnum.
Guðrún Jónsdóttir segir aukn-
ingu á kærum hugsanlega vegna
umræðunnar undanfarið, en bendir
jafnframt á að kærurnar leiði sjaldnast
til sakfellingar.
BYRJAÐU
STRAX Í DAG
Holtagarðar · Tjarnarvellir · Urðarhvarf
NÝ NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Passaðu vel upp á líkamann í vetur og komdu
þér í frábært form. Hlökkum til að sjá þig!
6.540 KR.
ENGIN BINDING
Á MÁNUÐI
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|
s
ía