Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 16

Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 Drottningu grænlenskra stjórnmála kastað á dyr Það gerist ekki oft að stjórn- málafólk sé hreinlega rekið úr stjórnmálaflokkum í kjölfar hneykslismála. Fólk þarf vissulega stundum að segja af sér embætti í kjölfar embættisafglapa og stundum rýkur það á dyr vegna ósættis en í tilfelli hinnar grænlensku Alequ Hammond, fyrrum for- manns jafnaðarmanna í Siumut-flokknum og for- sætisráðherra í grænlensku landsstjórninni, var henni hreinlega varpað á dyr. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Aleqa Hammond, sem hafði í upp- hafi ferlis síns verið kölluð drottn- ing grænlenskra stjórnmála, þurfti að segja af sér embætti forsætisráð- herra og hætti sem formaður Si- umut, grænlenska jafnaðarmanna- f lokksins, árið 2014 þegar upp komst að hún hafði notað 1,9 millj- ónir af opinberu fé, til að greiða fyrir ferðalög sín og fjölskyldunn- ar. Málið olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma, hún þurfti að endur- greiða féð auk embættismissisins en var aldrei dæmd fyrir fjárdrátt. „Mistök ráðherra á Grænlandi leiða til brottreksturs eða þeir hætta sjálfir og ráðherrar hafa verið kærðir og dæmdir vegna óvandaðrar notkunar á risnu,“ segir Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, sem er búsett í Græn- landi og þekkir vel til í Siumut- -flokknum. Hún bendir á að það séu ekki bara mistökin sem séu algengari en á Íslandi heldur þyki það sjálfsagt mál að stjórnmála- menn taki afleiðingunum, öfugt við það sem gengur og gerist hér. „Kristjana bendir á að fleiri stjórn- málamenn hafi verið bendlaðir við misferli vegna greiðslna fyr- ir ferðalög þegar málið kom upp. „Þau stálu engu en þau brutu lög- in. Kuupik Kleist sem er einn besti núverandi stjórnmálamaður Græn- lands, tók afleiðingunum strax og sagði af sér sem formaður Inúíta- f lokksins. Hann er einfaldlega hættur. Aleqa Hammond reyndi hinsvegar að hanga á klónum í embætti og það leiddi af sér fjöl- menn mótmæli við þingsetninguna haustið 2014 sem er einsdæmi á Grænlandi. Þingsetningin er mik- il hátíðastund sem allir taka þátt í sem geta. Í þetta sinn fjölmennti fólk á hávær mótmæli sem leysti nærri því upp athöfnina. Það varð til þess að hún hrökklaðist frá völd- um, nauðug, viljug.” Varð strax ráðherra Aleqa Hammond varð formaður Si- umut-flokksins árið 2009, skömmu eftir að flokkurinn tapaði kosning- um og lenti í stjórnarandstöðu. Flokkurinn hafði þá verið við völd í landinu í þrjátíu ár eða frá því Grænlendingar fengu heimastjórn. Aleqa er rúmlega fimmtug, fædd árið 1965 í bænum Narsag en hún ólst upp í Uummannaq í norð- ur Grænlandi. Faðir hennar var veiðimaður sem fórst af slysförum í veiðiferð þegar hún var sjö ára en móðir hennar býr enn í heima- bænum. Hún lagðist í ferðalög eftir grunnskólann og vann tilfallandi vinnu í ýmsum löndum. Hún sneri heim til Grænlands árið 1987 og lauk stúdentsprófi í einskonar há- skólabrú. Hún stundaði um tíma háskólanám, bæði í Kanada og Grænlandi en lauk ekki prófi. Áður en hún sneri sér að stjórnmálum, starfaði hún aðallega að ferðaþjón- ustu. „Hún var nýkomin á þing fyrir f lokkinn þegar Jonathan Motzfeldt, sem þá var forsætisráð- herra og formaður Siumut, gerði hana að ráðherra í landsstjórn- inni,“ segir Inga Dóra Markussen, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, þegar hún rifjar upp æv- intýralegan frama Alequ. Hún varð ráðherra fjölskyldu- og dómsmála en tók síðar við ráðuneyti fjármála og utanríkismála. Þá þegar voru ýmis teikn á lofti sem naumlega tókst að þagga nið- ur. Hljóp af sér leigubílaskuld Árið 2008, þegar hún var fjár- málaráðherra í grænlensku lands- stjórninni, var hún til að mynda kærð til lögreglu fyrir að hlaupa burt frá leigubíl til að komast hjá því að greiða fyrir farið, þegar hún var á heimleið, all nokkuð við skál. Stjórnmálakonan kvaðst harma atvikið þegar upp komst og slapp með skrekkinn í það sinn. Árið 2009 varð Aleqa Hammond formaður Simut-jafnaðarmanna- flokksins og fjórum árum síðar vann hún stórsigur í kosningun- um 2013 og varð fyrst grænlenskra kvenna til að taka við forsætisráðu- neytinu í grænlensku landsstjórn- inni. „Aleqa er mjög klár stjórnmála- kona, ræðuskörungur og með mikla persónutöfra enda nýtur hún mikillar alþýðuhylli,“ segir Inga Dóra. „Hún heillaði fólk upp úr skónum en fyrir þá sem þekktu til bak við tjöldin, var alveg ljóst að hún átti erfitt uppdráttar inn- an flokksins. Hún hlaut mjög skjót- an frama innan flokksins en þegar hún varð formaður hans kom fljót- lega í ljós að hana skorti tengsl við baklandið. Inga Dóra bendir á að Siumut sé mikill karlaflokkur með sterk tengsl við veiðimannasamfé- lagið og sjómennskuna og þar hafi Aleqa ekki átt sterkar rætur. Talaði tungum tveim Grænlenska þjóðin stóð frammi fyrir miklum áskorunum vegna fjölda erlendra stórfyrirtækja sem hugðu á vinnslu náttúruauðlinda í landinu, svo sem málma, olíu og gulls. Þetta gaf hugsjónum um frjálst og óháð Grænland, byr und- ir báða vængi og Aleqa naut mik- illa vinsælda sem stjórnmálamað- ur fyrir vikið, enda boðaði hún að Grænland gæti orðið sjálfstætt ríki innan 20 ára með því að nýta auð- lindir sínar. Efnahagsástandið í landinu var bágborið, um tíu prósenta atvinnuleysi og neikvæður hag- vöxtur. Áhersla Alequ á sjálfstæði Grænlendinga færði henni marga aðdáendur en gerði það líka að verkum að hún var gagnrýnd fyr- ir óbilgirni og hroka og ekki síst óraunsæi. „Fólki gramdist hvern- ig hún talaði tungum tveim,“ segir Inga Dóra. „Hún talaði í útlöndum eins og sjálfstæðisbaráttan væri Inga Dóra Markussen segir of snemmt að afskrifa Alequ Hammond í grænlensk- um stjórnmálum. Hún spáir því að hún láti lítið fyrir sér fara um tíma en dúkki síðan upp í landsmálunum, jafnvel fyrir nýjan flokk. Í þessum bæ, Uumannaq, ólst grænlenska stjórnmála- konan Aleqa Hammond upp. Hún virðist hafa í vopna- búri sínu ýmsar aðferðir popúlista sem hafi fært henni sérstöðu í græn- lenskum stjórnmálum, ekki síst hæfileikann til að taka umræðuna yfir og fólk með stormi, og nota samfélags- miðla ótæpilega.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.