Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
mun stærra mál í umræðunni á
Grænlandi en hún er. Þá rak hún
fleyg á milli dönskumælandi fólks
í landinu og Grænlendinga með
því að neita að tala dönsku opin-
berlega. Þetta aflaði henni fjölda
stuðningsmanna en það af laði
henni líka óvina.“
Sveik út hótelgistingu
Árið 2013 rifjaði danska blaðið
Berlingske upp að hún hefði hlot-
ið dóm 1996 fyrir að hafa svikið út
jafnvirði níutíu þúsund króna ís-
lenskra á hóteli, með því að nota
ítrekað lokað greiðslukort gegn
betri vitund. Hún slapp með sekt-
argreiðslu ásamt því að þurfa að
greiða upphæðina til baka til hót-
elsins. Bent var á það í kjölfarið að
hún hefði ekki skýrt flokknum frá
þessu dómsmáli þegar hún bauð
sig fram til trúnaðarstarfa. Ýmsar
aðrar sögur um neyðarlegar uppá-
komur forsætisráðherrans gengu
ljósum logum innan Siumut flokks-
ins þótt þær kæmust ekki í hámæli
annars staðar.
En svo féll sprengjan sem leiddi
til afsagnar hennar, þegar hún var
sökuð um að hafa dregið sér tæpar
tvær milljónir sem flokksformaður
og forsætisráðherra. „Þetta sner-
ist í raun og veru um ferðir hennar
í embættiserindum þar sem fjöl-
skylda hennar var með. Í þeim til-
fellum hafði skrifstofa grænlensku
landsstjórnarinnar keypt flugmiða
og hótel fyrir hana og aðra fjöl-
skyldumeðlimi, en rukkað hana
um það sem sneri að fjölskyldunni.
Hún hafði hinsvegar samið um að
greiða það á afborgunum og var
því komin í skuld við landsstjórn-
ina vegna einkaskulda sinna,“ seg-
ir Inga Dóra. Hún segir hinsvegar
að ekkert hafi komið fram sem
bendi til þess að hún hafi ekki ætl-
að að greiða peningana til baka.
Glæsileg kosning á danska þingið
Aleqa Hammond var þó síður en
svo hætt afskiptum af stjórnmálum
þótt hún hafi fallið af stalli í lands-
stjórninni. Hún bauð sig fram sem
þingmaður Grænlands á danska
2016
Rekin úr Simut-flokknum, eftir að hún neitar að
segja af sér þingmennsku í kjölfar fjármálahneykslis
með greiðslukort frá danska þinginu. Hún missir
jafnframt sæti sitt í öllum þingnefndum.
Stjórnmála-
ferill Alequ
Hammond
2005
Þingmaður fyrir
Siumut, grænlenska
jafnaðarmannaflokkinn.
2005
Ráðherra fjölskyldu-
og dómsmála.
2007
Ráðherra efnahags-
og utanríkismála.
2009
Tekur við forystu í
Simut-flokknum.
2009
Verður forsætisráðherra
Grænlands, fyrst kvenna.
2014
Hættir sem forsætisráð-
herra í kjölfar ávirðinga
um fjármálamisferli.
2014
Hættir sem formaður
Siumut-flokksins.
2015
Kjörin sem þingmaður
Grænlands á danska
þjóðþingið. Fær
metfjölda atkvæða í
almennum kosningum.
2016
Óháður þing-
maður Græn-
lands á danska
þjóðþinginu.
þjóðþinginu árið 2015 og fékk
glæsilega kosningu, í raun fleiri at-
kvæði í embættið í persónukjöri
en dæmi voru áður um. Það heyrð-
ust þó einhverjar óánægjuraddir,
aðallega í Danmörku. Þar þótti
skrítið að Grænlendingar sendu
stjórnmálamann á danska þing-
ið sem hefði ekki verið treystandi
fyrir að fara fyrir danska jafnað-
armannaflokknum og heldur ekki
fyrir grænlensku landsstjórninni.
Margir Danir hugsuðu henni líka
þegjandi þörfina fyrir ýmis stór-
yrði sem hún hafði látið falla um
í viðleitni sinni til að gera sjálf-
stæðshugsjónina að kosningamáli
í Grænlandi.
En því miður þá leið ekki lang-
ur tími þar til gagnrýnendur henn-
ar fengu kærkomið tækifæri til að
segjast hafa varað við henni. Al-
eqa Hammond varð uppvís að því
að misnota greiðslukort sitt sem
hún hafði til afnota sem fulltrúi
Grænlands á danska þjóðþinginu.
Alls hafði hún notað um tvö hund-
ruð og þrjátíu þúsund krónur í
einkaneyslu.
Kortið mega þingmennirnir
einungis nota til að kaupa flugmiða
eða greiða fyrir leigubíla þegar
þeir eru í embættiserindum. Aleqa
gaf sjálf þá skýringu að hún hefði
gripið til kortsins í neyð, þegar
hennar eigið var lokað. Sú skýring
féll þó um sjálfa sig þegar sýnt var
fram á að hún hefði notað kortið í
byggingavöruverslun og matvöru-
verslun í Nuuk.
Hvað nú Aleqa?
Aleqa var stödd erlendis þegar hún
glataði að sögn greiðslukortinu
sínu. Hún var ekki á leið til Græn-
lands heldur á fund fólksins í Borg-
undarhólmi og kom þetta sér því
afar illa. Í framhaldinu bað hún
skrifstofu þingsins um að mega
nota kortið frá þjóðþinginu og
bakfæra reikninginn, þegar henn-
ar eigið kort væri komið í gagnið.
Það leyfi var gefið. Þingkonan hélt
hinsvegar áfram að nota kortið í
þrjár vikur eftir að til Grænlands
var komið. Allt þar til skrifstofa
danska þingsins greip í taumana.
„Vinkona mín hringdi í mig og
sagði, ertu búin að heyra þetta um
Alequ? og ég bara dæsti og spurði,
hvað nú?,“ segir Inga Dóra.
Stjórn þingsins hefur greint
frá því að upphæðin verði dregin
frá launum þingkonunnar. Stjórn
Simut flokksins krafðist þess að
hún segði af sér embætti og hótaði
að draga til baka stuðning flokks-
ins við hana ef hún gerði það ekki.
„Það voru margir á móti því að hún
fengi annað tækifæri í stjórnmál-
um, þegar þetta spurðist út varð
allt brjálað.“
Stjórnmál og uppskriftir
Aleqa Hammond virðist hafa í
vopnabúri sínu ýmsar aðferðir
popúlista sem hafi fært henni sér-
stöðu í grænlenskum stjórnmálum,
ekki síst hæfileikann til að taka
umræðuna yfir og fólk með stormi,
og nota samfélagsmiðla ótæpilega.
Milli þess sem hún kastar inn í um-
ræðunu pólitískum yfirlýsingum
deilir hún út kökuuppskriftum eða
barnamyndum.
„Hún hafði ennþá gríðarlega al-
þýðuhylli og mikið persónufylgi,“
segir Inga Dóra. „Þess vegna varð
fólk líka svona reitt þegar hún
gerði þetta enn eina ferðina. Hún
er svona stjórnmálamaður sem er
með slóðina af aðdáendum á eftir
sér á Facebook. “
Aleqa Hammond segist sjálf hafa
valið að ganga úr flokknum, eftir
að henni var stillt upp við vegg.
Hún átti að segja sig frá stöðu sinni
á danska þinginu og kalla til vara-
mann, eða missa stuðning flokks-
ins. Hún segist vera kosin með
fjölda atkvæða til að berjast fyrir
hugsjónum sem hún trúi á og velji
því að halda áfram, utan flokka, og
segja skilið við Siumut.
„It’s complicated“
Aleqa segir að gerðir hennar hafi
vissulega haft afleiðingar og hún
skilji mætavel þá stöðu sem hún
hafi komið flokknum í. Núna sé
hinsvegar búið að taka á mál-
inu og líti þannig á að því sé lok-
ið. Hún segist vera leið yfir því að
hafa valdið fjölda fólks vandræð-
um, hún hefði getað breytt öðru-
vísi en hún gerði. Hún taki á því
fulla ábyrgð en nú haldi starfið
áfram í þinginu.
Inga Dóra segir að þess vegna sé
allt of snemmt að afskrifa Alequ
Hammond í grænlenskum stjórn-
málum. Hún spáir því að hún láti
lítið fyrir sér fara um tíma en dúkki
síðan upp í landsmálunum, jafn-
vel fyrir nýjan flokk. „Ef stjórn-
málaþátttaka hennar hefði ver-
ið ástarsamband, þá myndi hún
ekki senda út Facebook-statusinn:
„Politics and Aleqa Hammond are
no longer in a relationship,“ held-
ur: „It’s complicated.“
„Ef stjórnmálaþátttaka
hennar hefði verið ástar
samband, þá myndi hún
ekki senda út Facebook
statusinn: „Politics and
Aleqa Hammond are no
longer in a relationship,“
heldur: „It’s complicated.“
Aleqa Hammond í grænlenskum þjóðbúningi ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra, Helga Ágústssyni
sendiherra og Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, í Nuuk.
Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt er búsett í Grænlandi og þekkir vel til í Si
umutflokknum. Hún bendir á að það séu ekki bara mistök stjórnmálamanna sem
séu algengari í Grænlandi en á Íslandi heldur þyki sjálfsagt mál að stjórnmálamenn
taki afleiðingunum. Hér er hún með fyrrverandi eiginmanni sínum Jonathan Motz
feldt, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Simut, sem nú er látinn. SEPT
Kringlukráin
Kringlunni 4-12
103 Reykjavík
Sími 568 0878
kringlukrain@kringlukrain.is
www.kringlukrain.is