Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.09.2016, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 02.09.2016, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 Maryam Raísi og Zahra Mes- bah hafa verið bestu vinkon- ur frá því þær fóru saman í Kringluna fyrir rúmu ári. Þær eru báðar afganskir flóttamenn, Zahra hefur fengið hér hæli en Maryam ekki. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Við Zahra hittumst fyrst þegar við mamma vorum nýkomnar til lands- ins. Þá vantaði okkur símakort og vissum ekkert hvert við ættum að snúa okkur. Zahra hjálpaði okkur og við höfum verið vinkonur síð- an,“ segir Maryam Raísi. Líkt og áður hefur komið fram í fréttum var Maryam og móður hennar, Torpikey Farrash, synjað um hæli hér á landi fyrir sjö mánuðum. Synjunin var kærð til kærunefndar útlendingamála og bíða þær niður- stöðu. Fái þær aftur synjun verða þær sendar til Afganistan. Hafa ekki átt vinkonur í mörg ár „Ég frétti að hingað væri komin fullorðin afgönsk kona með dóttur á mínum aldri og ég vildi auðvit- að strax hitta þær og hjálpa þeim. Við hittumst á Hlemmi og ég að- stoðaði þær við að kaupa síma- kortið en svo ákváðum við að fara líka í Kringluna. Þegar við vorum búnar í Kringlunni fórum við heim til mín þar sem þær hittu mömmu og systur mína og við höfum allar verið vinkonur síðan,“ segir Zahra  Mesbah. „Mamma var líka mjög spennt að hitta móður Zöhru því hún hefur ekki verið í miklum samskiptum við aðrar konur síðastliðin ár. Þegar við bjuggum í Svíþjóð þá vorum við á mjög einangruðum stað þar sem voru aðallega afganskir karlmenn svo við eignuðumst engar vinkon- ur þar,“ segir Maryam en áður en þær mæðgur sóttu um hæli á Ís- landi biðu þær eftir hæli í Svíþjóð í þrjú ár. „Þetta var svo góður dagur fyrir okkur því allt í einu vorum við að gera venjulega hluti með öðrum konum, eitthvað sem við höfðum ekki gert í mörg ár.“ Útskúfun fyrir að kasta slæðunni Dagurinn sem þær Zahra og Maryam lýsa var í ágúst á síðasta ári, mánuði eftir að Maryam og Torpikey komu hingað til lands frá Svíþjóð og þremur árum eftir að Zahra, systir hennar og móðir, fengu hér hæli. Zahra og Maryam hafa því aðeins þekkst í rúmt ár en kalla samt hver aðra systur í dag. Á meðan við tölum saman sitja þær hlið við hlið í sófanum, hald- ast í hendur og botna setningar hvor annarrar. Þær tala saman í síma tvisvar á dag og hittast með mæðrum sínum að minnsta kosti vikulega og borða saman. Vinátta þeirra var þó erfiðleikum bundin í upphafi þar sem Maryam og Torpi- key hafa kastað slæðunni og tekið kristna trú. „Afganskar konur eru alltaf und- ir valdi karlmanns, hvort sem það er eiginmaður eða fjarskyldur fjöl- skyldumeðlimur. Við erum hér á eigin vegum en afganskir karlmenn hér á landi hafa bannað öðrum kon- um að vera í samskiptum við Mar- yam og Torpikey því þær eru ekki með slæður. En við höfum alltaf stutt þær og þeirra ákvörðun. Þær eru frjálsar konur og mega gera það sem þær vilja. En ímyndaðu þér hvernig karlmenn í Afganistan eru fyrst afganskir karlmenn á Ís- landi haga sér svona. Þær eiga enga von þar.“ Að geta deilt gleði og sorg „Frá því að við fréttum að það ætti líklega að senda Maryam og Torpkey aftur til Afganistan hefur okkur liðið mjög illa. Ekki bara okkur heldur líka mæðrum okkar sem hafa þurft að þola allt of mikið. Þeim hefur liðið betur eftir að þær fundu hvor aðra því allir þurfa ein- hvern til að deila með, hvort sem það er gleði eða sorg. Við erum fjöl- skylda í dag og ég má ekki til þess hugsa að þær verði einar á götunni í Afganistan. Það er verst fyrir þær en auðvitað erum við líka hryggar yfir því að missa fjölskyldu okkar aftur,“ segir Zahra en hún missti bróður sinn og föður þegar hún var ung. „Ég vil helst ekki hugsa um fram- tíð mína og mömmu í Afganistan, það er of erfitt. Afganistan er ekki góður staður fyrir konur, sérstak- lega ekki konur sem eru á eigin vegum,“ segir Maryam. Munuð þið reyna að halda sambandi ef þið verðið aðskildar? „Auðvitað, við erum fjölskylda og það breytist aldrei,“ segir Zahra „Við verðum alltaf vinkonur, sama hvað gerist,“ segir Maryam. Verðum alltaf vinkonur, sama hvað gerist á Tenerife með GamanFerðum! KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS AMSTERDAM f rá 7.999 kr.* EDINBORG f rá 7.999 kr.* LONDON f rá 6.999 kr.* FRANKFURT f rá 9.999 kr.* *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. DUBLIN f rá 7.999 kr.* FARÐU Á FLAKK! sept . - des . sept . - mars sept . - mars sept . - mars sept . - mars „Þetta var svo góður dagur fyrir okkur því allt í einu vorum við að gera venjulega hluti með öðrum konum, eitthvað sem við höfðum ekki gert í mörg ár.“ Maryam Raísi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.