Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
„Daginn sem gengið var til kosninga,
þá um morguninn, vorum við tíu
prósentustigum undir í könnunum.
Þeir höfðu allir á röngu að standa
... Við náðum til fólksins sem hafði
verið skilið útundan af hinu alþjóð-
lega stórfyrirtækjaveldi. Við náðum
til fólks sem hafði aldrei kosið áður,
en trúði því að það gæti endurheimt
yfirráð yfir eigin landi og landamær-
um og endurheimt sjálfsvirðingu
sína og stolt með því að kjósa með
Brexit.“
Skilaboðin til stuðningsmanna
Trump voru skýr: Það væri ekkert
að marka kannanir sem sýndu að
Hillary hefði tveggja tölustafa for-
skot né stjórnmálaskýrendur sem
fullyrtu að Trump gæti ekki unnið.
Kjósendur Trump ættu að læra það
af stuðningsmönnum Brexit að
aldrei ætti að láta úrtöluraddir draga
úr sér kjark eða leyfa andstæðing-
um sínum að útmála sig sem ras-
ista eða fordómafullt fólk sem hefði
orðið undir í lífinu: „Ekki gleyma því
að það er allt hægt ef nógu mikið af
góðu fólki er tilbúið til að standa
uppi í hárinu á elítunum.“
Baráttan fyrir Brexit og kosninga-
barátta Trump áttu ekki aðeins það
sameiginlegt að lykillinn að sigri
væri hinn sami, heldur rifjaði Farage
líka upp að stuðningsmenn Brexit
og Trump ættu sameiginlegan óvin
í Obama, sem hefði komið til Bret-
lands í aðdraganda þjóðaratkvæða-
greiðslunnar til þess að hvetja
Breta til að yfirgefa ekki Evrópu-
sambandið og „tala niður til okkar.
Hann kom fram við okkur eins og
við værum einskis virði.“ Nokkuð
sem fundargestir þóttust kannast
við í fari Obama.
Farage lýsti að vísu ekki formlega
yfir stuðningi við Trump, enda ný-
búinn að fordæma Obama fyrir að
hafa skoðanir á kosningum í Bret-
landi: „En ég get sagt ykkur eftir-
farandi: Ef ég væri bandarískur rík-
isborgari gæti ég ekki kosið Hillary
Clinton þó að mér væri borgað fyrir
það.“
Hvað er þetta „Brexit“?
Ræða Farage vakti umtalsverða
athygli í Bandaríkjunum, bæði
vegna þess að það er næsta fáheyrt
að erlendir stjórnmálaleiðtogar
stígi á svið með forsetaframbjóð-
endum á kosningafundum og líka
vegna þess að Nigel Farage var
nánast algerlega óþekktur meðal
fundargesta. Óvísindaleg könnun
The Guardian sýndi að átta af hverj-
um tíu fundargestum vissu hvorki
hver Farage var né við hvað var átt
þegar talað var um „Brexit“.
Viðbrögðin við ræðu Farage voru
í samræmi við þetta. Þó fundargest-
ir hefðu klappað og hrópað fagnað-
aróp þegar Farage mærði Trump
eða gagnrýndi Obama vissu þeir
ekki hvernig þeir áttu að bregðast
við þegar hann talaði um Evrópu-
sambandið, Brexit og Brussel. Sam-
kvæmt The New York Times voru
kjósendur Repúblikanaflokksins
í Mississippi því ekki með það á
hreinu hvenær þeir áttu að baula
eða klappa.
Fulltrúar nýrrar hægrihreyfingar
Farage er vitaskuld ekki sá fyrsti
sem bendir á líkindin á milli kosn-
ingabaráttu Trump og Brexit.
Svipuð öfl virðast að verki beggja
vegna Atlantshafsins: Hræðsla við
útlendinga og innflytjendur og reiði
knúin áfram af efnahagslegri og fé-
lagslegri óvissu. Kjósendahóparnir
virðast líka svipaðir, eldra og minna
menntað hvítt fólk, sérstaklega
karlmenn úr verkalýðsstétt og lægri
borgarastétt. Niðurstaða þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar í Bretlandi
hefur líklega líka sannfært marga
Evrópubúa um að það sé varhuga-
vert að vanmeta popúlískar fjölda-
hreyfingar, þar með talið Trump,
sem samkvæmt Brexitkosningun-
um gæti allt eins átt eftir að sigra í
nóvember.
Það er að vísu fátt sem bendir
til að svo fari. Fyrir utan nokkr-
ar kannanir í kjölfar landsfundar
Repúblikanaflokksins í lok júlí hef-
ur Hillary Clinton verið með öruggt
forskot alla kosningabaráttuna, og
þó sérstaklega í lykilfylkjum sem
Trump yrði að vinna til að geta sigr-
að.
Það er engu að síður full ástæða
til að staldra við, því kosningafund-
urinn í Jackson Mississippi, þar sem
Trump og Farage stóðu hlið við
hlið og fordæmdu elítur í Brussel
og Washington, beinir sjónum okk-
ar að merkilegri þróun sem á sér
nú stað á hægrivæng stjórnmál-
Trump sem
andlit nýrrar
alþjóðlegrar
öfgahreyfingar
anna beggja vegna Atlantshafsins:
Risi nýrrar róttækrar popúlískrar
hægrihreyfingar, svokallaðs „jaðar-
hægris“, sem einkennist öðru frem-
ur af íslamófóbíu og nýrasisma.
Jaðarhægrið, The Alt-Right
Daginn eftir kosningafund Farage
og Trump í Jackson, Mississippi,
hélt Hillary Clinton ræðu í Reno,
Nevada, sem fjallaði um bandaríska
birtingarmynd þessarar hreyfingar,
„the Alt-Right“, tengsl Trump við
hana og þá ógn sem af hreyfingunni
stafar.
Hugtakið Alterative Right var
fyrst sett fram árið 2008 af heim-
spekingnum og dálkahöfundinum
Paul Gottfried, einum af áhrifa-
meiri hugmyndafræðingum banda-
rískra íhaldsmanna. Gottfried hélt
því fram að ósigur Repúblikana í
kosningunum 2008 kallaði á endur-
nýjun og endurskipulagningu í röð-
um hægrimanna. Þörf væri á nýju
hægri sem væri valkostur við þá
stefnu sem ríkt hafði á valdaárum
Bush, og gæti jafnframt sigrast á
fulltrúum ný-íhaldsstefnunnar sem
lagt höfðu undir sig Repúblikana-
flokkinn. Um leið yrði lífi blásið
lífi í flokkinn og alla bandarísku
hægrihreyfinguna.
Hugtakið var skömmu seinna
tekið upp af Richard Spencer,
áköfum talsmanni „hvítrar þjóð-
ernishyggju“ og forstöðumanni
þjóðernissinnaðrar hugveitu, The
National Policy Institute. Spencer
var, að því er virðist, fyrstur til að
tala um „Alt-Right“ og kalla eftir
breiðfylkingu allra á jaðri hægrisins
sem væru ósáttir við þróun banda-
rísks samfélags. Valdatíð Barack
Obama skapaði kjöraðstæður fyrir
vöxt þessarar hreyfingar, en hún
dafnaði mjög á samfélagsmiðlum
og í spjallþráðum á síðum eins og
Breitbart News.
Teboðshreyfingin og öfgahægri
Líkt og teboðshreyfingin er jaðar-
hægrið frekar óskýr og illskil-
greinanleg hreyfing. Ólíkt teboðs-
hreyfingunni hefur hins vegar lítið
verið skrifað um jaðarhægrið og
við höfum í raun engar áreiðan-
legar rannsóknir á samsetningu
eða hugmyndafræði hreyfingar-
innar. Svo virðist hins vegar að á
meðan teboðshreyfingin spratt úr
grasrót Repúblikanaflokksins sé
uppruna jaðarhægrisins að stórum
hluta að leita utan flokksins. Um
leið er augljóst að nokkur skörun
er á hreyfingum og að jaðarhægrið
hefur tekið upp mikið af orðræðu
teboðshreyfingarinnar. Eftir því
sem krafturinn fór úr teboðshreyf-
ingunni virðist hann líka hafa færst
yfir í róttækari farvegi.
Jaðarhægrið er í gruninn frekar
ósamstæður hópur fólks sem á sér
þó það sameiginlegt að vera reitt
yfir því sem það upplifir sem hnign-
un bandarísks samfélags: Bandarík-
in eru að gefast upp fyrir niðurrif-
söflum pólítískrar rétthugsunar og
fjölmenningar, og evrópsk arfleið
Bandaríkjanna og vestræn gildi eiga
undir högg að sækja sökum fjölg-
unar innflytjenda. Óttinn við upp-
gang íslamstrúar virðist sérstaklega
áberandi, og þá um leið sú sann-
færing að Bandaríkin hafi misst
kjarkinn til að takast á við „íslmaó-
fasista“, bæði innan Bandaríkjanna
og á alþjóðavettvagi.
Á miðvikudaginn í síðustu viku tók Nigel Farage, fyrrum
leiðtogi Breska sjálfstæðisflokksins, UKIP, þátt í kosninga-
fundi Donald Trump í borginni Jackson í Mississippi. Farage
notaði tækifærið til að hvetja viðstadda til að „endurheimta
Bandaríkin“ með hjálp Donald Trump. „Í mínum huga hafið
þið fengið einstakt tækifæri.“ Farage hvatti einnig fundar-
gesti til að sýna öllum sem vildu hafa vit fyrir þeim eða þætt-
ust vita betur í tvo heimana því reynslan úr þjóðaratkvæða-
greiðslunni um Evrópusambandsaðild Bretlands sýndi að
allt væri hægt:
Magnús Sveinn Helgason
ritstjorn@frettatiminn.is
Trump og Farage á kosningafundi í Jackson Mississippi, fimmtudaginn 24. ágúst. Farage sagðist vera kominn til að færa stuðn-
ingsmönnum Trump „skilaboð vonar og bjartsýni“: „Ef litla fólkið, alvöru fólkið, ef venjulega, heiðarlega fólkið er tilbúið til að
standa saman og berjast fyrir því sem það truer á, þá getum við sigrast á stórbönkunum, við getum sigrast á stórfyrirtækjunum“.
Hollenski þjóðernisöfgamaðurinn Geert Wilders á landsfundi Repúblikana-
flokksins í júlí síðastliðnum. Breitbart Media hélt hóf til heiðurs Wilders og
öðrum útvöldum gestum á landsfundinum þar sem Milo Yannopoulos, einn af
umdeildari talsmönnum Trump, og einn ritstjóra Breitbart, lýsti Wilders sem
einum af mikilvægustu „vonarneistum vestrænnar siðmenningar“ og „krossfara
fyrir frelsi og vestræna menningu“.
Óvísindaleg könnun The
Guardian sýndi að átta
af hverjum tíu fundar-
gestum vissu hvorki hver
Farage var né við hvað
var átt þegar talað var um
„Brexit“.
M
yndir | G
etty
Sérblað um
Heilsu móður
& barns
Þann 10. september
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300
kristijo@frettatiminn.is | 531 3307