Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
Heillaður af
Guðmundar-og
Geirfinnsmálinu
Jack Latham ljósmyndari hefur rann-
sakað sakamálið í tvö ár.
Ljósmyndarinn Jack Latham
sökkti sér í Guðmundar- og
Geirfinnsmálið í tvö ár í sam-
starfi við Gísla Guðjónsson
réttarmeinafræðing. Útkom-
an lítur dagsins ljós í næstu
viku í bókinni Sugar Paper
Theory og á ljósmynda-
sýningu á bresku eyjunni
Guernsey.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Í Guðmundar- og Geirfinnsmál-
inu var sakborningunum sögð saga
sem þau sjálf voru aðalpersónur í.
All ir sex sak born ing arn ir neituðu
aðild þegar þeir voru yfi r heyrðir í
upp hafi, en við frek ari yfi r heyrsl-
ur fóru þeir að játa. Þau enduðu því
með því að trúa skáldskapnum. Því
dýpra sem ég kafaði og því meira
sem ég vissi um afdrif þessara
sex einstaklinga, sem öll upplifðu
minnisleysi og áfallastreituröskun
vegna sálræns álags, og allt órétt-
lætið sem þau urðu fyrir, vissi ég
að mig langaði til að gera þetta mál
að viðfangsefni næstu bókar,“ seg-
ir ljósmyndarinn Jack Latham sem
gefur út bók um Guðmundar- og
Geirfinnsmálið í næstu viku.
Óljós mörk
Jack vann að ljósmyndaseríu í
Bandaríkjunum árið 2013 þegar
hann rakst fyrir tilviljun á mál Guð-
mundar og Geirfinns. „Síðasta verk
fjallaði að einhverju leyti um vand-
ann við að setja fram ljósmynd sem
sagnfræðilega staðreynd og upp frá
því fór ég á fullt í rannsóknarvinnu
á ólíkum sagnahefðum. Sú vinna
togaði mig til Íslands, inn í þjóð-
sögurnar og ævintýrin og allt í
einu rakst ég á Geirfinn, sem hvarf
sporlaust líkt og álfar eða huldufólk
hefðu numið hann á brott. Mörkin á
milli staðreynda og ímyndunar hafa
alltaf heillað mig og í þessu saka-
máli er allt að finna sem heillar mig
við ljósmyndun sem listform.“
Jack hafði samband við Gísla Guð-
jónsson réttarsálfræðing sem vann
fyrst að málinu árið 1974 og var síð-
ar fenginn til aðstoðar við endur-
upptöku málsins. „Gísli sýndi verk-
inu strax áhuga og var til í að vinna
þetta með mér en þetta er í fyrsta
sinn sem hann hefur skrifað lýsingu
málsatvikum. Textinn hans er mjög
vísindalegur, segir frá engu öðru
en köldum staðreyndum, og í bland
við textann sér lesandinn ljósmynd-
ir sem dansa á mörkum staðreynda
og skáldskapar,“ segir Jack.
Fjallar um afdrif sakborninganna
„Bókin fjallar ekki um það hver
morðinginn er heldur er hún um
afdrif þessara sex einstaklinga sem
voru ákærðir. Mig langaði alls ekki
að gera einhverskonar tilfinninga-
klám þar sem sakborningar sitja
alvarlegir fyrir eða nota gamlar dag-
blaðaklippur af grátandi Erlu Bolla-
dóttur. Það eru því engar myndir af
sakborningum en ég hafði samband
við þau öll og úr varð að þau tóku
þátt í ritstjórnarferlinu. Við Erla
erum sérstaklega góðir vinir í dag
og hún ætlar að mæta á opnunina
hér í Englandi í næstu viku.“
Jack segir alla hafa verið einstak-
lega hjálplega í öllu ferlinu en það
hafi komið honum sérstaklega á
óvart hversu hjálpleg lögreglan var.
„Lögreglan kemur auðvitað ekki
vel út í þessu máli, en lögreglan hef-
ur verið ótrúlega hjálpleg og aðstoð-
að okkur Gísla á allan mögulegan
hátt. Ég efast stórlega um að breska
lögreglan sé jafn hjálpleg, sérstak-
lega ekki við listamenn.“
Gísli Guðjónsson réttarmeinafræðingur vann fyrst að Guðmundar- og Geirfinnsmálinu árið 1975 en fluttist síðar til Englands
þar sem hann þróaði kenningar um falskar játningar. Hann er í dag talinn vera einn helsti sérfræðingur heims á sviði rétt-
arsálfræði. Gísli skrifar textann í bókina Sugar Paper Theory.
„Mörkin á milli stað-
reynda og ímyndunar
hafa alltaf heillað mig og
í þessu sakamáli er allt að
finna sem heillar mig við
ljósmyndun sem listform.“
volundarhus.is · Sími 864-2400
VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m²
með 9 m² yfirbyggðri verönd
kr. 1.699.900,- án fylgihluta.
kr. 1.999.900,- með fylgihlutum og
byggingarnefndar teiknisetti.
Grunnmynd og nánari
upplýsingar á heimasíðu
volundarhus.is
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
SUMARTILBOÐ
Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM
V
H
/1
6-
03
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7m²
m/opnanlegum glugga
kr. 189.900,- án fylgihluta
kr. 219.900,- m/fylgihlutum
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m²
kr. 299.900,- án fylgihluta
kr. 359.900,- m/fylgihlutum
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,4m²
kr. 169.900,- án fylgihluta
kr. 199.900,- m/fylgihlutum
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is ATH! 34 mm bjálki / Tvöföld nótun