Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
GOTT
UM
HELGINA
Uppáhalds tónverk þjóðarinnar
Í vor efndu Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV til netkosningar meðal landsmanna þar sem leitað var að eftir-
lætis tónverkum þjóðarinnar. Hægt var að velja úr lista með vinsælum klassískum verkum eða tilnefna önnur.
Þau tónverk sem yrðu hlutskörpust myndu svo hljóma á sérstökum hátíðartóneikum Sinfóníunnar. Þúsundir
atkvæða féllu í kosningunni en þau tónverk sem hlutu flest atkvæði sigruðu með nokkrum yfirburðum. Nú er
komið að því að flytja óskalög þjóðarinnar.
Hvar? Í Hörpu
Hvenær? Í kvöld kl. 20
Hvað kostar? 2500 - 3500 kr. (UPPSELT en í beinni útsendingu á RÚV)
Haustið byrjar
með Mean Girls
Hver man ekki eftir Lindsay
Lohan í hinni geysivinsælu
kvikmynd Mean Girls sem kom
út árið 2004? Hvernig væri að
byrja haustið á því að safnast
saman í Bíó Paradís og horfa
saman á þessi stórskemmtilegu
gamanmynd?
Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? Í kvöld kl. 20
Hvað kostar? 1600 kr.
Samfélagsmálin
rædd í þaula
Fundur fólks er lífleg tveggja daga hátíð um samfélagsmál í
Norræna húsinu sem byrjar í dag og verður einnig á morgun.
Slegið verður upp tjaldbúðum þar sem hin ýmsu félagasamtök
verða með starfsemi alla hátíðina. Í bland við líflegar umræður verða
tónlistaratriði, hægt verður að kaupa bæði mat og drykk á svæðinu.
Boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra
félagasamtaka.
Hvar? Norræna húsinu
Hvenær? Í dag og á morgun
Myndlist
minimalísks aga
Í dag er opnun á sýningu Sig-
urðar Guðjónssonar í Berg
Contempary. Sýningar Sig-
urðar mynda sterka heild og
verk hans hafa skýr höfundar-
einkenni. Hann notar vídeó
og hljóð – náttúruleg hljóð og
hluti, vélar, manngert umhverfi
og gömul tæki – af minimal-
ískum aga en nær þó að draga
fram í þessum viðfangsefnum
mörg lög af merkingu og tilf-
inningum.
Hvar? Berg Contemporary
Hvenær? Í dag kl. 17
Þjóðernishyggja
á Norðurlöndum
Mikið hefur verið rætt um upp-
gang þjóðernisflokka á Norður-
löndum á undanförnum árum.
Ýmislegt sameinar þessa flokka
en margt er þó ólíkt með þeim og
sögulegum rótum þeirra. Sænski
blaðamaðurinn og rithöfundurinn
Bengt Lindroth sendi nýverið frá
sér bókina „Väljarnas hämnd“ um
uppgang þessara flokka á Norður-
löndum. Hann segir frá efni henn-
ar á Fundi fólksins.
Hvar? Norræna húsinu
Hvenær? Í dag kl. 13
Bara
ein jörð
Um helgina fer fram um-
ræðufundur um loftslagsmál í
Norræna húsinu en baráttuhópur-
inn París 1,5 stendur fyrir téðum
fundi. París 1,5 berst fyrir því að
Ísland geri sitt til að stöðva hlýnun
jarðar við 1,5°. Hópurinn vill tryggja
að loftslagsmál verði eitt af stóru
kosningamálunum í haust.
Hvar? Norræna hús
inu
Hvenær? Í dag kl. 15
.30
Pantanir í síma: 588 8998
joifel@joifel.is
Yndisfagrar
skírnartertur
að hætti Jóa Fel
15% afsláttur
af öllum skírnartertum