Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 40

Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 „Í Glæsibæ slær hjarta Laugardalsins“ Allflestir Íslendingar ættu að þekkja til Glæsibæjar; verslunarkjarna sem staðið hefur í áratugi í Laugardalnum og sameinar margskonar verslanir og þjónustu undir einu og sama þaki. Svæðið iðar af lífi og þar má finna alls konar fólk sem bæði vinnur þar og verslar. En hverjir eru í Glæsibæ og hvað eru þeir að gera þar? Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Verslunarkjarni #6 Á ferðalagi frá Hvolsvelli Þær Elín og Rikka eru á leið til Borgarness frá Hvolsvelli til að njóta seinustu daga sumarsins. Með í för eru mamma Elínar og systir en þær eru í stuttu stoppi í Glæsibæ til að kaupa snarl fyrir bílferðina. Sú stutta keyrir til ömmu Daníel og Júlía eru að fara í heimsókn til ömmu Júlíu og ætlar sú stutta sjálf að keyra þangað, að eigin sögn, en hún fann þennan fína nýja bíl í miðjum Glæsibæ. Feðgin­ in koma alla leið úr Hafnar­ firði en ákváðu að stoppa við í verslunarmiðstöðinni til að kaupa sér að drekka og kíkja á hlaupagræjur. Lögfræðingur á Saffran Brian vinnur á Saffran og er frá Kenía. Hann fékk rétt að stökkva frá vinnu til að ná í linsurnar sínar í gleraugnabúð Glæsibæjar. „Ég er að byrja í skólan­ um. Var í tölv­ unarfræði í HR en ákvað að skipta yfir í lögfræði núna í haust. Kannski verð ég einhvern­ tímann lögfræðingur Saffran!“ Í greiðslu á Kúltura Guðmunda Lilja kemur ekkert sér­ lega oft í Glæsibæ en er nýfarin að koma í hárgreiðslu í Kúltura hár­ greiðslustofu. Hún býr í Fossvogi en vinnur í grennd hárgreiðslustofuna og því kjörið tækifæri til að sækja þangað þjónustu. Ofnæmislyf seldust upp Lífrænt heillar „Mér finnst þessi búð, Uppskeran, svo spennandi. Skilst að hér sé allt lífrænt en ég er mikið fyrir það. Ég bý í nágrenninu og kem oft hingað í Glæsibæ. Best finnst mér samt að fara á Saffran að fá mér að borða.“ Með græn meti í bæinn „Við erum að koma úr Biskupstungum en við komum alltaf í bæinn með grænmeti og selj­ um til Asia Supermar­ ket og Fisku,“ segir Sigurður sem er ásamt konu sinni Mardiu og tveimur dætrum í stuttri heimsókn í Glæsibæ til að heilsa upp á aðra dóttur þeirra sem vinnur á Tokyo Sushi. Rauðar rósir og „órans“ Ólafía blóma­ sali hefur rek­ ið búðina Dal­ ía í sex ár. Hún segir viðskiptin í blóma en Dalía er eina blómabúðin á svæðinu. Að­ spurð segir hún rósir vera blóm sum­ arsins. „Vegna allra brúðkaupanna. Rauðar rósir og „órans“.“ Æskuvinir hittast fyrir tilviljun Smári og Kolbrún eru gamlir vinir sem hittust fyrir tilviljun í Glæsibæ á þess­ um blíðskapardegi og eru kát. „Við erum búin að vera vinir frá því að við vor­ um unglingar,“ segir Smári sem býr í nágrenninu. „Ég bý í Breiðholti og gekk alla leið hingað í Glæsibæ í dag. Það er svo mikilvægt að húka ekki inni allan liðlangan daginn. Þegar maður skellir sér út hittir maður alltaf eitthvað skemmtilegt fólk – eins og hann Smára minn hér!“. „Hér er gott að vera. Í Glæsibæ slær hjarta Laugardalsins,“ segir Smári. „Það er allt í góðu standi núna en í sumar seldist næstum allt upp af ofnæmislyfjum“ segir Amanda, sem vinnur í apótekinu í Glæsibæ, og brosir breitt. „Í sumar var fólk mikið að kaupa eitthvað við geitungabit­ um. Mýbit voru líka algeng. Þetta breytist þó allt núna með haustinu.“

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.