Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 44

Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 44
44 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 Ísland er eina landið þar sem hægt er að fara á brimbretti og snjóbretti á sama tím, segir Filip Polach. Hann er mikill útivistar­garpur og nýtur sín best á brimbretti við Snæ­fellsnes þar sem hann býr í sumar bústað með kærustu sinni og  bróður. „Ég kom hingað fyrir tveimur árum frá Tékklandi því ég vissi að Ísland væri eina landið þar sem maður gæti farið á brimbretti og snjóbretti á sama tíma árs. Reyndar var ég hér í ákveðnum erindagjörð­ um. Átti að ljósmynda úti vistarfólk í íslenskri náttúru en ég gjörsam­ lega féll fyrir þessu landi og tveggja vikna ferð teygðist til dagsins í dag.“ Filip kynntist kærustunni sinni hér á landi og saman búa þau í sumarbústað á Snæfellsnesi með bróður hans. Ástæða þess ku vera sú að á Snæfellsnesi er gott að vera á brimbretti og á ströndinni milli Arnarstapa og Búða skapast oft góð skilyrði fyrir brimbrettaglaða til að skella sér í sjóinn. „Við bræðurnir förum mjög oft saman og byrjum á því að fara í blautgalla svo okkur verði ekki kalt þegar ofan í er komið. Ef ekki væri fyrir þá myndi maður bókstaf­ lega drepast úr kulda! Síðan svaml­ ar maður áfram og liggur með magann á brettinu, höfuð fram, og þegar alda er í aðsigi verður maður að bregaðst snögglega við og vippa sér upp á brettið, báðir fætur nið­ ur, beinn í baki. Og þá hefst gam­ anið.“ En hvernig er með brimbrettageir- ann á Íslandi, eru margir í þessu? „Þegar ég var að byrja var hægt að telja brimbrettafólk á fingr­ um annarrar handar sér, svo fáir voru að þessu, en það hefur gjör­ breyst og talan er allavega búin að tvöfaldast. Ég veit um slatta af útlensku brettafólki sem sest hér að í lengri eða skemmri tíma og áhugi Íslendinga virðist hafa aukist skyndilega á íþróttinni. Það er samt dálítið fyndið að bretta­ samfélagið er ekkert brjálæðis­ lega opið og ef fólk finnur góðan stað til að fara á brimbretti þá er það ekkert að segja öðrum frá því. Vill hafa svæðin út fyrir sig – sem er miður.“ Hvað framtíðarplön varðar seg­ ist Filip bara ætla að halda áfram að vera á brimbretti við strend­ ur Íslands. „Já, maður fylgir bara streyminu.“ Fylgir bara streyminu Filip Polach er ungur maður frá Tékklandi sem kom hingað til lands fyrir tveimur árum og féll fyrir tvennu á Íslandi; náttúrunni og íslenskri stelpu. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is „Þegar ég var að byrja var hægt að telja brim- brettafólk á fingrum annarrar handar sér, svo fáir voru að þessu, en það hefur gjörbreyst og talan er allavega búin að tvöfaldast.“ Færeyski tónlistarmaðurinn Heiðrik, eða Heiðríkur eins og Ís­ lendingar eru farnir að kalla hann, hefur sent frá sér plötuna Funer­ al. Lögin á plötunni eru uppgjör Heiðriks við fortíð sína. „Þetta er mjög persónuleg plata sem ég gerði hér á Íslandi en fjallar um fortíð mína í Færeyj­ um. Mörgum þykir titilinn frekar myrkur, Funeral – jarðarför, en þarna er ég eiginlega tala um skil í lífinu, að gera upp tímabil og hefja annað. Maður vill fá endapunkt svo maður geti haldið áfram,“ segir Heiðrik sem telur áhrifin í tónlistinni koma frá þjóðlagatón­ list, djassi og tónlistarmönnum á borð við Roy Orbison og Marlene Dietrich. Í listum hefur Heiðrik fundið sér útrás í myndlist, tónlist og kvik­ myndagerð sem hann lærði í Dan­ mörku. Hann byrjaði að syngja þegar gelgjuskeiðinu lauk en tutt­ ugu og eins árs gamall ákvað hann að flytja frá Færeyjum, úr samfé­ lagi sem á þeim tíma, að minnsta kosti, var langt frá því að venjast hugmyndinni um samkynhneigð. „Ég er fæddur árið 1983 og er af kynslóð sem ekki var jafn ein­ angruð og þær sem á undan komu í Færeyjum. Vitanlega hefur margt breyst í Færeyjum og samkynja hjónabönd voru leyfð í vor, sem auðvitað er frábært, en samt á eftir að ræða margt.“ Tónlistin á nýju plötunni er látlaus og órafmögnuð. Þarna eru píanó, strengir og úkúlele, svo eitthvað sé nefnt, og líka fínleg, mjúk og brothætt rödd Heiðriks sem syngur um líf sitt á ensku. „Þetta er tónlist um mig og fólkið í lífi mínu,“ segir hann, „í fortíð, nútíð og framtíð.“ | gt Heiðrik gerir upp fortíðina Endapunktur markar nýtt upphaf „Á plötunni er ég að gera upp tímabil og hefja annað,“ segir fær- eyski söngvarinn Heiðrik. Ný sýning með verkum Sigurðar Guðjóns sonar verður opnuð í Berg Contemporary við Klappar- stíg í dag klukkan 17. Tímatengd myndlist og myndir á hreyfingu sem settar eru fram með ýmsum hætti eru það svið myndlistarinnar sem hefur verið í hve mestri gerjun á síðustu árum. Einn þeirra íslensku listamanna sem hefur náð góðum og forvitni­ legum tökum á henni er Sigurður Guðjónsson. Í verkum hans, sem bera yfir­ leitt skýr höfundareinkenni, koma saman náttúra og manngert um­ hverfi. Hljóðrás verkanna skiptir oft einnig miklu máli, ekki síður en það sem augað nemur. Skyn­ færin vega hvort annað upp og fylla upp í upplifun áhorfandans af verkunum. Verkin eru oft hæg­ fara og fallega endurtekningasöm og þegar best tekst til draga þau áhorfandann til sín. Á sýningunni í Berg Contemp­ orary verða nýleg verk sem Sig­ urður hefur unnið á síðustu árum en ekki hafa komið fyrir sjónir al­ mennings á sýningum hér á landi. Ef marka má texta Jóns Proppé, má gera ráð fyrir að Sigurður sé mikið með hugann við úrelta tækni í verkunum sem þarna verða til sýnis. Berg Contemporary er nýleg­ ur og glæsilegur sýningarstaður við Klapparstíg sem áhugafólk um íslenska myndlist ætti ekki að láta fram hjá sér fara, né heldur þeir sem eru tilbúnir til að reyna á skynfærin með opnum huga. | gt Myndir og hljóð með togkraft Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.